11.3.2007 | 13:12
Trúir einhver því í alvöru að VG og Sjallar fari saman í ríkisstjórn?
Mér finnast spádómar í þá veru að Sjálfstæðismenn og Vinstri-græn fari saman í ríkisstjórn vera svipað og að trúa því að olía og vatn blandist. Olía og vatn flýtur saman en blandast ekki.
Sjá menn fyrir sér að Vinstri-græn samþykki að einkavinavæða Landsvirkjun? Selja sömu einkavinum orkufyrirtækin? Reisa 3-5 ný álver? Festa fiskveiðikvótann í lög til handa útvegsmönnum?
Sjá menn Sjálfstæðismenn samþykkja öfgafullu femínistastefnu VG? Fjallagrasaframleiðslu í stað stóriðju?
Við getum þó verið sammála um að þessir tveir flokkar geta sammælst um alls kyns njósnastarfsemi, leyniþjónustu, stórar greiningardeildir lögreglu og netlöggu sem stoppar kláminnflutning á netinu og klámlöggu á Keflavíkurflugvelli. Báðir eru þessir flokkar líka sammála um að láta ríkissjóð borga fyrir þá kosningabaráttuna sína af sameiginlegum skattpeningum okkar og að græðgislega eftirlaunafrumvarpið sé sömuleiðis hið besta mál.
Það er alveg sama hvernig á það er litið. Það yrði verulega súrt að horfa upp á vinstri-græna í ríkisstjórn, en það er ennþá skelfilegri tilhugsun að horfa upp á íhaldið þar áfram, sama hvaða hækju þeir fá til við sig.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 265617
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Benedikt Halldórsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bleika Eldingin
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Nanna Guðrún Marinósdóttir
-
Dofri Hermannsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Egill Jóhannsson
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Guðjónsson
-
Elfur Logadóttir
-
Eurovision
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Hin fréttastofan
-
Púkinn
-
Samtök Fullveldissinna
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðbjörn Jónsson
-
Guðmundur Ragnar Björnsson
-
gudni.is
-
Gunnar Pálsson
-
halkatla
-
Halldór Fannar Kristjánsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Björn Heiðdal
-
Heimssýn
-
Himmalingur
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jón Agnar Ólason
-
Jens Guð
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Kári Harðarson
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Kristján Hreinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
kreppukallinn
-
Karl Tómasson
-
Lára Stefánsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Guðjón Baldursson
-
Haraldur Hansson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Ólafur Als
-
Gísli Tryggvason
-
Jón Árni Sveinsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Pálmi Gunnarsson
-
Sigfús Sigurþórsson.
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sandra Dögg
-
Ingi Geir Hreinsson
-
Einar Bragi Bragason.
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Kristján Logason
-
Styrmir Hafliðason
-
Svartinaggur
-
Sverrir Einarsson
-
Sveinn Arnarsson
-
Þarfagreinir
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Tómas Þóroddsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Hrafn Jökulsson
-
Geiri glaði
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
Vefritid
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Árnason
-
sto
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Björn H. Björnsson
-
Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Er það ekki rétt hjá mér að bestu hjónaböndin séu þar sem fólkið er hvað ólíkast.Og stundum talað um að þannig bæti þau upp galla hvors annars.Þessi ríkisstjórn er hinsvegar að mínu mati ekki góður kostur.
Georg Eiður Arnarson, 11.3.2007 kl. 14:55
Ég las nýlega stefnuskrá vg í sjávarútvegsmálum.Sú lesning ásamt öfgafullri stefnu þeirra í jafnréttismálum seigir mér að þar á ég ekki heima.
Georg Eiður Arnarson, 11.3.2007 kl. 21:10
Einhvernvegin sé ég EKKI stóran mun á hvort það er td. Samfylkingin, VG, eða Frjálslindir.
Persónulega er ég einmitt hlintur því að tveir gjörólíkir flokkar séu saman í stjórn, ekki hef ég neina trú á að stjórnmálamenn VG td. láti neitt rúlla sér upp, ástæðan fyrir trú minni á því er fyrst og fremst mín virðing á fólki þar innanum.
FLESTIR flokkar sem nú bjóða fram hafa kraftmikla og góða einstaklinga um borð hjá sér og eins og ég hefi marg oft sagt, er synd að ekki sé hægt að sameina þessa skörunga.
ATH ég er ekki skráður VG flokksmaður.
Sigfús Sigurþórsson., 11.3.2007 kl. 22:57
Ps. þessi efri Athugasemd mín er skrifuð eftir lestur færslu þinnar Haukur og er því skrifin miðuð við að Sjálfstæðismenn VERÐI í stjórn, mér finnst einhvernvegi ALLIR skrifa þannig eða eða geri fastlega ráð fyrir að þeir verði við stjórn, er spurningin bara hver verður mem?
Sigfús Sigurþórsson., 11.3.2007 kl. 23:01
VG hefur tvö stór mein. Ég hef um langa hríð haldið því fram að þau væru frábærir gagnrýnendur en alls ekki stjórntæk. Annars vegar fyrir þá stefnu sína að þau dásama ríkisforsjána út í hið óendanlega og hins vegar eru þau að miklu leyti framsóknarlið. Það verða engar breytingar á landbúnaðarkerfinu ef þau verða við völd. Hvað þá nauðsynlegar stjórnkerfisbreytingar. Við skulum ekki gleyma því að þegar Steingrímur Joð var ráðherra þá var hann eins og versta gerð af framsóknarmanni.
Sigurður Ásbjörnsson, 11.3.2007 kl. 23:53
Mér sýnist allt stefna í áframhaldandi stjórnarandstöðu VG þrátt fyrir að þeir fái hugsanlega glæsilega kosningu. Það kæmi mér ekki óvart að þeir myndu halda sjálfum sér utan ríkisstjórnarþátttöku. Ástæðan er að meginstofni sú að þeir eiga erfitt með að gefa eftir í samningum og hafa litla sem enga reynslu af því að þurfa gefa eftir málefnalega. Ríkisstjórnarþátttaka er nefnilega uppfull af málamiðlunum sem þeir munu eiga erfitt með að sætta sig við.
Það stefnir því miklu frekar í að Samfylkingin verði í næstu stjórn með Sjálfstæðisflokknum, jafnvel þótt þeir fái lélega kosningu. Þá þyrstir einfaldlega í stjórn nægilega mikið að mínu mati. Þeirra þátttaka í stjórn er þannig algerlega háð því að Framsóknarflokkurinn nái ekki að halda fylgi til að mynda áframhaldandi meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.
Haukur Nikulásson, 12.3.2007 kl. 08:18
Já mikið er rætt nuna um þetta næsta stjórnarsamstarf,og það mun koma i ljos að við sennlega munum XD menn vilja Viðreins aftur,það gafst vel i 12 ár,og mundi sennlega ganga aftur nuna,allt er betra en þetta samstarf sem nuna er/Halli Gamli
Haraldur Haraldsson, 12.3.2007 kl. 11:35
Þetta væri mögulegt ef "stóra" kosningamálið væri ESB eða ekki-ESB. Það er hins vegar ekki staðan.
Púkinn, 12.3.2007 kl. 12:31