Efnahagslegar refsi- og þvingunaraðgerðir

Það virðist flestum, nema stjórnvöldum, ljóst að AGS og ESB eru að beita íslendinga hörðustu þvingunaraðgerðum sem hægt er. Allt í þeim tilgangi að knésetja okkur undir vald ESB sem og það kreista út úr okkur alla þá fjármuni sem hægt er að vinda úr einni þjóð næstu 15-20 árin.

Maður fær gegnheila ógeðstilfinningu vitandi af Össuri eins og slefandi rakka utan í kommissörum Evrópusambandsins.

Mér til mikillar armæðu verður undirlægjuháttur og ræfildómur núverandi stjórnvalda til þess að við missum allt sjálfsforræði og fullveldi.

Við eigum að gefa skít í þetta, staldra við og leita annarra lausna. Það liggur ekkert á að fremja á sama tíma bæði efnahagslegt og stjórnmálalegt sjálfsmorð heillar þjóðar af því að einhverjum útlendingum liggur á.


mbl.is Bagalegt ef fyrirtaka AGS tefst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef einhver er að hjálpa okkur í Ic-deilunni þá er það ESB.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 13:53

2 identicon

Það eru engar þvingunaraðgerðir að vilja fá peningana sína til baka. Við skuldum þessu fólki þessa peninga vegna þess að við vorum sofandi á verðinum þegar við áttum andskotann að vita betur. Við spiluðum með í pókerspili bankakerfisins án þess að hafa hugmynd um leikreglurnar og þegar maður tapar, þá borgar maður.

Hinn hái lífstíll Íslendinga er ekki kominn af framleiðslu á neinu sérstöku; þetta var allt að láni og núna þurfum við að borga til baka. Það er ekki dugnaður eða hugvit Íslendinga sem veldur því að á Íslandi hafi verið svo há lífsgæði seinustu 15 árin. Þetta var allt saman að láni. Það er engin græðgi að vilja fá peningana sína til baka.

Ef þú vilt ekki borga þetta get ég einungis mælt með því að þú flytjir úr landi því þetta verður borgað á einn eða annan hátt, sama hvað tautar og raular.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 14:56

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Gísli, ég segi nú bara sérhver er nú hjálpin!

Óskar, með Lissabon sáttmálanum (stjórnarskránni) eru öll löndin í ESB að missa fullveldi. Þú mátt halda öðru fram. Fljótlega má búast við að Tony Blair verði orðinn forseti ESB hvort sem okkur líkar betur eða verr.

Helgi, þetta er einmitt málið. Það er ágreiningur um það hvort okkur beri lögum samkvæmt að borga og það væri auðveldast að láta hollendinga og breta sækja þetta fyrir íslenskum dómstólum. Ef við þyrftum að sækja eitthvað í hina áttina væri það eina leiðin fyrir okkur. Verði ríkisábyrgðin samþykkt íhuga ég alvarlega að flytja þó mig langi ekki til þessi. Ég ætla ekki að eyða efri árum í fátækt vegna lána sem ég tók ekki!

Haukur Nikulásson, 28.7.2009 kl. 16:21

4 Smámynd: Sigurjón

Við skuldum þessu fólki ekki neitt.  Það eru eigendur Landsbankans sem skulda þessu fólki peninga.  Ég er alveg sammála þér Haukur að líklega er eina leiðin, til að þurfa ekki að borga þessar skuldir sem maður stofnaði ekki til sjálfur, að flytja úr landi.

Sigurjón, 28.7.2009 kl. 17:24

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er með ólíkindum hvað menn geta verið glámskyggnir, ESB að hjálpa okkur!!! þar er enga hjálp að fá.  Þeir eru einungis að hugsa um eigin rass og buddu.  Ég á ekki orð yfir svona barnaskap.  Evrópusambandið er enginn hjálparstofnun, svo langt í frá.  Ræðið við fólkið í þessum löndum og heyrið hvað það hefur að segja, þ.e. skynsama fólkið sem fylgist með pólitík.  Það vill aðvara okkur og reynir að segja okkur að halda okkur langt í burtu frá ESB og alls ekki að borga Icesave.  Reynið að fara að hugsa sjálfstætt og láta ekki mata ykkur á þessari endalausu lygi um að allt bjargist bara ef við förum inn í Evrópusambandið.  Það mun ekki gerast.  Þeir eru eingöngu að hugsa um sjálfa sig og er algjörlega sama um hvað verður um fólkið sem hér býr.  Opnið augun og farið að hlusta á einhverja aðra en Jóhönnu og Steingrím, ég er farin að halda að þeim hafi verið mútað til að koma okkur inn í sambandið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.7.2009 kl. 21:20

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við erum þarna mikið sammála Haukur/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 28.7.2009 kl. 23:47

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband