Grín er dauðans alvara - Bönnum það!

Grín verður sífellt stærra vandamál í heiminum. Mannskepnan hefur alltaf verið full af gríni og húmor. Og einhverjum hálfvitum gæti dottið í hug að það sé bara jákvætt að svo sé. En það er sko langt í frá.

Ég get upplýst hér að grín er uppspretta illra hugsana. Oftar en ekki er nefnilega grín vegna ófara einhvers eða einhverra og þá er það ekki spaugilegt heldur sorglegt. Oft er grín á þann hátt særandi að grínatriðið reiðist og fremur óhæfuverk. Það eru þekkt dæmi um þetta í mannkynssögunni. Menn hafa verið drepnir unnvörpum vegna kvikindislegs gríns í gegnum tíðina.

Ekki má gera grín að Múhameð, Jesús Kristi, Guði eða Allah án þess að allt verði vitlaust. Sumir hika ekki við að fara í stríð vegna gríns á kostnað þessara ímynduðu fulltrúa almættis og virðist fyrirmunað að skilja að ef þeir trúa á þessa goðumlíku fugla þá fundu þeir upp grínið... og þar með grínið um þá sjálfa!

Samt sem áður er grín óumdeilanlega stórt vandamál. Það er því rétt að banna grín með öllu vegna þess að það er öruggt að grín getur valdið örkumlum og dauða. Við höfum nú áður bannað ýmislegt sem veldur örkumlum og dauða, það verður því að sýna hér að við séum sjálfum okkur samkvæm!

Ég segi nú bara svona...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég vil banna fólk sem er ekki víðsýnt

Óskar Þorkelsson, 2.11.2007 kl. 12:55

2 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Það á að gera grín að öllu. Sérstaklega því sem fólk hefur allt að því trúarlega sannfæringu gagnvart, td stjórnmál. Hefur þú til að mynda séð hommavísurnar 10 frá Baggalúti? Ég saup hveljur við lesturinn (en tók ekki stórt upp í mig).

Ingi Geir Hreinsson, 3.11.2007 kl. 09:28

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 264931

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband