Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Er fjölskyldan og Samfylkingin að "kóa" með Sigmundi Erni?

Sigmundur er orðinn ber að því að ljúga. Það er öllum ljóst núna. Hann sagðist fyrst ekki hafa drukkið en játaði það síðan þegar vitni sögðust hafa séð hann "hvolfa" í sig í kvöldverðinum eftir golfið hjá MP banka.

Hann sagðist ekki hafa fundið til áfengisáhrifa og þá er komin spurningin: Keyrði hann ekki bara sjálfur drukkinn niður á þing? Úr því að hann laug því blákalt að hafa ekki drukkið, má þá ekki reikna með að hann hafi líka logið því spontant að strákurinn hafi "skutlað" sér? Hann þurfti jú að svara þessari spurningu hratt og örugglega þegar á hann var gengið.

Skoðum þetta nánar. Var strákurinn með honum í för í Grafarholti? Eða kom hann labbandi heiman frá sér í Hveraföld sem er líklega 40 mínútna gangur? Keyrði einhver strákinn upp í Grafarholt svo hann gæti keyrt föður sinn sem ekki fann fyrir áfengisáhrifum? Geta öryggismyndavélar sýnt fram á það með hvaða hætti Sigmundur kom til þings þetta kvöld? Getur verið að hann sé að neyða fjölskylduna sína til að kóa með sér eins og hið blinda, heyrnarlausa og óþefvísa meðreiðarfólk sitt á þinginu?

Það er orðið fátt trúverðugt hjá Sigmundi Erni Rúnarssyni um þessa ævintýralegu kvöldstund á Ölþ... Alþingi. Þó að það sé eiginlega hálf ljótt að veitast að honum með þessum hætti þá lýkur því ekki fyrr en sannleikurinn er allur kominn fram. Þess vegna er best klára það strax. Allra vegna.

Við erum nokkur sem krefjumst þess að menn sem eru að setja óbærilegan skuldaklafa Icesave á okkur almúgann drullist til að gera það edrú.


mbl.is Fékk sér léttvín með mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða þingmenn ætla að hafa vit á að forða sér frá ruslatunnu sögunnar?

Ég er hræddur um að sagan fari ekki mildum höndum um þá þingmenn sem eru að láta sér detta í hug að samþykkja ríkisábyrgð vegna innlána í einkabanka sem íslenska ríkið tók ekki.

Það verða nægiilega margir sagnfræðingar til að setja þá í ruslatunnu sögunnar sem nú þegar er byrjuð að kjamsa á Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni sem deildu út bönkum og rikisfyrirtækjum til einkavina sinna.

Hafið Davíð og Halldór sett hrunið í gang þá virðist meirihluti þingmanna ætla að blessa það til næstu áratuga með því að ábyrgjast vitleysuna fyrir hönd okkar allra.

Ég skora á þá að hugsa sjálfstætt í þessu máli áður en það verður of seint.


mbl.is Funda um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður aldrei sátt um að við borgum Icesave

Það er alveg sama hversu langt þeir ganga í gerð fyrirvara. Það verður ekkert mark tekið á þeim og sú grundvallarastaða liggur fyrir að Ísland er að viðurkenna ábyrgð á starfsemi einkabanka. Það svarar enginn þeirri spurningu hvort að ríkið sé að setja fordæmi um að bera ábyrgð einhvera almenna ábyrgð á einkafyrirtækjum ef þau eru með starfsemi erlendis.

Innistæðutryggingasjóður er ábyrgur um það er ekki deilt. Deilan snýr hinsvegar að því hvort að ríkið eigi að vera baktrygging ef hann reynist tómur og ég segi nei, þetta mál kemur íslensku þjóðinni og ríkinu ekkert við þrátt fyrir að einhverjir ráðamenn hérlendis hafi lofað meiru en þeir höfðu umboð til. Ef þetta umboð stæðist væri ekki verið að þrefa um þetta mál á þinginu.

Það að samþykkja Icesave nú verður langvarandi þjóðarböl, íslendinga. Ég skora á þingmenn að hugleiða þessi mál út fyrir skammtíma flokkslínur og valdabrölt.


mbl.is Nálgast endalokin í umræðum um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halda áfram að handvelja spillingarvini með þessu móti

Það er jákvætt að ráðherrann sé að éta það ofan í sig að ætla ekki að leiðrétta skuldir fyrirtækja og heimila. Hann vill hins vegar fá að velja úr hverjir njóti slíkra forréttinda.

Það að sama réttlætið gangi ekki yfir alla í sambandi við skuldamál er óverjandi með öllu. Skiptir hér engu máli hvort menn hafi tekið lítil eða stór lán. Sami forsendubrestur er á flestum þessara lána.

Einu lánin sem ég vil undanskilja eru græðgislánin þ.e. kúlulánin og önnur ámóta til hlutabréfakaupa og til annars fjármálalegs sóðaskapar.

Ég skil ekki hvernig hægt er að kenna sig við jafnaðarmennsku með þennan hugsunarhátt. Það eru breyttir tímir og það er gallhörð krafa samfélagsins að þau háu laun og fyrirgreiðslupólitík sem hefur verið í gangi undanfarin ár víki með öllu.


mbl.is Ráðherra vill afskrifa skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég óttast samsæri um að lögin verði "leiðrétt" síðar

Á sama hátt og með önnur lög í þessu landi þá er alltaf opinn sá möguleiki að lögum sé breytt eftir á.

Ég óttast það mjög að lögin um ríkisábyrgðina verði í einum eða tveimur áföngum breytt til fullrar ábyrgðar og um það sé baksamningur við breta og hollendinga til að fá þá til að þegja yfir þeim fyrirvörum sem nú eru settir. Þetta sé allt gert í þeim tilgangi að koma okkur örugglega inn í ESB.

Ég finn einhverja skrýtna ólykt af því hversu rólegir sumir stjórnmálamenn eru yfir fyrirvörum sem áður voru óþolandi afskipti af afgreiðslu málsins.

Klókir pólitíkusar finnast ennþá.


mbl.is Ísland milli steins og sleggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7 ár með höfuðið í sandinum eða taka skellinn strax?

Ég héld að flestum sé að verða ljóst að aðeins tvær leiðir eru í núverandi kreppu:

1. Að samþykkja Icesave. Taka nýtt lánasukk fyrir framfærslunni frá AGS, Norðurlöndunum, bretum og hollendingum og rússum og setja hausinn í sand eins og strúturinn í heil sjö ár og vona að vandinn sé bara horfinn að þeim tíma liðnum. Kannski er smá von að ESB afskrifi þessi lán og hirði Ísland í heilu lagi upp í skuldirnar.

2. Viðurkenna núverandi stöðu sem er þjóðargjaldþrot. Hefja uppbyggingu með því að taka ekki lán og vinna okkur upp frá núlli. Þetta þýðir að útflutningstekjur verða aðeins notaðar í nauðþurftir innflutnings eins og heilsu- og olíuvörur. Matarframleiðsla innanlands verði efld og íslendingar læri að lifa án þess að fá allt að láni erlendis frá. Ekki þarf að draga dul á að þetta þýðir sjálfsþurftarbúskap að stórum hluta og því að eiga við fátæktina núna en ekki síðar.

Kostur 2 er mér ekki sérstaklega fráleitur vegna þess að hann krefst þess að þjóðin sýni af sér alvöru manndóm og hætti betli- og undirlægjuhætti gagnvart útlendingum. Þetta þýðir að við afskrifum eignir og skuldir erlendis og fáum yfir okkur tímabundna vandlætingu þess vegna, sem við vitum þó að gleymist fljótt. Hafa ber í huga að hin íslenska þjóð skuldar ekki Icesave og stofnaði ekki til þeirra skuldbindinga heldur örfáir fjárglæframenn með einkabanka. Við þurfum á því að halda að taka djarfa ákvörðun og lyfta um leið siðferði landans og ýta undir alvöru landsframleiðslu en ekki þá sem var pakkfull af erlendri lántöku að stærstum hluta.

Kostur 1 er fyrir þá sem alls ekki geta hugsað sér að slaka lífsgæðum sínum niður eitt augnablik, vilja bara taka stærri lán og eru þess vegna tilbúnir að fresta öllum öðrum eins langt og það kemst... helst til barnabarnanna!

Gaman væri að heyra hvað fólki finnst um þessa spurningu? 


mbl.is Þingfundur boðaður í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn á villigötum með þessa frétt - eða falskar heimildir

Mér sýnist að fréttaumfjöllun Moggans sé alltaf á niðurleið. Alls kyns bulli er skotið fram sem virðist þurfa að leiðrétta jafnóðum.

Kannski er blaðið að þessu viljandi til að skapa umræðu og athygli þótt neikvæð sé.

Það hefur löngum verið sagt að neikvæð athygli sé betri en engin!


mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Icesave samþykkt í tómri vitleysu vegna þingmannaþreytu?

Sú kjaftasaga hefur gengið (sönn eða login) að Svavar Gestsson hafi keyrt Icesave samninginn í gegn vegna þess að "hann hafi ekki nennt að hafa þetta helvíti hangandi yfir sér lengur".

Önnur kjaftasaga segir að bresku samningamönnunum hafi líkað sérlega vel við "that jolly fellow mr. Gestsson". Það væri þá ekki skýringin að okkar menn hafi verið sérlega "liprir" í samningagerðinni vegna þreytu?

Nú virðist blasa við að þingmenn verði bara þreyttir eins og laxar til að láta þá gefast upp fyrir Icesave þrýstingi Jógríms og það hugnast manni ekki. 

Það er ófyrirgefanlegt að kasta til höndum í þessu máli vegna þess að nokkrir einstaklingar séu orðnir þreyttir. Sérlega þeir sem máttu vita löngu fyrirfram að mjög erfið verkefni biðu þeirra.


mbl.is Sátt að nást um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig datt okkur í hug að setja svona "seinþroska" mann á þing?

Ég hef ekki farið dult með að atkvæði mitt í síðustu kosningum hefði verið neikvætt. Það er að ég kaus gegn flokkunum sem voru ábyrgir fyrir stöðu mála en ekki með Borgarahreyfingunni, enda vissi ég fyrirfram að þarna væri ekki komið alvöru stjórnmálaflokkur heldur hreinræktað óánægjugengi með óljós stefnumál í nánast öllu því nema að bæta stjórnkerfið, eftirlitskerfið og siðferðið. En að öllu öðru leyti var engin vís stefna fyrir kosningarnar og allra síst aðild að ESB sem ég er eindregið á móti.

Þráinn Bertelsson er bara á þingi fyrir sig. Honum fannst hreint ekkert að því að þiggja aukreitis heiðurslaun listamanna í ofanálag.

Þeir sem kusu Borgarahreyfinguna sjá trúlega flestir eftir því núna því að það er ljóst að eina vitið er hjá Þór Saari sem haldið hefur uppi skynsamlegri umræðu.

Okkur mátti vera ljóst að Þráinn var að segja satt þegar hann sagðist vera "seinþroska". Það er það eina reynst hefur rétt með hann. Hvernig gátum við verið svona vitlaus að kjósa hann?


mbl.is Vilja Þráin af þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru "hljóðlát skilyrði" fyrir láninu?

Á þessum síðustu og verstu tímum erum við flest orðin mjög hvumpinn þegar kemur að leitinni að sannleikanum.

Flestum er líka verða ljóst að risavaxnir fjármálagerningar eru sjaldnast gerðir vegna kærleika og góðmennsku ef frá er talinn lánveiting færeyinganna (sem við kunnum bestu þakkir fyrir).

Manni dettur þess vegna í hug hvort sett hafi verið "hljóðlát skilyrði" fyrir rússaláninu og snúi að rússnesku þvottavélinni sem byrjaði starfsemi hér með "sýndarfé" vegna sölu bjórverksmiðju?


mbl.is Enginn hafnaði láni Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 264980

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband