Blaðið hvetur til stóraukinna útgjalda í varnarmálum með ruglrökum

Ólafur Stephensen ritstjóri Blaðsins finnur að því að menn í bloggheimum kvarti yfir því að auka eigi útgjöld til varnarmála og telur það bara "söng" að margir okkar bloggaranna vilji sjá þessum peningum frekar varið til velferðamála af ýmsu tagi.

Það er með öllu ótækt að ritstjórinn beri varnarmál saman við jafn ólíka hluti og útgjöld til slökkviliðs og innbrotsvarna í húsum. Það má benda honum á að Ísland hefur ekki haft neina ástæðu til að vera með varnarlið. Jafnvel ekki einu sinni í kalda stríðinu. Það eru nefnilega enginn þannig auðæfi á Íslandi að það tæki því að hertaka þetta land eins og t.d. Írak þar sem bandaríkjamenn eru nú að dæla upp olíunni og stela í stórum stíl.

Ég vil ennfremur benda ritstjóranum á að það eru engin rök að halda því fram að aðrar þjóðir verji svo og svo miklu til varnarmála. Bæði er að þau hafa jú flest öll verið oftar í stríði en þau kæra sig um að telja upp, auk þess er Ísland eyríki sem hefur bestu náttúrlegu varnir sem hugsast getur: Heilt Atlantsshaf. Íslendingar eru einhver mesta friðsemdarþjóð veraldarsögunnar og við eigum að halda okkur á þeim stalli og helst hlutlausir með öllu. Hver vill núna verja aðgerðir bandaríkjamanna í Írak? Hvernig dettur ritstjóranum í hug að láta eins og allt að 22 milljarða útgjöld til varnarmála sé eitthvað ásættanlegt? Hver kenndi honum að fara með fjármuni?

Eina ógnin er hryðjuverkaógn vegna stuðnings Íslands við Íraksstríðið. Ef við berum gæfu til að koma okkur út af lista hinna viljugu þjóða og lýsa klárri andstöðu við þetta stríð sem farið var út í á tómum lygum er okkur að mestu borgið öryggislega séð. Okkur nægir að efla lögreglu og landhelgisgæslu í þessu sambandi.

Það er endalaust hægt að kaupa tryggingar gegn hverju sem er og ég er að vona að fleiri en ég sjái að hundruð milljóna útgjöld til varnarmála skila okkur engu svo lengi sem við höldum utanríkispólitík okkar á farvegi friðar fremur en afskiptasemi af málum þjóða sem við vitum ekkert um og eigum ekkert að skipta okkur af. 

Mér þykir við hæfi að ritstjóri Blaðsins velji nú þetta blogg til birtingar í blaðinu, þeir hafa áður leyft sér að birta blogginn mín á síðum blaðsins, stundum dag eftir dag. Núna óska ég beinlínis eftir því svo hin hliðin heyrist hjá þessu ágæta Blaði, helst óstytt!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Vel mælt Haukur /Kveðja Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 22.6.2007 kl. 23:30

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Heyr heyr

Óskar Þorkelsson, 23.6.2007 kl. 01:37

3 Smámynd: Sigurjón

Ég gæti ekki orðað þetta betur sjálfur.  Skál!

Sigurjón, 23.6.2007 kl. 02:48

4 Smámynd: halkatla

takk

halkatla, 23.6.2007 kl. 13:36

5 Smámynd: Þarfagreinir

Ég syng með hallelújakórnum, enda engu við þetta að bæta. Pottþétt rök.

Þarfagreinir, 23.6.2007 kl. 14:05

6 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Við skulum bara vona að General Björn Bjarnason nái þessu líka áður en hann nær að gera sérsveitina sína og hvítliðana að þúsund manna hjörð marserandi niður laugarveginn með vopn og flögg. Tilbúna til að takast á við náttúruverndarhryðjuverkamenn!

Ævar Rafn Kjartansson, 23.6.2007 kl. 21:09

7 Smámynd: Sigurjón

Já, það er verzt að LG skuli voga sér að skrifa ,,Coast Guard" á skipin sín.  Ferlegt alveg!

Svo er alveg nauðsynlegt að takast á við náttúruverndarhryðjuverkamenn og hampreykjandi hippalistapakk. 

Sigurjón, 24.6.2007 kl. 07:46

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband