Afvopnun hefur aldrei náð til sigurvegara kalda stríðsins

Það er eiginlega bara skrýtið að vesturveldin skuli ekki í ljósi loka kalda stríðsins hafa staðið fyrir því að kjarnavopnum yrði eytt með öllu. Þessi staðreynd er lykilatriði þegar það er skoðað hvers vegna kjarnorkuveldum fjölgar. Ástæðan er einfaldlega sú að kjarnorkuveldum er ekki treyst og það þýðir að sífellt fleiri þjóðir vilja styrkja sinn sess í ógnarjafnvægi heimsins með því að eiga líka kjarnorkuvopn.

Bara sú staðreynd að þessi vopn eru til skapar hættuna á því að einhverjir brjálæðingar komist yfir þau og sprengi í stórborg sér til hefnda vegna einhvers málstaðar. Til þess að espa þessa brjálæðinga upp eru framleiddir sjónvarpsþættir til að sýna hvernig ætti að bera sig að. Stundum fær maður á tilfinninguna að sumt sjónvarpsefni mætti hreinlega banna vegna þess hversu hættulegar ranghugmyndir það getur skapað.

Það er enginn öruggur fyrir kjarnorkuvá fyrr en öllum slíkum vopnum hefur verið eytt. Það er ekki einu sinni hægt að færa rök fyrir því að eiga þau lengur nokkurs staðar á þessari jörð. 


mbl.is Rætt um að endurnýja kjarnorkuvopnabúr Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ragnar Björnsson

Það að menn eigi enga óvini aðra en Arabíska hirðingja með kalsnikoffa kemur ekki í veg fyrir að menn vilji eiga næg kjarnorkuvopn til þess að eyða heiminum amk. einu sinni, bara til öryggis.

Guðmundur Ragnar Björnsson, 14.3.2007 kl. 17:23

2 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Kjarnorkuvopn hafa sína kosti og galla.

Tökum dæmi: Ef Bretar hefðu haft kjarnorkusprengju í september 1939, hefðu nasistar þorað að ráðst á Pólland sem varð svo upphafði að seinni heimstyrjöldinni þar sem 60.000.000 manns fórst og annað eins örkumlaðist.

Hefði Japan ráðist á Pearl Harbour?

Kjarnorkuvopn hafa nefnilega gert það  að verkum að þessir stóru, hafa ekki farið í hár saman.

Svo er það misskilningur að eitthvað mikið hafi breyst við loka kaldastríðsins. Jújú Sovét var lagt niður og þau ríki fengu sjálfstæði, en í dag er hafin ein mesta uppbygging á herafla Rússa síðan 1941 eftir innrás Þjóðverja í Sovét.

Hver er forseti Rússlands? Fyrrverandi foringi úr KBG, sovésku leyniþjónustunni.

Júlíus Sigurþórsson, 14.3.2007 kl. 17:23

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég næ þínum rökum Júlíus. Þú getur bara ekki hafnað því að kjarnorkusprengjur sem ekki eru til, springa ekki. Svo má náttúrlega benda mér á það sem "barnaskap" að ætla að þessu sé hægt að eyða. Hafi verið hægt að búa þetta til, hlýtur að vera hægt að eyða þeim líka. Til þess þarf bara mjög ákveðna hugarfarsbreytingu þegnanna.

Líklega breytist ekkert í þessu fyrr en fyrsta sprengjan hefur dúndrað einhverri stórborginni með öllum þeim hörmungum sem það þýðir.

Haukur Nikulásson, 14.3.2007 kl. 17:30

4 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Ég skil vel þín rök og tvær borgir er þegar búið að sprengja. Auðvitað væri það æðislegur heimur þar sem hvergi væru hermenn, vopn eða sprengjur (knúnar af kjarnorku eða öðru). En það er nú þessi galli mannsins að girnast það sem er náungans og því verður ekki friður á jörð nema með genabreytingu í öllu fólki.

En gallinn er að tækniþekkingin er orðin útbreidd, hráefnið má finna víða og því er það ekki spurning um hvort, heldur hvenær slíkar sprengjur komast í hendur óvandaðra.

Júlíus Sigurþórsson, 14.3.2007 kl. 17:44

5 Smámynd: Ólafur Als

Gallinn er vitanlega sá að þekkingin er enn til staðar og gerir ekki annað en að breiðast út. Draumsýn þess virði að hafa, en draumsýn eftir sem áður.

Ólafur Als, 14.3.2007 kl. 17:50

6 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég skil samt ekki löngun Breta til að endurnýja - voru gömlu kjarnavopnin komin fram yfir síðasta neyzludag? Skrýtinn andskoti.

Ingvar Valgeirsson, 14.3.2007 kl. 18:10

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er svo mikil hræsni í gangi.  Til dæmis er vitað að Ísraelar eiga kjarnorkuvop. þeir hafa meira að segja notað klasasprengjur.  Þeir eru alveg jafnmiklir villimenn og arabarnir.  Ef hægt er að tala svona.  Við erum sennilega öll villimenn í okkur.

Þjóðverjar víluðu ekki fyrir sér að gefa ísraelum freygátur sem voru þannig að lítið þurfti að breyta þeim til að setja í þá kjarnorkuvopn.  Á meðan verið er að gefa þessari þjóð, með blóðidrifnar hendur upp að öxlum, vopn, þá er reynt með öllum ráðum að afvopna fólkið sem þeir eru að murka lífið úr. 

Er það eitthvað réttlæti, eða bjargar það á einhvern hátt friðnum þarna í suðupottinum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2007 kl. 10:42

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 264973

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband