9.3.2009 | 16:18
Minnimáttarkennd íslendinga dúkkar upp eftir stærilæti dauðans
Mér finnst aulagangurinn í rannsókn okkar séríslensku vandamála með endemum. Allt frá því að Glitni var sparkað niður og til dagsins í dag hefur ekkert verið gert af viti til að ráðast að vandamálunum eða rannsaka rökstuddan grun um efnahagsglæpi.
Á einhvern undarlegan hátt virðist miðaldra norsk kona búsett í Noregi allt í einu verða að einhverjum allsherjar bjargvætti í þessum málum þótt hundruð íslendinga hafi haft hátt um þessi mál í marga mánuði. Þessu má hiklaust kenna fjölmiðlunum um. Ennþá tekst þeim að upphefja fólk og gera að dýrlingum og goðsögnum út á eitt viðtal í sjónvarpi. Er ykkur sjálfrátt með þetta?
Ég er ennþá að jafna mig á ráðningu norska seðlabankastjórans, sem ekki talar íslensku og þá á að bæta um betur og ráða annan norðmann í kvenmannslíki til rannsóknarstarfa.
Yfir þetta er bara eitt orð: Minnimáttarkennd!
Eva Joly ráðleggur ríkisstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Hvað kemur málinu við hvort hún er miðaldra eður ei. Hún er kona með þá þekkingu sem við þurfum. Við þurfum ekki alltaf að setja okkar alkunna stærilæti og finna upp hjólið. Tökum fagnandi á móti fólki sem hefur þessa reynslu. Við höfum sem betur fer ekki verið að rannsaka spillingarmál af þessarri stærðargráðu fyrr.
Hanna (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 16:25
Hvað ertu eitthvað hræddur við miðaldra konu ? Konu sem getur kannski hjálpað hræddri og hrokafullri þjóð að rísa á lappirnar ?
Heiður (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 16:42
Þessi þekking er til staðar. Það eru 320.000 manns á þessari eyju. Svona málflutningur er í stíl við það að fjöldi fólks hélt að það gæti enginn stjórnað Seðlabankanum nema Davíð.
Ég er ekki að gera neitt sérstakt úr því að þetta sé miðaldra eða kona heldur mállaus útlendingur. Hvernig er hægt að gera kröfur um að sinna starfi af viti nema kunna a.m.k. málið sem talað er á staðnum? Með þessum rökum treystið þið sama fólki til að lesa íslenskar bókmenntir, skilja til fulls og vinna úr því lærða ritgerð.
Ég get ekki aðstoðað ykkur við að losna við minnimáttarkenndina Hanna og Heiður.
Haukur Nikulásson, 9.3.2009 kl. 16:56
Þessi kona er ekki hrædd við hvítflibbaglæpona, hún er með stálhnefa (þó hún sé miðaldra) sem enginn Íslendingur er með. Henni hefur verið hótað lífláti í störfum sínum en hvergi bangin og hefur dröslað glæponum bak við lás og slá. Þetta er kona mér að skapi annað en íslenskar gungur með silkihanska
Finnur Bárðarson, 9.3.2009 kl. 16:59
Hvað segiru Haukur, ertu kannski Sjálfstæðismaður ?
Allveg ótrúlegt hversu margir Íslendingar eru ennþá með " Ísland best í heimi " brennt í höfuðið á sér.
Við erum búin að skuldsetja okkur svo gífurlega að mér finnst bara ekki neitt að því að fá hjálp frá þeim erlendum aðilum sem eru í boði til að draga þá sem bera hvað mesta ábyrgð á þessu til sakar og hjálpa okkur að ná föstum tökum á fjármálakerfinu enn á ný.
Svo einfalt er það !
Arnar (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 17:11
Arnar, er eitthvað erfitt að skilja að það sé talsvert mál að fara yfir pappíra, tölvupósta og ýmislegt annað sem allt er á íslensku?
Haukur Nikulásson, 9.3.2009 kl. 17:13
Spurning hver sé með minnimáttarkennd.
Hanna (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 17:16
Hóhóhó heldur þú kallinn minn að öll þessi skjöl séu á íslensku. Þessi samskipti við alla þá erlendu aðila sem þessir blessuðu útrásarvíkingar fengu hjálp hjá. Líklega hafa þeir allir farið á íslenskunámskeið þessar elskur í Sviss, Luxemburg og á skattaparadísareyjunum.
Hanna (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 17:20
Dæs!
Haukur Nikulásson, 9.3.2009 kl. 17:33
Haukur ég segi stundum svona í mínum svörum, dæs :)
Kveðja
Finnur Bárðarson, 9.3.2009 kl. 18:10
Thad er ekki nóg ad hafa thekkinguna ef ad kjarkinn vantar.
Sporðdrekinn, 9.3.2009 kl. 18:27
Finnur, fyrirgefðu mér orðaþjófnaðinn.
Eins og ég hef gaman að góðum rökræðum þá fara þær stundum í þann farveg að verða ekki nógu áhugaverðar. Mér finnst það ódýr rök að við séum ekki fær um að vinna okkar mál sjálf. Slík minnimáttarkennd eru hinar öfgarnar við stærilætið sem gekk yfir þjóðina áður.
Flest okkar viljum við staðsetja okkur í meðalveginum sem virðist bara ekki fá neitt pláss þessa dagana. Þessi þjóð á ekki að upphefja skort á sjálfstrausti til góðra verka.
Haukur Nikulásson, 9.3.2009 kl. 18:30
Haukur, málið er nú bara það, að þú hefur engan áhuga á því að hér fari fram nein rannsókn á efnahagsbrotum, enda passar það svosem ágætlega við skoðanir þínar á efnahagsrannsóknum í gegnum tíðina.
tiltvitnun. (http://haukurn.blog.is/blog/haukurn/entry/560802/)
"Það er morgunljóst að útgjöld ríkisins í þessu máli eru þjóðinni til stórtjóns. Hér hefur hundruðum milljóna verið varið í málarekstur sem ekkert hefst upp úr og sannar fyrir venjulegu fólki að tilefnið var lítið sem ekkert í raun og veru. Lögregluaðgerðir, rannsókn og annað tilheyrandi hefur skaðað íslenska hagsmuni verulega, bæði ríkið og fyrirtæki Baugsmanna. Það græddi enginn neitt á þessu sorglega máli, nema lögfræðingarnir!
Það er sorglegt að valdhafar á hverjum tíma skuli geta beitt embættismönnum fyrir sig í óvildar- og hefndarskyni og það þarf að koma í veg fyrir slíka misnotkun valds eins og hér er raunin.
Davíð Oddsson, Björn Bjarnason, Jón Steinar Gunnlaugsson og Styrmir Gunnarsson eru arkitektar að þessu svínaríi með ofsóknaræði sínu á hendur Baugsfeðgum. Þeir uppskera... hmmm... ekkert nema skömmina af því að hafa ýtt þessu máli áfram leynt og ljóst. "
Ingólfur Þór Guðmundsson, 9.3.2009 kl. 18:32
Og miðað við þetta, þá er mér það óskiljanlegt að þú skulir halda að það séu til óhlutdrægir rannsóknarmenn á Íslandi, fyrst annarhver maður að þínu mati er Hundur í Bandi Davíðs Oddssonar og Björns Bjarnasonar.
Ingólfur Þór Guðmundsson, 9.3.2009 kl. 18:37
Ingólfur,
Það er alrangt að ég vilji ekki að menn séu skoðaðir. Það kemur hvergi fram í mínu máli og þú getur þess vegna vitnað til þeirra pistla líka. Vandamálið er að það er aðgengilegra að fylgjast með stjórnmálamönnunum heldur en auðmönnunum og því erfiðara að dæma þá án gildra gagna. Á þessum vettvangi kýs ég að verða ekki sérstök uppspretta meiðyrðamála.
6 ára rannsókn og eltingarleikur við Baug hefur ekki skilað neinu sem heitið getur og er ennþá bara klúður og einelti.Ég gef Baugi þó ekkert heilbrigðisvottorð ef út í það er farið. Ég hef ekki neinar forsendur til að ákveða það. Ég get þó ákveðið haldið því fram að einkavinir Halldórs og Davíðs eru ennþá óskoðaðir með öllu. Ég ætla ekki að hirða um að nefna þá, því það eru nánast allir hinir auðmennirnir. Ástæðan: Þeir tilheyrðu þeim sem voru stjórnvöldum þóknanlegir og í "talsambandi" við valdamennina.
Ég skyldi glaður taka að mér að rannsaka þetta mál og velja með mér hóp manna og kvenna sem getur það. Ef það er eitthvað sem ég hef sérstakt óþol fyrir þá eru það þjófar, siðblindingjar og spilltir stjórnmálamenn. Ég tel að það sé nokkuð síðan það kom grundvöllur til að yfirheyra þá flesta vegna rökstudds grun um misferli.
Haukur Nikulásson, 9.3.2009 kl. 21:34
Er þessvegna ekki um að gera að fá erlendan aðila til þess að stjórna rannsókn á þessum málum, alveg sama hvort um er að ræða stjórnmálamenn eða auðmenn, þó svo að hún sé miðaldra kona sem ekki talar íslensku ?
Það að hún tali ekki íslensku hefur í raun ekkert að segja við rannsókn málsins.
Svo er hinn punkturinn, að með því að fá erlendan aðila þá værum við einmitt að koma í veg fyrir að sá aðili sé á vegum Björns Bjarnasonar eða Davíðs Oddssonar eins og þú ert hræddur við, og einmitt ekki tengd stjórnmála eða auðmönnum á nokkurn hátt.
þannig að þetta hlýtur að vera alveg ídeal að fá ótengdan aðila til þess að sjá um málið.
Ingólfur Þór Guðmundsson, 9.3.2009 kl. 22:14