16.2.2009 | 07:43
Hver eru pólitísk afrek Ingibjargar?
Ég hef stundum velt fyrir mér hverju sumir okkar stjórnmálamanna hafa áorkað sem stjórnmálamenn og hvort maður myndi vera stoltur af þeim verkum?
Ég satt að segja hnýt ekki um neitt sem kalla mætti afrek hjá Ingibjörgu annað en að komast með sjálfa sig í efstu tröppu Kvennalistans og Samfylkingarinnar sem formaður.
Ég tel það engin afrek í sjálfu sér að skipa vinkonur sínar í helst allar stöður t.d. Sigríði Dúnu sem sendiherra í Suður-Afríku eða að halda áfram bröltinu við að koma Íslandi í Öryggisráð SÞ með pönnukökuveislu. Einnig þykir mér lítt til borgarstjórnartíma hennar koma. Hver voru eiginlega pólitísku afrekin hennar? Mér er helst í minni öfga kvennapólítík í formi misréttis þeim til handa.
Ég sé ekkert athugavert við að fólk bjóði sig fram á móti manneskju sem var stýrimaður í brúnni þegar öllu var siglt í strand. Hvað gengur að íslendingum þegar ekki má lengur skipta út óhæfu fólki?
Jóni frjálst að láta reyna á fylgið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:44 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Var einmitt að velta þessu fyrir mér um helgina, þ.e.a.s. hver raunveruleg afrek og raunverulegar stefnur ráðamanna okkar eru. Augljóst er hvar við höfum t.d. Steingrím og getum því valið um að kjósa hann út frá málefnalegum forsendum. En hvar höfum við Ingibjörgu og hvar höfum við Geir. Fyrir hvað stendur t.d. Geir nákvæmlega? Á hann sér einhver "hjartans málefni" er hann berst eða hefur barist fyrir? Sagðist hann einhvern tíman ætla að laga eitthvað eða breyta einhverju? Nei hann sagði bara ég er traustur kjósið mig. Ingibjörg lofaði hins vegar öllu mögulegu en hefur svikið það allt saman. Ég held að hún fatti það ekki einu sinni sjálf og ekki fattar fólkið hennar það, slík er persónudýrkunin. T.d. lofaði hún kynjajöfnuði við laun opinbera starfsmanna. Gaf út sér bækling með málefninu með brosandi mynd af sér framan á og sendi á allar konur er starfa fyrir ríkið og bað um atkvæði þeirra. En hvað gerðist er ljósmæður báðu um leiðréttingu, ljósmæður sem eru örugglega ein minnsta stétt landsins, nei stelpur þetta er ekki rétti tíminn og ekki orð um það meir ég er "busy" í útlöndum og nenni ekki að ræða þetta frekar.
Þetta eru bara atvinnu pólitíkusar sem eiga að gera þjóðinni þann greiða að fara frá. Nú verðum við að fá fólk sem ann landi sínu og þjóð númer eitt. Hver það er veit ég ekki. Það er nú bara stóra vandamálið.
Halla Rut , 16.2.2009 kl. 08:18
Því miður hefur Ingibjörg ekki sýnt neitt annað en það að hún er klár í gaspra um hitt og þetta og sýna voða eldmóð í alls kyns loforðum og heitstrengingum en svo er engan framkvæmd á málum þegar komin er tími til að taka til hendinni. Það eina sem hún gerir betur en að lofa öllu mögulegu er að svíkja það sem hún lofar. Ég held að það væri samfylkingunni hollt ef hún myndi sjá sóma sinn í að hverfa frá.
Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson, 16.2.2009 kl. 08:24
Varðandi borgarstjórn Ingibjargar er kannski rétt að minna á að það var lyft grettistaki í málefnum barna. T.d. voru leikskólapláss margfölduð og allir skólar einssetnir. Félagsþjónusta var efld og komið á nýju fyrirkomulagi varðandi félagslegar leiguíbúðir. Þetta er nú bara brot af því sem ég utanbæjar maður man eftir. En eru það ekki samfylkingarfólk sem á að ráða þessu sjálft. Ef það telur Ingibjörgu besta kostinn þá velur það Ingibjörgu á Landsþinginu. Sé ekki að það séu aðrir frambjóðendur sem fólk almennt sættir sig við.
Magnús Helgi Björgvinsson, 16.2.2009 kl. 08:57
Magnús. ekki gleyma að hún setti útsvarið í botn og lagði á auka skatt sem ekki hafði áður verið til og keyrði Reykjavíkur borg niður í skuldafen. svakalegur árangur.
Fannar frá Rifi, 16.2.2009 kl. 11:06
Haukur,
ég velti fyrir mér hvort fyrir liggja einhver stór pólitísk vígi að kljást við þessa dagana - þ.e. önnur en að berjast fyrir eða gegn ESB aðild? Baráttan fyrir "nýju Íslandi" er dæmd til þess að mistakast vegna þess að of mikið er lagt undir (ekki ósvipað og þegar slagorðið um reyklaust Ísland árið 2000 var sett fram) - uppreisn andstæðinga frjálshyggjunnar mun í besta falli halda aftur af efanhagslegri endurreisn (seinka henni) - baráttan gegn flokksræðinu er of óvægin, sem verður mögulega til þess að flokksræðið standi uppi sem sigurvegari.
Það er eðlilegt að hafna of sterkum meðulum, því þrátt fyrir allt er núverandi ástand afleiðing þróunar sem afar margir hafa komið að. Það er nefnilega ekki alvont en samt komið að nokkurri endurnýjun. Endurbætur mega ekki drukkna í söng um algera kúvendingu.
Ólafur Als, 16.2.2009 kl. 13:07
Magnús: Það er nú einmitt þessi einsetning skóla sem hefur verið að lama skólakerfið alla tíð síðan. Hvað var svona gott við þetta? Kostnaðurinn nærri því tvöfaldaðist, mun fleiri börn þurfa nú að vera í hverjum bekk, það hefur verið kennaraskortur, húsnæði þarf að vera mun stærra og stendur ónotað hálfan daginn og svo mætti lengi telja. Ofsalega fallegt í tali og á blaði en algjörlega stjörnuvitlaus stefna sem skilar engu.
Halla Rut , 16.2.2009 kl. 17:39
Einsetning hafði stóra kosti og jafnvel enn stærri galla. R-listinn (Verðlistinn?) safnaði skuldum eins og enginn væri morgundagurinn.
En mér sýnist Jón Baldvin (bróðir Alec, William og Stephen?) sýna svolítið að Haarde fór ekki með fleipur þegar hann kvað Samfó vera í tætlum.
Ingvar Valgeirsson, 17.2.2009 kl. 19:38