Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Mikið verð ég glaður...

... þegar þessi ríkisstjórn springur endanlega.

Ég kaus Samfylkinguna í hallæri út á loforð um að hún myndi koma íhaldinu og spillingunni þeirra frá völdum. Hvernig var staðið við það?

Góður vinur minn kaus íhaldið að því að hann þoldi ekki Sollu. Hvernig fór það?

Hvort sem við kusum Samfylkinguna eða íhaldið voru greinilega margir sviknir af því. Kaldhæðið ekki satt? 


mbl.is Meiri biðlund á landsbyggðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Björn Bjarnason orðinn ritstjóri Morgunblaðsvefsins?

Ég held að ritstjórar Moggavefsins séu hreinlega að tapa sér í hrifningu sinni á fréttauppsprettum úr bloggsíðu BB.

Ég er varla fyrr búinn að skrifa eina grein um þetta en að mbl.is bætir ekki um betur og setur enn eina greinina inn á forsíðuna. Þetta minnir brátt á "Okkar mikilhæfi leiðtogi.... 

Ef kosningaskjálfti Moggans er svona grimmilegur fyrsta dag kosningabaráttunnar hvernig verður það þegar nær dregur. Óvirkir forsíðubloggararnir íhaldsins sem hafa legið eins og vampírur í dvala, Birgir Ármannsson, Sigurður Kári og fleiri munu nú spretta fram á bloggvöllinn aftur eftir 18 mánaða hvíld í ritkistunum sínum. Nú er að koma blóðbragð í strákana.


mbl.is Segir þingmenn VG hafa veist að lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki nóg fyrir Moggann að flagga Birni sem forsíðubloggara?

Ég er að verða svolítið þreyttur á ritstýringu mbl.is á því hverjir eru á forsíðu bloggsins. Þar er næstum öllum sjálfstæðismönnum sem nenna yfirhöfuð að tjá sig í skrifuðu máli flaggað með áberandi hætti á forsíðu bloggsins. Skiptir hér engu máli hvort það er eitthvert vit í þessum skrifum eða ekki. Það er að verða meira áberandi líka að Björn Bjarnason er ekki bara á forsíðu bloggsins, heldur ýta þeir því enn fastar að fólki með því að búa til fréttir úr því sem ekkert er. Þessi áróður Moggans fyrir íhaldið mun nú harðna í aðdraganda kosninga.

Það er líka að verða sífellt meira áberandi að margir þessara bloggara íhaldsins hafa ekkert þol lengur til að taka við athugasemdum á blogginu og því eru skrifin þeirra bara einhliða málflutningur sem enginn má svara eða rökræða. Margt af þessu fólki gerir ekkert annað þessa dagana en að blogga um "skrílslæti" mótmælenda. Er ekki eðlilegra að Mogginn setji pistlana þeirra bara á síður blaðsins? Það þarf enga gagnvirkni þar. Hvers vegna er miðillinn að hampa þeim sem ekki nýta aðalkost miðilsins sem er gagnvirkni og rökræður?

Látið frekar þá sem eru með alvöru umræður og hafa úthald í rökræður fara á forsíðu bloggsins. Það er til að mynda löngu kominn tími á að ég fái þarna sess þó ég segi sjálfur frá. Mogginn á alveg að geta þolað nokkrar raddir þeirra sem ekki eru lengur á klafa íhaldstrúarinnar.


mbl.is Björn: Mikilvægt að búið sé að velja landsfundarfulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svolítið vanhugsuð ummæli Harðar breyta engu

Ef rétt er eftir Herði haft þá er hann heldur kaldur í skilaboðum sínum. Sú yfirsjón hans er hins vegar tittlingaskítur í samanburði við tilefni mótmælanna og þeirrar eyðileggingar íslensks efnahagslífs sem við erum varla byrjuð að súpa seyðið af.

Það má ekki gleyma því að mbl.is er með aldargamla órofa tengingu við íhaldið og fagnar því eflaust mjög að geta vegið að Herði með þessum hætti og aflað flokknum stuðnings með því að gera talsmann mótmælenda næstum því andstyggilegan með framsetningu fréttarinnar.

Stuðningsmenn íhaldsins nota öll tækifæri til að draga upp smáskít eins og eggjakast og smá róstur til að láta fólk halda að mótmælin séu af hinu illa og ekki réttlætanleg vegna ofbeldisverka. Það má svo sem reyna allt.

Ég hvet fólk til að halda áfram að mótmæla, gæta samt stillingar og vonandi tekst brátt að taka til í því spillingarbæli sem stjórnvöld hafa rekið s.l. bráðum 18 ár. 


mbl.is Hænuskref í rétta átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt að þau segi bæði af sér nú þegar - allra vegna

Ég hef fulla samúð með bæði Geir og Sollu í veikindum þeirra og óska þeim góðs og fulls bata.

Það er hins vegar eðlilegt í þessari stöðu að þau segi bæði af sér störfum og láti nýtt fólk taka við. Bæði er að þau eru og verða með skert starfsþrek þegar mikið liggur við og það er eðlileg krafa þjóðarinnar að fólkið í æðstu stöðum sé að minnsta kosti við fulla heilsu.  Þau eiga ekki að halda í stöður sínar í krafti vorkunnar, það er fullkomlega óeðlilegt og engum boðlegt.

En stærsta ástæðan fyrir þau persónulega að hætta er að huga að eigin heilsu og lífi á kostnað vegtyllu valdanna sem þau svo ríghalda í. Það verður ekkert meira stjórnleysi þótt þau hætti og það er ekkert minna en fullkominn hroki fyrir þau eða aðra að halda eitthvað annað. 

 


mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þurfum ekki landráð með hraði

Ég fæ líklega aldrei skilið af hverju margir Íslendingar vilja ganga í ESB, þessa eineltisklíku og "wannabe" Bandaríki Evrópu. Við eigum landfræðilega ekkert sameiginlegt með þeim og erum sjálfstæð eyþjóð í anda.

Efnahagslegar þrengingar kalla greinilega fram það versta í sumu fólki og Árni Páll er haldinn þeirri reginfyrru að ESB ætli að moka í okkur peningum og meiri lífsgæðum.

Ég spyr: Hvar var vinskapur ESB þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög? Það er hreinn kjánaskapur að halda að við græðum eitthvað á ESB aðild og enn meiri kjánaskapur að halda að ESB hafi sérstakan áhuga á okkur vegna þeirra 320.000 manna sem hér búa.

Árni Páll og fleiri eru að vinna að hreinu landráðastarfi og lagabókstafurinn er, að minnsta kosti að óbreyttu, klárlega í þá veru. 


mbl.is ESB-umsókn þolir enga bið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er lausnin á efnahagsvandanum

Þetta hljómar að sjálfsögðu afar hrokafullt. Ef menn hafa betri lausn vil ég gjarnan heyra um hana.

Ríkið stal eignum bankanna með neyðarlögunum. Það er gjörningur sem ekki verður aftur tekinn og það þarf því að vinna út frá þeim skaða. Ríkið stal EKKI skuldum bankanna við erlenda lánadrottnanna sem eru uppistaðan í því sem þjóðin og fyrirtækin skulda. Hinir nýstolnu ríkisbankar ætla að innheimta skuldirnar hjá okkur án þess að standa skil á þvi til upphaflegra lánveitenda erlendis, það er líka ljóst.

Ég tel skv. þessu að einstaklingar og fyrirtæki eigi heimtingu á því að ríkið hirði ekki með offorsi meira og minna allar fasteignir landsins og þegnarnir verði bara leiguliðar og fátæklingar. Ríkið eignaðist ekki kröfurnar á okkur með neinum réttmætum hætti og við það verður aldrei unað.

Lausnin er sú að hefja skipulagða niðurfærslu ALLRA skulda heimila og fyrirtækja. Það verður að reikna út formúlu fyrir niðurfærslu myntkörfulána og að sama skapi fyrir krónulán með verðtryggingu. Að þessu verða færir reiknimeistarar að koma. Það verður að gera þetta með hliðsjón af öllu þjóðfélaginu ekki bara útvöldum einkavinum ríkisstjórnarflokkanna. Þetta verður að gerast með heildstæðri sýn á það að samfélagið fari aftur í gang án þess að helmingur þjóðarinnar og fyrirtækja verði á vonarvölinni eins og nú stefnir í vegna ráðaleysis núverandi stjórnar.

Forsætisráðherrann spurði í sjónvarpsviðtali: "Hvað á að gera fyrir þá sem skulda ekkert?" - Því er fljótsvarað: Ekkert. Vegna þess að þeir voru ekki rændir með okurvöxtum og upplognum verðtryggingum. Endanlega er það skuldlausum í hag að þurfa ekki að fá hinn hluta þjóðarinnar á sitt framfæri bara vegna óstjórnar.

Hvað með IceSave skuldbindingarnar? Við borgum þær ekki vegna bresku hryðjuverkalaganna sem eyðilögðu banka- og efnahagskerfi íslendinga. Það flokkast undir hamfarir (force majeure) og við erum því ekki skuldbundin til að bæta slíkt tjón. Ef þetta þýðir að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn vilji ekki lána fé hingað þá tökum við því. Við hefjum þá sjálfsþurftarbúskap og sættum okkur frekar við að vera fátæk heldur en að borga hátt í tug milljóna á hvert mannsbarn í landinu. Það tekur á annan áratug að hreinsa þá skuld. Viljum við taka á okkur skuldbindingu ævintýramanna með þeim hætti?

Hinn huti af efnahagslausn íslendinga er sá að núllstilla útgjöld ríkisins eins og ég hef bent á í fyrri færslum (sjá Tenglar hér til vinstri). Það þarf að endurnýja öll fyrri umboð til útgjalda. Áhuga-, dekur- og dellumál eiga EKKI að vera á framfæri samfélagsins.

Betri tillögur? Einhver?


mbl.is Margvíslegar aðgerðir stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er mikið að sjá einhverjum þingmanni annt um feril sinn

Það er reyndar svolítið seint í rassinn gripið, en líklega er Ágúst Ólafur að bjarga því sem bjargað verður af stjórnmálaferli sínum.

Til hamingju með það! 


mbl.is „Eigum ekki að óttast þjóðina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir ómeðvitaður um vaxta- og verðbótasvikin í peningamálastjórninni

Ég var að hlusta á viðtal við Geir í Íslandi í dag og þar kom hann mér verulega á óvart. Það var greinilegt að Sindri Sindrason (hinn dónalegi að sögn Geirs í vetur!) var aðgangsharður án þess koma með réttu spurningarnar.

Mig rak í rogastans þegar Geir var spurður hvort ekki yrði að fella niður hluta af skuldum heimila og hann svaraði á móti: "Hvað á þá að gera fyrir það fólk sem skuldar ekkert?"

Hér skorti Sindra vit til að svara honum með sama orði "Ekkert!" - Ástæðan er nefnilega sú að þeir sem skulda ekkert voru bara hreint ekkert hlunnfarnir af peningaóstjórninni með sama hætti og skuldararnir. Það eru nefnilega skuldararnir sem hafa verið sviknir umfram hina skuldlausu. Okrað hefur verið á skuldurum með ólögum og vanhæfri peningastjórn í Seðlabankanum og hjá ríkinu. Það er hjá þeim sem þarf að rétta af stöðuna.

Fastinn í þessu máli verður að vera fasteignin og það er ekkert réttlæti fólgið í því að stýrivextir og verðbætur séu ekki í takti við samdrátt.  Þessir útreikningar eru upplognar tölur úr Seðlabankanum til að vernda spákaupmenn og til að halda frið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Geir og ríkisstjórnin eru ófær um að tengja málin og þess vegna er ekkert gert, þau virðast sem heild ófær um að fara í heildstæðar aðgerðir með einhverri yfirsýn. Það þarf ekki að hlusta á Geir lengi til að sjá að hann situr orðið bara valdanna vegna og til þess að vernda einkavinina. 


mbl.is Ábyrgðarleysi að leysa upp stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir VAKNAÐU - Þetta ER búið hjá ykkur

Ég undrast langlundargeð íslensku þjóðarinnar og gott uppeldi. 

Það er að verða fullreynt að Geir og Solla ætla ekki að gefa sig í þessu máli. Geir er geðlaus og gerir ekkert, Solla lasinn og langar ekkert. Þetta er bara þreytt og sjúkt fólk sem á að hætta ekki síst sjálfs síns vegna. Samt hanga þau nú orðið þvert á raunverulegan vilja eigin flokksmanna.

Ég sárvorkenni mínum fyrrverandi félögum í Sjálfstæðisflokknum. Þeirra eina mótbára nú til að verja íhaldið með allt niður um sig og drulluna upp á bak er: "Haldið þið í alvöru að Steingrímur J. sé eitthvað betri?" - Ég skal svara því strax: "Hann gæti aldrei toppað það sem íhaldinu hefur tekist að eyðileggja þó hann reyndi það með fullkominni eyðingarhvöt!" 


mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 264889

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband