14.11.2008 | 09:02
RÚV bjóði upp á fréttamenn með skilning á viðfangsefninu
Mér finnst leiðinlegt að horfa upp á fréttamenn opinbera vankunnáttu sína á viðfangsefnum í viðtölum eins og því sem Sigmar átti við Björgólf.
Ég er farinn að skilja hvers vegna fólk treystir sér ekki til að mæta í viðtöl hjá fréttamönnum sem hafa haft atvinnu af því í gegnum tíðina að tala fremur en að hlusta og skilja. Reyndar tókst Björgólfi nokkurn veginn að koma frá sér staðreyndum málsins þrátt fyrir að Sigmar reyndi að gjamma hann út í horn. Vandamál Sigmars er að skilja ekki helstu hugtök og hann var niðurlægður þegar Björgólfur þurfti að skýra fyrir honum á barnamáli muninn á greiðsluþroti og gjaldþroti.
Fréttamenn RÚV (og Egill Helgason meðtalinn) eru ófærir um að vinna að vitlegum fréttum um fjármál, það hefur sannarlega sýnt sig. Þeir eru nánast nothæfir í það eitt að atast í fólki þegar almenningur vill fá útrás fyrir reiði, hvort sem hún er verðskulduð eða ekki.
Íslendingar hafa nú vikum saman fengið að hlusta á málflutning allra helstu aðila að hinu séríslenska bankahruni og fyrir mér er niðurstaðan alveg á hreinu. Þetta fólk á skilyrðislaust að víkja af vettvangi sem ýmist óhæft, sinnulaust, dómgreindarlaust og jafnvel sekt um valdníðslu: Davíð Oddsson, Geir Haarde, Björgvin G. Sigurðsson, Árni Mathiesen, Jónas Fr. Jónsson, stjórn Seðlabanka Íslands í heild sinni sem og stjórn Fjármálaeftirlitsins. Ríkisstjórnin er síðan sek um skort á eftirliti, dómgreindarbresti og sinnuleysi.
Það er óþolandi með öllu að þetta sama fólk haldi áfram að ráðskast með öll mál eftir að hafa komið öllu á rassgatið.
Skuldir lenda ekki á þjóðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:06 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Sammála....það verður líka fróðlegt að heyra hvað fram fer á Borgarafundinum n.k mánudagksvöld á Nasa klukkan 20.00 en þar munu einmitt fjö0lmiðlamenn sitja í panel og svara knýjandi spurningum. Fjölmiðlabatteríið er ekki undanskilið að taka ábyrgð....og eins og öllum er nú ljóst eftir t.d fréttir af mótmælunum sl laugardag eru fréttstofurnar síður en svo hlutlausar og greinilegt í sumum tilvikum að sjá hverra erinda er gengið. Svo ég fagna öllum umræðum um þessi mál.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.11.2008 kl. 09:26
Kanski er þetta rétt hjá þér með fréttamennina, að þá hreinlega vanti þekkingu á umfjöllunarefninu... en ég er samt ekki sammála því að það sé svo mikill munur á gjaldþroti og greiðsluþroti í akkúrat þessu tilfelli. Kanski skildi Sigmar allveg munin á þessu tvennu en var í raun bara að segja að þetta væri sami hluturinn í tilfellinu með Landsbankann.
Það að kenna SÍ um að Landsbankin væri kominn í Greiðsluþrot er bara léleg afsökun. Þetta er ekki ólíkt því ef ég sé að ég er á leið í þrot og ég labbi til lánastofnunar og biðji um lán til að redda mér úr þeim erfiðleikum sem ég er í og ég fái neitun... Ég get ekki í kjölfarið sagt að ég hafi ekki orðið gjaldþrota heldur hafi ég komist í greiðsluþrot þar sem ég fékk ekki lán til að redda mér. Ég veit að þetta dæmi er ekki allveg eins en þetta sker dæmið svolítið niður í einfaldar einingar. Ég er bara mjög sáttur við að heyra Björgúlfsegja að 2000 milljarðar hafi verið til 30.sept. nú hafa þær eignir helmingast og því 1000 milljarðar eftir og við getum það bara á einfaldan hátt reddað þessum 600 milljörðum.. hann sagði nú nokkrum sinnum í viðtalinu að hann tæki ábyrgðina á sig í þessu máli. þegar hann var svo spurður hvernig hann tæki ábyrgðina á sig þá svaraði hann að hann væri leiður yfir þessu..... ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SAMA OG AÐ TAKA ÁBYRGÐINA Á SIG...... Hann er farinn á hausinn og þykist ekki vita hvorum meginn við "strikið" hann endar.
Stefán Þór Steindórsson, 14.11.2008 kl. 09:28
Svo maður beri aðeins í bætifláka fyrir Sigmar, þá er nauðsynlegt að skýra þessi hugtök út fyrir áhorfendum þó svo Sigmar hafi eflaust einhverja hugmynd um mismunandi merkingum hugtakanna.
Hinu er ég svo hjartanlega sammála þér um að allt þetta fólk sem þú taldir á ætti að finna sér eitthvað annað að gera.
Sigurjón Þórðarson, 14.11.2008 kl. 09:35
Stefán, takk fyrir innlitið.
Það er engin lygi að í lok september áttu bankarnir fyrir skuldum. Okkur almúganum þykir það nóg vitneskja þegar við biðjum um lán þegar okkur vantar lausafé. Þér hlýtur að finnast skrýtið að Glitnir sem bað um lán á fimmtudegi skuli knúið í þrot á mánudegi, fjórum dögum síðar! - Þætti þér eðlilegt að bankinn þinn afgreiddi þig persónulega svona? - Held ekki.
Með þessari aðför setti Davíð í gang hrun sem er ekki ósvipuð því að henda lítilli steinvölu í skriðu sem fer af stað og verður óvinnandi og æðir yfir allt sem fyrir verður. Í framhaldinu hætta öll önnur lögmál um "góðar" eignir að standast þar sem þær lenda undir skriðunni.
Þetta er raunverulega upphafið að hinu séríslenska hruni. Davíð Oddsson setti það af stað af þjóðkunnri illgirni í garð Jóns Ásgeirs og fékk Geir til að samþykkja illu heilli. Við hin þurfum svo að kyngja afleiðingunum með öllu því sem fylgir. Þessi atvikaröð hefur aldrei verið hrakin og verður ekki.
Haukur Nikulásson, 14.11.2008 kl. 09:44