Traust sett á gullfiskaminni kjósenda

Skv. heimildum Fréttablaðsins er Vilhjálmur búinn að fá ráðleggingar hjá yfirblýantsnagaranum í Seðlabankanum varðandi næstu leiki í stöðunni. Næsti leikur er nefnilega sá að leika bara alls ekki neitt og láta lítið á sér bera. Treysta svo á að fólk gleymi þessum vitleysisgangi og klaufalegu lygaþvælu sem allra fyrst.

Gullfiskaminni kjósenda er besti vinur ónýtra og spilltra stjórnmálamanna.


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Gullfiskaminnið hefur komið sér vel fyrir sjalftektarflokkinn áratugum saman og þeir vita vel að flestir verða löngu búnir að gleyma þessu í næstu kosningum.. við skulum reyna að sjá til þess að þetta gleymist aldrei.

Óskar Þorkelsson, 11.2.2008 kl. 11:59

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Mér finnst byrjunin á þessari færslu vera ákaflega mikilvæg - "skv. heimildum Fréttablaðsins".

Ætli það sé einn af heimildarmönnunum sem minnst er á hér?

Ingvar Valgeirsson, 11.2.2008 kl. 15:14

4 Smámynd: Haukur Nikulásson

Fullkomlega gilt sjónarmið Valli um mannlega þáttinn. Ég skrifa athugasemd á þína síðu.

Haukur Nikulásson, 11.2.2008 kl. 15:57

5 identicon

hafa menn ekkert að gera nema að velta sér upp úr málum annara

eg (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 16:46

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður verður ná að hafa gullfiskamynnið á allavegu,hvað með vinstri menn/eiga Þeir ekkert i þessu,bara stykk frý/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 11.2.2008 kl. 18:00

7 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Svolítið gaman að þegar menn komast i rökþrot!!! kalla þeir mann hálvita/mjög skinsamlegt eða hitt þá heldur/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 11.2.2008 kl. 22:14

8 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Sjálftektarflokkinn.... Ég lenti í því fyrir mörgum árum síðan að vera að vinna grein eða auglýsingu um sjálfstæðisflokkinn í Vestmannaeyjum og skrifaði greinina þannig að á einum stað var þetta Sjálfsæðisflokkurinn. Þar sem ég var álitin vel vinstri sinnaður var þessu tekið eins og um viljandi "prentvillu“ væri að ræða.

En ég ætla að spá hér og get veðjað miklu um þetta. Villi viðutan á að vera sætur næstu mánuði, verður síðan gerður að sérstökum ráðunaut hjá sambandi sunnlenskra sveitafélaga, einskonar sendiherra gagnvart Færeyjum og Grænlandi með Árna Johnssen sem sérlegan ráðunaut og hverfur af stjórnmálasviðinu af því að hann hefur svo mikið að gera við að láta grænlendinga sætta sig við að klamedýa sé landlæg. Síðar verður hann gerður að sérlegum ráðunaut Færeyinga í sveitarstjórnarmálum alveg eins og halldór Ásgrímsson sem enginn nennir að muna eftir er í einhverri aumri samnorrænni ráðuneytisnefnd sem meira að segja svíarnmuna ekki hvað heitir. Né hver borgar nefndinni fyrir að vera til. En það er euro eitthvað og höfundur mesta þjófnaðar Íslandssögunnar er kátur með starfið.

Ævar Rafn Kjartansson, 12.2.2008 kl. 01:04

9 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég er nú ekki sérstaklega hrifinn af því að menn kalli hvern annan einhverjum nöfnum hérna en hef þó í prinsippinu látið allar athugasemdir standa. Sjálfur hef ég fengið hálfvitastimpilinn á einhverjar athugasemdir á minni síðu og látið þær bara standa.

Gunnar Þór, ég var líka einn af hálfvitunum í Sjálfstæðisflokknum. Núna tel ég mig hafa meira vit en á meðan ég tilheyrði þeim flokki. Ég fór nefnilega að hugsa fyrir síðustu alþingiskosningar fyrir hverja sá flokkur var eiginlega til og líkaði ekki niðurstaðan. Stærsta eina ástæðan var sú að flokksforystan í heild sinni vann ötullega að því að koma dæmdum þjófi aftur á þing og það var meira en ég þoldi af heiðarleika á þeim bæ.

Haukur Nikulásson, 12.2.2008 kl. 08:43

10 Smámynd: Haukur Nikulásson

Því má bæta við dómgreind mín um íhaldið brást alls ekki. Þeir hafa stolið undan megninu af verðmætum eigna á varnarsvæðinu með klækjum og refshætti og þar er um að ræða mesta þjófnað Íslandssögunnar að mínu mati.

Auk þess var tilraunin til að stela helstu eignum og verðmætum Orkuveitunnar næstum því gengin í gegn og þar á eftir að koma réttlætinu yfir þá stjórnendur fyrirtækisins sem enn sitja þrátt fyrir að hafa ætlað að stela fyrirtækinu sem þeim var trúað fyrir.

Ég tel að engan þurfi að undra að ég telji tímabært að leggja niður flokk sem er að verða eins innrættur og hópur af nígerískum bréfabófum. 

Haukur Nikulásson, 12.2.2008 kl. 08:50

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála þér Haukur, er líka ein af þessum hálfvitum sem hætti að styðja ræningjana.  En fann flokk sem hentar mér betur.  Vonandi róterast stjórnmálin meira og verða hreinskiptari í framhaldinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 11:48

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband