Rikisfjölmiðillinn má alveg vera óhlutdrægari en þetta

Ég tel að mjög margir hlýði á ræður forsætisráðherra á gamlaárskvöldi og forsetans á nýársdag. Það er yfirleitt ekki mikið í þessum ræðum annað en að tala hlýlega og uppörvandi til þjóðarinnar og guma af afrekum liðins árs.

Hefðbundið hefur Morgunblaðið verið litað Sjálfstæðisflokknum eiginlega allar götur frá stofnun og fólk oftast sætt sig við það. En nú er hægt að gera aðrar kröfur til þessa miðils því hann er í raun orðinn ríkisfjölmiðill vegna þess að honum er beinlínis haldið á floti af ríkisbankanum nýja Glitni.

Með þetta í huga er athyglisvert að sjá hvernig Mogginn fjallar annars vegar um ræðu forsætisráðherrans í Sjálfstæðisflokknum og forsetans úr gamla Alþýðuandalaginu.

Geir Haarde fær 1046 orða grein um ræðu sína og tilvitnun í hana á meðan forsetinn fær 101 orð. Pólitískt er hægt að rífast endalaust um það hvor ræðan er betri eða bitastæðari en Morgunblaðið fær falleinkunn fyrir það hversu mjög hann litast af því að stjórnast af ónýtum pótintátum Sjálfstæðisflokksins. Mogganum er beinlínis í mun að láta sjá að hann fyrirlítur forsetann eins og aðrir Sjálfstæðismenn.

Stór hluti ræðu Geirs í gærkvöldi fór í að stilla sér upp við hlið Guðs, látna biskupsins og silfurliðsins úr handboltanum. Sorrý Geir, þetta er bara sorglegt PR múv! (Kristján, þetta er vond fjölmiðlaráðgjöf hjá þér!).

Ég hef aldrei kosið forsetann, ég hef hins vegar oft kosið Geir þó það sé eftirsjá í því núna. 


mbl.is Þjóðarátak nýrrar sóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta er raunin Gísli. Það er alltaf svo mikil ákefð í því að skipa sér í eitthvert lið. Meðvitaður um þetta er ég eiginlega orðinn einn á báti í pólitísku tilliti.

Manni var kennt sem Sjálfstæðismanni að fyrirlíta forsetann sem höfuandstæðing á sínum tíma. Sagan hefur hins vegar snúið þessu dæmi við. Ég tel forsetann hafa bara staðið sig eins vel og hægt er að ætlast til. Hann á sína hégómlegu spretti en ég skynja ekki í honum ekki sömu gerð af valdagræðgi og hjá manninum í svörtulöftum sem með hefnigirninni komu öllu ótímabært í kaldakol.

Gleðilegt ár Gísli (og Björg) vonast til að rekast á ykkur fljótlega. 

Haukur Nikulásson, 2.1.2009 kl. 02:21

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Gleðilegt ár, Haukur!

Mér fannst reyndar Geir segja meira en Ólafur og innihald pistilsins efnismeira. Báðir blöðruðu þó hálfgerða froðu.

Jú, Geir var kannski svolítið að stilla sér upp við hlið einhverra, rétt eins og það mætti líka segja að Ólafur hafi verið að stilla sér upp við hlið Obama, ef í það er farið. Enda væri agalegt ef hann færi að taka meira út á handboltaliðið, þar er hann löngu búinn með kvótann og kominn með yfirdrátt.

Mér finnst reyndar Mogginn hafa verið gagnrýninn á Sjallana síðustu árin, jafnvel lagt til í ritstjórapistlum að flokkurinn breyti um stefnu í hinum og þessum málum og annað í þeim dúr.

En hlutdrægnin fannst mér ívið meiri í yfirlitsannál Stöðvar tvö - það var eiginlega hálfvandræðalegt.

Ingvar Valgeirsson, 2.1.2009 kl. 17:49

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 264913

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband