You ain't seen nothing yet!

Þessi setning er fyrst og fremst fræg fyrir að vera tónverk með Bachman-Turner Overdrive og síðan því að bæði Össur Skarphéðinsson og Ólafur Ragnar Grímsson hafa báðir notað þessa setningu og orðið sér til háðungar með notkun hennar síðar vegna framvindu mála.

Nú ætla ég að gera hana að minni og vonast til að hún verði mér til hinnar mestu háðungar því ég trúi því að við séum ekki byrjuð að upplifa raunverulega erfiðleika í þessu þjóðfélagi. Það eru ekki margir farnir að svelta ennþá. Ég á von á miklu erfiðari tímum en nú eru. Ástæðan er aðallega sú að enn eru eignir að falla í verði og það er heldur ekki verið að grípa til þeirra stórtæku aðgerða sem þörf er að vinna undir þessum kringumstæðum. Sá stóri misskilningur er ennþá í gangi hjá ráðamönnum þjóðarinnar að hægt sé að gera eitthvað smálegt til að laga þetta ógurlega hrun.

Þeir mega svo sannarlega hugsa sinn gang betur í þeim efnum!


mbl.is Skuldir þjóðarbúsins meiri en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algjorlega sammala hofundi.  Sukkid er rett ad byrja ad koma fram.... og alveg otrulegt hvad stjornmalamenn a Islandi eru gjorsamlega blindir a hlutina.  Ef menn halda virkilega ad their seu ad koma til botns i thessu, nu tha vada menn villu vega. Thvi fyrr sem menn vidurkenna ad thjodarbuid se gjaldthrota vegna heimsku einstakra manna og tha a eg helst vid Rikistjorn og fjarmalaeftirlit,  thvi betra.  Fint ad kenna utrasarvikingum um allt... en menn ganga ju eins langt og theim er leyfilegt af regluverki.

Oskar Gardarsson 

Oskar Gardarsson (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 18:33

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

Núverandi stjórnvöld töldu brýnast að reka Davíð. Næst var að skapa störf við snjóflóðavarnir, grisjun skógar, skógrækt og tónlistarhús. Ég vona að ekki þurfi að koma til þess að folk svelti í stórum stíl til að stjórvöld fari að sjá að gera verður eitthvað miklu róttækara og aðal atriðið er að efla íslenskan útflutningsiðnað. Skapa verður verðmæti en ekki ráða fólk þúsundum saman til að moka sandi úr einum sandkassa yfir í annan og svo tilbaka aftur.

Hörður Þórðarson, 9.3.2009 kl. 18:39

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég tel að laglínan geti átt vel við en ástandið mun að öllum líkindum versna nú á þessu ári sem og hluta næsta árs. Ég trúi að þegar réttað hafi verið yfir fjárglæframönnum á næsta ári muni ástandið lagast til muna. Þangað til þurfum við að vera sterk og jákvæð.

Hilmar Gunnlaugsson, 9.3.2009 kl. 20:13

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég tek undir þetta. Við erum varla, mörg hver, byrjuð að sjá kreppuna. Hrædd um að margir þeir sem eru að gefa sig að stjórnmálum í dag geri sér litla grein fyrir viðfangsefnunum framundan.

Það eru gríðarlegar skattahækkunar framundan og blóðugur niðurskurður. Ég tek undir það með Hilmari að við þurfum að vera sterk. Ég vil að bíðum með að vera jákvæð þangað til að farið koma glæpamönnum í hendur réttvísinnar

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 9.3.2009 kl. 22:25

5 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Mér finnst nú Skallagrímur full bjartsýnn að gefa í skyn að eitthvað batni með vorinu. Ætli það líði ekki ögn fleiri mánuðir áður en eitthvað fer að lagast. Samt stend ég í þeirri trú að við verðum á uppleið meðan aðrar og stærri þjóðir verði enn á niðurleið.

Svo er hann líka fullbjartsýnn þegar hann segir að skattborgarar borgi ekki fyrir þessi fjögur þúsund störf sem ríkið er að "skapa". Bjartsýnin felst í því að trúa því virkilega að menn sjái ekki í gegnum bullið.

Ingvar Valgeirsson, 10.3.2009 kl. 09:54

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband