Ítrekuð ósannindi verða ekki þoluð lengur - Burt!

Ekki skulum við efast um að heimskreppan hafi komið til Íslands. En hin séríslensku efnahagsvandamál eiga sér rætur í fjármálastjórn þessa lands. Þar hafa ráðið ríkjum í 17 ár þeir Davíð Oddsson og Geir Haarde. Þó að Árni Mathiesen hafi verið fjármálaráðherra undanfarin ár er hann aðeins dúkka í höndum hinna og hefur bara unnið að því að hygla bróður sínum og vinum. 

Það þarf ekki hvítbókarkjaftæði til að sjá að þeir félagar Davíð og Geir hafa sett rækilegt Íslandsmet í ósannsögli, dómgreindarbresti, hroka, hagsmunagæslu, vanrækslu, sjálfumgleði og skeytingarleysi. Davíð er ennþá sá sem öllu stjórnar, Geir hinn geðlausi er ennþá hinn uppaldi skjólstæðingur hans og mun aldrei hafa burði til að reka hann, það ætti okkur öllum að vera löngu ljóst.

Samfylkingin viðheldur þessu með einhverju mesta skap- og sinnuleysi sem maður hefur upplifað og það er ekki "You ain't seen nothing yet!" bragurinn á Össuri Skarphéðinssyni núna sem hefur límt sig svo fastan við ráðherrastólinn að honum er sama þó hann sitji þar kyrfilega útbýjaður í skítnum af þessum meðreiðarsveinum sínum.

Ráðherrar Samfylkingarinnar eru ófærir um að finna skítalykt lengur. - Hvað er þá til ráða?

Það hefst engin uppbygging á efnahagslífi íslendinga með þessa menn við stjórnvölinn, til þess hafa þeir ekki traust. 


mbl.is Geir aðvaraði Brown í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Núna er ekkert annað í stöðunni,en að rjúfa þing og kalla til færustu sérfræðinga bæði innanlands og utan til að stjórna landinu allavega út kjörtímabilið.Ég var á fyrirlestri hjá Jóni Daníelssyni hagfræðing, mér fannst hann tala í lausnum,við eigum fullt af fólki sem vill koma til bjargar. Burt með alla pólitíkusa.

Rannveig H, 1.11.2008 kl. 11:51

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband