Í boði hins látna... bílastæðasekt!

Starfsmenn Bílastæðasjóðs borgarinnar eru, á köflum, mjög kappsamir.

Það er eins og þeir þefi uppi fjölmennar útfarir og láti eins og þeir hafi komist í feita fiskitorfu og moka upp úr henni sektarmiða á alla þá bíla sem ekki eru í vandlega merktum bílastæðum. Ég tek fram að ég hef ekki lent í þessu sjálfur.

Það hefur lengi verið vitað að það eru ekki næg bílastæði við flestar kirkjur bæjarins þegar vel metið fólk er jarðsungið. Fylgir því aukin virðing við hinn látna að sekta þá sem eru viðstaddir jarðarförina?

Bílastæðasjóður á að láta þessa staði eiga sig við þessar athafnir. Hvernig voga þessir rukkarar að láta svona? Vita þeir ekki að helvíti er til? Því eru þeir að taka sénsinn?

Meðan ég man, er búið að sekta húseigandann í Þingholtunum fyrir að loka götunni með húsið sitt í flutningunum? Hversu margar stöðusektir fær hann?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Að mæta í jarðarför gefur engum leyfi til að leggja ólöglega.  Þetta er mikið vandamál, sérstaklega við Fríkirkjuna og Dómkirkjuna.  Mér finnst mjög vægt farið í sakirnar að skrifa bara sektarmiða.  Í sumum þessara tilfella ætti kranabíll betur við.  Sjálfur hef ég lokast inni með bíl við Kirkjuhvol þar sem tillitslaus jarðarfarargestur lokaði bíl minn inni.  Sjálfsagt óskaði ég honum vítisvistar á þessu momenti og það var ekkert sem sagði méri að hann væri við athöfn í Dómkirkjunni.  Bílnum hans var einfaldlega ólöglega lagt á meðan ég jós peningum í stöðumælinn.  Stöðuvörður sem kom á staðinn gerði ekkert annað en skrifa sektarmiða.  Benti mér góðfúslega á að kalla á lögreglu ef fjarlægja ætti bílinn.  Ekki kom til þess þar sem bíleigandinn kom stuttu síðar án þess svo mikið að biðjast afsökunar.  Mín skoðun eru sú að kirkjugestir verða einfaldlega að hlíta sömu reglum og aðrir.  Annað er út í hött.

Sveinn Ingi Lýðsson, 18.9.2007 kl. 10:38

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég votta þér samúð mín Sveinn. Aðstæður eru greinilega ekki eins hjá öllum.

Haukur Nikulásson, 18.9.2007 kl. 10:50

3 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Auðvitað er ekki hægt að gefa fólki aflátt vegna þess að það er í jarðarför.  Hvernig ætti það svo sem að vera í framkvæmd?

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 18.9.2007 kl. 11:07

4 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Það eru til sérstakar umferðarreglur sem snúa að líkfylgd, þar sem bannað er að rjúfa líkfylgd eða á anna hátt hindra för líkfylgdar. Hvers vegna má þá ekki hafa undanþágu vegna þessa?

Samkvæmt 8.gr. Umferðarlaga nr. 50 30. mars 1987.

Júlíus Sigurþórsson, 18.9.2007 kl. 15:53

5 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Það verður þá að sérmerkja alla bíla og hafa tiltæk bílastæði.  Venjan er núna að leggja þvers og kruss upp á gangstéttum og umferðaeyjum.  Það er eitthvað sem ekki gengur þó menn mæti í jarðarfarir.  Svo mikið er víst.

Sveinn Ingi Lýðsson, 18.9.2007 kl. 21:24

6 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Sveinn: Held að það blasi við hverjum manni þegar útför er. Þá mætti stöðmælavörðurinn bara ganga framhjá.

ps. svo er fáni í hálfa stöng ágætis vísbending fyrir þá sjóndöpru.

Júlíus Sigurþórsson, 19.9.2007 kl. 09:25

7 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Hvernig á stöðuvörðurinn að vita hvers bíll eigandi er í útför?

Sveinn Ingi Lýðsson, 19.9.2007 kl. 10:33

8 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Hann getur bara komið klukkutíma seinna, þegar athöfninni er lokið og þá sér hann þá sem ekki voru við athöfnina.

Júlíus Sigurþórsson, 19.9.2007 kl. 13:20

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 264929

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband