Neysluvenjur íslendinga breyttust vegna veiðibannsins

Það er engum blöðum um það að fletta að neysluvenjur íslendinga hafa breyst það mikið að hvalkjöt verður líklega aldrei aftur matur hins almenna borgara.

Flestum íslendingum þótti hvalveiðibannið frekleg afskipti af okkar sjálfbæra veiðiskap. Hvalveiðar voru ekki stofninum hættulegar með tilliti til útrýmingarhættu. Samt sem áður hljótum við að viðurkenna að það sé of seint að ætla að fara í gamla farið aftur. Þvert á alla skynsemi er heimurinn almennt á móti hvalveiðum og ýmsir hópar vilja refsa okkur fyrir þessar veiðar. Auðvitað vekur það í okkur þrjóskuna við að láta segja sér fyrir verkum.

Sem krakka þótti mér hvalkjöt ekkert sérstaklega spennandi. Það þurfti að liggja í mjólk til að vera ætt og jafnvel þá var enn eitthvert skrýtið þráa- og fitubragð af þessu kjöti. Manni fannst alltaf þetta vera ódýr hallærismatur í virðingaröð á eftir næstum öllu öðru kjötmeti sem fékkst.

Einar K. Guðfinnsson tók nánast einhliða ákvörðun um endurnýjun hvalveiða fyrir vin sinn Kristján Loftsson. Ég hef ekki heyrt marga fleiri mæla með þessum veiðum, enda hljóta menn að sjá að það er lítið unnið með því að setja óseljanlegt hvalkjöt í frystigeymslur bara til að storka alþjóðasamfélaginu og sýna heiminum að við ráðum einhverju. Á móti sköðum við ferðamannaiðnaðinn og þar með tapa allir á endanum. 


mbl.is Íslendingar vilja ekki hrefnukjötið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Arnarsson

Það er einmitt hvimleið staðreynd, að Einar hafi tekið ákvörðunina án þess að leyfa einhverja umræðu í þjóðfélagi eða á þingi. Því þetta var stærri ákvörðun en margir vilja halda. 

Sveinn Arnarsson, 16.6.2007 kl. 09:24

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki er hægt að segja að þú sért vel upplýstur, mamma þín eða einhver annar hefur látið hvalkjötið liggja í mjólk, en það eru gamlar "kerlingabækur" til þess að losna við þráa - og lýsisbragð.  Og enn einu sinni á að "nota" það að ferðamanniðnaðurinn skaðist vegna hvalveiða.  Það eru til margar skýrslur sem segja hið gagnstæða og það eru barasta engin merki um skaðsemi.  Og svo má kannski minna á það að fyrirtæki í ferðamannaiðnaði eru þau fyrirtæki sem borga lægstu launin á Íslandi.

Jóhann Elíasson, 16.6.2007 kl. 09:39

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Jóhann, ég skil gremju þína í þessu máli hún skín í gegn um orðfæri þitt. Ég sé bara ekki lengur tilgang í hvalveiðum ef þjóðin hvorki étur þetta kjöt né selur. Til hvers er þá að veiða það? Til þjóna þvermóðskunni og sýna öðrum þjóðum fram á sjálfstæði okkar?

Ég hef ekki gefið mig út fyrir að vera sérstaklega "upplýstan" um hvalkjöt, verkun eða matreiðslu. Ég var bara að lýsa upplifun minni og áliti á þessum mat sem krakki.

Ég skil ekki allar röksemdarfærslurnar þínar um ferðamannaiðnaðinn. Viltu að við leggjum hann niður og látum þetta fólk allt í hvalveiðar og verkun til að hækka launin þeirra? 

Haukur Nikulásson, 16.6.2007 kl. 10:05

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

neysluvenjur íslendinga gerbreyttust á þessum tíma en ekki endilega vegna hvalveiðibannsins.. rollan fór halloka fyrir grís og fiðurfé.. nautgripir fóru að seljast sem kjötvara en ekki mjólkurframleiðsludýr.. pizzustaðir spruttu upp.. sennilega afleiðing hvalveiðibannsins    

fyrir 20 árum voru kannski 10 veitingastaðir í rvk.. í dag skipta þeir hundruðum.. neysluvenjurnar hreinlega breyttust almennt og hvalkjötsneysla innanlands hefði breyst með hvort sem er...

Óskar Þorkelsson, 16.6.2007 kl. 12:15

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 264913

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband