19.1.2009 | 09:57
Það gilda engin lög - Lögin eru nefnilega afnumin með lögum
Neyðarlögin sem ríkisstjórnin setti var bara til að halda völdum. Þau hafa ekki sýnt sig í að hafa haft annan tilgang. Það þurfti ekki að breyta lögum til að halda úti bankastarfsemi. Færir skiptastjórar hefðu séð um það með glans ekkert síður en "skilanefndir". Munurinn er allavega sá að skiptastjórar vita hvað þeir eru að gera en skilanefndirnar ekki. Nei, megintilgangurinn var að stela.
Það má líka spyrja til hvers skilanefndirnar eru? Jú, þær eru til að tryggja að ekki verði sótt að gamla bankanum með kröfur á meðan ríkið rakar út eignunum yfir í nýju ríkisbankana. Tveggja ára umþóttunartími þótti hæfilegur til að ljúka því verki.
Maður fyllist orðið magnleysi þegar hugsað er til þess að ríkisstjórnin og auðmennirnir virðast endalaust halda um völd og peninga þó allt sé í kaldakoli. Hvað erum við eiginlega að hugsa? Hversu skaplaus er þessi þjóð? - Ætlar fólk endalaust að kóa með handónýtu liði?
Hvað skyldi vera langt í hreina og klára uppreisn gegn valdasýkinni?
Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Ég efast um að það sé lang í að allt fari hér í kalda kol.
Offari, 19.1.2009 kl. 10:00
Mikið finn ég sterkan samhljóm með tilfinningum þínum sem skína í gegnum þessa færslu. Ég hef orðið af því stórar áhyggjur hvert stefnir. Kemst oftar og oftar að þeirri niðurstöðu a það verði bara í alvöru að grípa til aðgerða eins og þeirra að hertaka alþingishúsið. Hélt að ég ætti aldrei eftir að hugsa þetta, því síður að segja það upphátt og allrasíst að skrifa það þar sem hver sem er getur lesið það.
En ég er búin að því og það er til marks um skelfinguna sem ég er gripin þegar ég horfi á útkomuna úr öllu dæminu sem við höfum aðgang að og hugmyndinni um það sem hún hlýtur að þýða.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.1.2009 kl. 02:07
Þegar fólk hefur misst vinnuna núna um næstu og þarnæstu mánaðarmót er ég hræddur um að ekki verði boðað til friðsamlegra mótmæla. Hvort Alþingi verði "hertekið" og þeim er þar sitja gert að hundskast út ( hent út) skal ég ekki segja um eða hvort stjórnarráðið verði fyrir álíka verknaði veit ég ekki. Þegar þetta fólk hefur tíma og er ekki að sinna vinnu - til að borga af lánum sem hækka sjálfkrafa - sér að ekkert er búið að gera og ekkert hefur verið gert veit ég ekki, en ég hef sagt það áður að ef svo fer að ég missi mína vinnu, og ekkert hefur gerst þá verð ég "ekki ábyrgur gerða minna" eins og þar stendur.
Ég er farinn að halda að Geir og hans slekti reikini með að þetta "lagist allt af sjálfu sér" og meðan er verið að hylma yfir, fela slóðir, nota tætara, fegra hluti, bjarga þeim sem bjargað verður o.s. frv.
Hvað er til ráða, ekkk hlustar Geir, sagðist ekki vita hvað fólk vildi segja, þegar hann komst ekki í Kryddsíldina.
Svo er annað Haukur, ég skulda ekki neinum neitt, er ekki með myntkörfulán á bílnum mínum, síðasta greiðsla um næstu mánaðarmót, ekki neitt húsnæðislán sem hækkar sjálfkrafa, bý í íbúð sem ég leigi (frekar ódýrt er mér sagt) og mín líðan er ekki sérlega góð því ég vorkenni fólki virkilega sem fær gíróseðlana inn um lúgurnar hjá sér daglega og þeir bara hækka og hækka en enga aukavinnu að fá til að mæta því, ég er með samviskubit stundum yfir að vera svona heppinn og það nagar mig. En aðra daga þá verið er að tala um ofurflottu jeppana og húsbílana sem fólk er enn að borga af þá er ekki mikil vorkunn......en gagnvart barnafjölskyldum, einstæðum foreldrum sem hafa kannski verið að koma sér í skjól af leigumarkaðnum með að kaupa húsnæði og spennt bogann alveg í botn, þessu fólki vorkenni ég og finn til með, það sér fram á að ganga bara út.
Er þetta meðvirkni eða aumingjaskapur.....ég veit það ekki en ég á stundum ekki góða daga þó ég sitji ekki í súpunni. Ég sé ekki fram á að þurfa að skifta um húsnæði þó ég fari á bætur. Ekki sé ég fram að missa bílinn þó ég taki hann kannski af númerum þar til ég verð búinn að fá vinnu aftur. Það eru einu mótvægisaðgerðir sem ég sé fram á að gera.
En samt er ég pissst út í stjórnvöld (ríkisstjórnina, fjármálaeftirlitið og stjórn seðlabankanns) fyrir að hafa ekki þekkingu á hvað bankarnir gerðu með því að láta þá fella niður byndiskylduna en jafnframt flagga ríkisábyrgð á bankanum þegar þeir söfnuðu peningum á innlánsreikninga eða fengu lán erlendis.
Þú fyrirgefur þó þetta sé í lengra lagi....ég bara "missti" mig.
Sverrir Einarsson, 20.1.2009 kl. 05:18
Sverrir, ég skal svara þér: Það er bæði meðvirkni og aumingjaskapur. Þó er þetta í bland við að okkur hefur kennt að virða friðinn og þess vegna er þessi þjóð ekki að gera uppreisn... ennþá. En ef þessi ríkisstjórn fer ekki frá og auðmennirnir verða teknir til alvarlegrar "skoðunar" þá er ég hræddur um að liðið missi sig og þurfi hreint ekkert að skammast sín fyrir það.
Það koma þeir tímar reglulega í mannkynssögunni að það er sérstök þörf á að taka til hendinni í þjóðfélagsmálum og stundum þannig að sársauki fylgi því. Mér þykir eiginlega leitt að það skuli þurfa að vera nú. Þegar heimatílbúin vandamál af þessari stærðargráðu koma er óafsakanlegt að horfa á og gera ekkert af ótta við að verða úthrópaður byltingarsinni og kommi. Nýfrjálshyggja græðgispungana er meiri skaðvaldur en svo að þetta sé hægt að líða lengur, hvað þá að stjórnvöldin sem skópu skrýmslið geti setið áfram vegna þess að ekki megi persónugera vandann. Eins og Fjalar Sigurðarson sagði, þá persónugerir þetta pakk hins vegar lausnina.
Haukur Nikulásson, 20.1.2009 kl. 08:46
Tek algjörlega undir hjá þér Haukur. 'Eg hef líka svona vonda tilfinningu um að það sé verið að féfletta almenning með góðri aðstoð stjórnvalda. Mál að linni bylting eður ei. Það er komið nóg.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2009 kl. 08:55