Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Opinber fyrirtæki eru einkavædd til að fela sjálftöku launa og spillingu

Einkavæðing opinberra fyrirtækja virðist hafa þetta eina markmið.

Röksemdirnar fyrir einkavæðingu eru oftar en ekki allt aðrar og byggðar á afar veikum rökum og það virðist stjórnendum fyrirtækjanna einkar auðvelt að blekkja kjörna fulltrúa til að samþykkja slíkar breytingar sem eru þegar á reynir, bara til þess að hægt sé að stunda sjálftöku launa, hækka sporslur og fela þátttöku í alls kyns verkefnum sem eiga nákvæmlega ekkert skylt við starfsemina.

Vandamálið er að í Orkuveitu Reykjavíkur hefur safnast upp auður sem byggður er með okri í orkusölu þegar eðlilegra væri að eigendur þess hefðu notið framsýninnar með lægra orkuverði.

Borgarbúar hafa nefnilega verið snuðaðir áratugum saman um að njóta þess hversu hagkvæm hitaveitan er. Samanburður við erlenda orkusölu byggða á kjarnorku, olíu og kolum hefur verið notuð sem rök fyrir því að halda orkuverðinu hér á landi allt of háu miðað við hvað það hefði getað verið.

Ég hef sagt það áður: Stjórnendur OR eru fyrir löngu búnir að vinna inn fyrir vænum brottrekstri án feits starfslokasamnings fyrir spillingu í starfi.


mbl.is Launin þola ekki dagsljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk velur sér mismunandi dauðdaga

Ég get alveg hneykslast á þessu eins og aðrir. Það er sorglegur fylgifiskur ákveðinna trúarhópa þegar fylgjendur hlýða svona hálfvitaboðum sértrúar í blindni.

Samt sem áður er okkur öllum hollt að vita til þess að stærri hópur fólks dundar við sjálfsmorð af öðrum ástæðum svo sem reykingum, offitu og öðrum hættulegum sjálfvöldum háskum.

Ef við værum skynsöm væru til að mynda reykingar alveg bannaðar í samfélaginu vegna tilgangsleysis þeirrar nautnar og þeirrar staðreyndar að skattar þeirra sem ekki reykja eru notaðir til að lappa upp á heilsu þeirra sem það gera.

Hneysklumst á því líka! 


mbl.is Þáði ekki blóð og lést af barnsförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný jafnréttislög - Lögboðin mismunun, óljós kæruefni og opin túlkunarefni

Jóhanna Sigurðardóttir er í miklu áliti hjá mér sem vandaður og heiðarlegur stjórnmálamaður. Hún hefur þó einn galla og hann er sá að hún sér stundum ekki heildarmyndina fyrir ákefðinni við að koma áhugamálum sínum áfram. 

Ég er að lesa ný jafnréttislög frá félagsmálaráðherra og verð að segja að þau er einhver loðnasta lesning sem ég hef séð um mína daga. Heilu greinarnar eru óskiljanlegar, loðnar og eiga eftir að valda verulegum vandræðum vegna þess hversu margar greinar eru óskýrar og opnar fyrir túlkun. Það eina sem er skýrt í þessum lögum er að jafnréttisstofa er orðin að jafnréttislögreglu og dómstól sem ekki er hægt að áfrýja.

Bein mismunun kynjanna er hér sett í lög og það er ekki viðunandi. Bent hefur verið á að hægt sé að krefjast þess að konur séu ráðnar til jafns við karla í minnstu fyrirtækjum og það gengur ekki. Hvernig er hægt að krefjast þess að konur verði jafn margar á bílaverkstæðum, í smiðjum, lögreglu og öðru? Skv. þessum lögum verða konur sem vilja gerast starfsmenn í þessum greinum með lögboðna áskrift að starfi óháð getu til verks eða gæða sem starfsmanns.

Ég er þeirrar skoðunar að nú sé allt of langt gengið í þjónkun við kvenréttindakonur og femínista. Þeirra samtök eru sérstaklega tilgreind í lögunum með fulltrúa og það er greinilegt að við samningu þessa lagabálks hefur óskalisti öfgakerlinga ráðið alveg ferðinni. Vandamálið er síðan að fáir þora að andmæla þessu af ótta við að verða kaffærðir af þessum sömu öfgakerlingum og kallaðir karlrembur. Það er ekki hægt að setja í lög að karlar og konur skuli vera eins, eins og hér reynt í trássi við alla líffræði og eðli kynjanna. Það vantar skynsemi í kynjaumræðuna fremur en þær öfgar sem hér eru boðaðar.

Kynjajafnrétti er löngu komið á skv. lögum og meira en það. Það er konum til minnkunar verði þessi nýju lög samþykkt. Skv. þessu er verið að búa til enn einn hóp fólks sem skuli njóta meiri réttinda en aðrir. Hinn hópurinn eru t.d. bændur, sem hafa viðurværi sitt á kostnað almennings með styrkjum og öðrum framlögum úr ríkissjóði og veldur hér hæsta matarokurverði í heimi.

Ég trúi ekki að konur vilji að sett séu lög í landinu sem setja þær fremst í allar raðir vegna kynferðis. Ég trúi því ekki að konur vilji láta líta á sig sem slíka aumingja að þær þurfi forskot með lögum af þessu tagi. Ég tel Þessi lög þess vegna hreina vanvirðingu við alvöru íslenskar konur.


Bara myndbirtingin er til að gera lítið úr Terry

Mér finnst John Terry málaður með þeim hætti að allt sé gert til að gera karlgreyið ljótan fyrir að þiggja há laun hjá ólíugarkanum Abramovich.

Það að velja mynd af honum með andlitsgrímuna (hann kinnbeinsbrotnaði um daginn ef ég man rétt) gerir hann grimmari og þá væntanlega gráðugri útlits en hann er í rauninni.

Ég hef tekið eftir því undanfarið eins og fleiri að blaðamenn Mbl séu farnir að lita fréttirnar eins sterkum litum og þeim er unnt. Ekki er ég viss um að það sé góð þróun.


mbl.is Taylor ver laun John Terrys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grín er dauðans alvara - Bönnum það!

Grín verður sífellt stærra vandamál í heiminum. Mannskepnan hefur alltaf verið full af gríni og húmor. Og einhverjum hálfvitum gæti dottið í hug að það sé bara jákvætt að svo sé. En það er sko langt í frá.

Ég get upplýst hér að grín er uppspretta illra hugsana. Oftar en ekki er nefnilega grín vegna ófara einhvers eða einhverra og þá er það ekki spaugilegt heldur sorglegt. Oft er grín á þann hátt særandi að grínatriðið reiðist og fremur óhæfuverk. Það eru þekkt dæmi um þetta í mannkynssögunni. Menn hafa verið drepnir unnvörpum vegna kvikindislegs gríns í gegnum tíðina.

Ekki má gera grín að Múhameð, Jesús Kristi, Guði eða Allah án þess að allt verði vitlaust. Sumir hika ekki við að fara í stríð vegna gríns á kostnað þessara ímynduðu fulltrúa almættis og virðist fyrirmunað að skilja að ef þeir trúa á þessa goðumlíku fugla þá fundu þeir upp grínið... og þar með grínið um þá sjálfa!

Samt sem áður er grín óumdeilanlega stórt vandamál. Það er því rétt að banna grín með öllu vegna þess að það er öruggt að grín getur valdið örkumlum og dauða. Við höfum nú áður bannað ýmislegt sem veldur örkumlum og dauða, það verður því að sýna hér að við séum sjálfum okkur samkvæm!

Ég segi nú bara svona...


Killer Queen - Dilana með flotta ábreiðu

Ég er ekki sérstaklega hrifnæmur og frekar seintekinn á lög en þessi útgáfa Dilönu á Killer Queen er hreint frábær. Flott útsetning og söngurinn hennar í sérdeilis góðum fíling.

Ef þetta er vel skrúfað upp getur þetta dregið út smá gæsahúð.

Þið finnið lagið á Myspace síðunni hennar hér


« Fyrri síða

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 264892

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband