Hvað er besta íslenska dægurlagið? Hvað er besta erlenda dægurlagið?

Í dag er eiginlega ígildi föstudags þennan síðasta vetrardag. Af því tilefni langar mig að varpa þessum spurningum fyrir bloggara:

Hvað er besta íslenska dægurlag allra tíma?

Hvað er besta erlenda dægurlag allra tíma?

Ég tek svo saman lista og birti fljótlega.

Með bestu ósk um gleðilegt sumar! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Íslenska: Nína með Stebba og Eyva

Erlenda: Space Oddity með Bowie

Sniðugt framtak! :) 

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 18.4.2007 kl. 19:28

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég, ef mig skyldi kalla, segi Sæl og blessuð með Jolla og Kóla og Passage to Bangkok með Rush. Hrósa svo Fanneyju fyrir fádæma smekkvísi.

Gleðilegt sumar!

Ingvar Valgeirsson, 18.4.2007 kl. 21:44

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Rush hef ég vanmetið. Við ábendingu þína skoðaði ég þetta.

Haukur Nikulásson, 18.4.2007 kl. 22:33

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það þarf að hugsa vel um þetta.  Það erlenda lag sem mest áhrif hefur haft á mig svona í fljótu bratði er Wonderful World með Lúi Armstrong.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2007 kl. 12:06

5 Smámynd: Jens Guð

  Ég get ekki fest fingur á eitt íslenskt dægurlag sem það besta.  Þau lög sem mér þykir skemmtilegast að hlusta á eru ekki góð út frá fagurfræðilegu mati.  Þetta er lög eins og "Burt með kvótann" með Rassi,  "Lollipop" með Sjálfsfróun,  sitthvað með Mínusi,  I Adapt og Forgarði helvítis. 

  Ef ég held mig bara við fagurfræðina þá tel ég besta íslenska dægurlagið vera "Víkivaki" í flutningi Hljómsveitar Magnúsar Ingimarssonar.  Þetta er kannski frekar djasslag en dægurlag.

  "Ammæli" með Sykurmolunum kemur sterklega til greina sem besta íslenska dægurlagið.  Ég man glöggt hvað mér þótti það fallegt og heillandi þegar ég heyrði það fyrst.  Og hef ekki fengið leið á því ennþá. 

  Það var engin tilviljun að Bretar kolféllu fyrir þessu lagi.  Það var valið lag vikunnar í Melody Maker,  lag ársins af mörgum breskum fjölmiðlum og lag áratugarins af New Musical Express o.fl.

  "Fílahirðirinn frá Súrín" er perla í flutningi Möggu Stínu.  "Svefn-G-Englar" með Sigur Rós er magnað. 

  Af því að fyrsti "kommentarinn" nefnir "Nínu" þá er vandfundið annað lag sem hrellir mig meira.  Ég fæ alltaf flogakast og blóðnasir við að heyra þó ekki sé nema upphafstóna þess.  Ef kosið væri um leiðinlegasta lagið er mitt svar:  "Nína".   

Jens Guð, 19.4.2007 kl. 16:00

6 Smámynd: Jens Guð

  Ef ég tek sama pól í hæðina með erlendu lögin kemur "Helter Skelter" með Bítlunum ekki til greina.  Þó að mér þyki gaman að hlusta á það lag þá er það söngstíll Pauls og drynjandi hljóðfæraleikur sem skemmta mér umfram laglínuna.  Hún er ekkert merkileg.  Bara venjuleg blúslína.

  "Imagine" með Lennon er fallegt sönglag.  "Killing in the Name" með Rage Against the Machine er dúndur glæsilegt. 

Jens Guð, 19.4.2007 kl. 16:11

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Vá! Stórar spurningar!

Íslenskt: (ísl.texti) Megas "Mætta"..kannski bara af því að ég hef verið að hlusta mikið á þann "Þrjá blóðdropa" hans undanfarið.
Íslenskt: (erl.texti) Sammála Jens, Ammæli er langflottast

Erlent: Held ég verði að segja "The Wall" ..urðu soddan tímamót tónlistarlega séð í mínu lífi þegar það kom út. Var diskó-gemlingur fram að því 

Heiða B. Heiðars, 19.4.2007 kl. 19:17

8 Smámynd: Svartinaggur

Þegar stórt er spurt er gjarnan fátt um svör. Ég held að sé nánast útilokað að taka bara eitt íslenskt lag og eitt erlent sem standi upp úr. Þvílíkur hellingur af frábærum lögum hafa komið fram og held ég að ma'r geti í besta falli nefnt það lag sem fyrst kemur upp í hugann af þeim sem maður hefur í uppáhaldi.

Svo gat ég ekki annað en brosað þegar ég fékk upp í hugann mynd af því þegar tónlistar-Guð-inn fær flogakast og blóðnasir við það eitt að heyra Nínu að hluta eða í heild  Hins vegar er svona léttúð gagnvart þessum veikleika Guðs-ins að sjálfsögðu til skammar.

Hvað varðar besta íslenska lagið þá kemur Regína fyrst upp í hugann með lagið úr forkeppni Evrópuvisjón í fyrra. Og jú... ég verð að geta lagsins Reyndu aftur með Mannakornum.

Eitt besta erlenda lagið sem ég man eftir í svipinn.... *hugs*hugs*hugs* ...ég get bara ekki gert upp á milli laga á borð við Bohemian Rapsody með Queen, Another Brick of the Wall með Pink Floyd, Penny Lane með Bítlunum, The Day Before You Came með ABBA og fullt af fleirum.

Ef þú Haukur tekur bara eitt lag frá hverjum bloggara á listann þinn, þá skaltu bara taka fyrsta lagið á hvorum listanum hjá mér.

Svartinaggur, 19.4.2007 kl. 23:19

9 Smámynd: Haukur Nikulásson

Mér finnst að það þurfi enginn hér að réttlæta val sitt og smekk. Veljið þannig að þið fáið tvö lög á eyðieyju og látið þar við sitja. Það hlýtur að koma alltaf að því að þú velur eitthvað á undan öðru.

Besta erlenda: Just around the corner - Cock Robin (ekki fréttir!)

Besta íslenska: Vegir liggja til allra átta - Elly Vilhjálms

Haukur Nikulásson, 20.4.2007 kl. 01:28

10 Smámynd: Jens Guð

  "Vegir liggja til allra átta" með Ellý var valið af einhverri íslenskri dómnefnd besta íslenska lag síðustu aldar.  Sjálfum þykir mér það lag ekki skemmtilegt.  Að vísu er "intro" spilið dáldið flott.  Og,  jú,  jú,  laglínan er flott.  En þetta höfðar ekki til mín út frá skemmtanagildi.  Ég var jafnvel feginn þegar höfundurinn,  Sigfús Halldórsson,  neitaði okkur hjá útgáfufélaginu Geisla um að gefa þetta út á plötu með Bubba.  Svo féll Sigfús frá og erfingjarnir gáfu grænt ljós á flutning Bubba.  Ég man að Sigfús sagði við okkur:  "Ég ætla ekki að láta pönkrokkara eyðileggja þetta lag."

  Varðandi það að viðbrögð mín við "Nínu" séu til skammar þá er um ósjálfráð viðbrögð að ræða.  Lagið framkallar hjá mér ofnæmisviðbrögð.  Það er ekkert skammarlegra við það en að fá útbrot við nikkeli eða frjókornum.   

Jens Guð, 20.4.2007 kl. 02:43

11 Smámynd: Svartinaggur

Jens, þú misskilur mig alveg og endilega lestu kommentið frá mér aftur. Ég sagði ekki að þín ofnæmisviðbrögð væru til skammar - heldur það að ég skuli vera með léttúð gagnvart þeim.

Þetta með eyðieyjuna, þá myndi hugsanlega verða fyrir valinu Bridge Over the Troubled Water með Simon & Garfunkel.

Svartinaggur, 20.4.2007 kl. 09:10

12 Smámynd: Jens Guð

  Það er rétt,  Svartinaggur,  ég misskildi þig.  Las "komment" þitt aftur og sé það nú.  Smá fljótfærni af minni hálfu.  Biðst afsökunar á því. 

Jens Guð, 20.4.2007 kl. 23:01

13 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Þið eruð bara ekki í lagi, ég sé ekki einu sinni minnst á Freddie??? Bohemian Rhapsody??? Halló? Innlenda lagið er erfiðara, það sem togar alltaf í mína hjartastrengi er Vilhjálmur Vilhjálmsson, man ekki nafnið á laginu en strákurinn að hlaupa á eftir pabba sínum. Kannski ekki popplag og ekki töff, en makalaus flutningur og tilfinning.

Ingi Geir Hreinsson, 21.4.2007 kl. 10:40

14 Smámynd: Svartinaggur

Kannski ertu ekki í lagi sjálfur? Það er víst búið að minnast á Bohemian Rhapsody; 4. paragraf í aths. 9. Kannski ekki alveg kórrétt stafsett þar, en ætti samt að skiljast.

Svartinaggur, 21.4.2007 kl. 16:52

15 Smámynd: Jens Guð

  Er þetta lag með Villa Vill,  "Bíddu pabbi",  ekki erlent lag með íslenskum texta?  Held það án þess að vera alveg viss.  Mig rámar í að hafa heyrt það sungið á útlensku. 

Jens Guð, 21.4.2007 kl. 23:58

16 Smámynd: Haukur Nikulásson

Rétt hjá þér Jens,Bíddu pabbi er erlent með texta eftir Iðunni Steinsdóttur.

Haukur Nikulásson, 22.4.2007 kl. 00:11

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband