29.10.2007 | 09:46
Guðjón hefði hentað betur en Ólafur
Ólafur er góður þjálfari. Við höfðum góða reynslu af honum hjá Þrótti og hann hefur náð góðum árangri hvar sem hann hefur verið. Hann er því til alls góðs maklegur.
Um landsliðið finnst mér gegna öðru máli. Þó að Ólafur sé góður þjálfari þá er hann ekki eins blóðugur upp fyrir haus eins og Guðjón. Þetta er þá í þeirri merkingu að ég tel landsliðið ekki þurfa þjálfara heldur miklu fremur brjálaðan leiðtoga sem öskrar þessa stráka í stuð á réttu augnabliki fyrir leiki. Þeir fá svo góð frí frá honum á milli!
Stjórn KSÍ ætti að vera kunnugt um þetta en hér lítur út fyrir að þeir vilji áfram vera í náðugu djobbi því Ólafur er allt of líkur "þægu" strákunum sem hafa verið viðloðandi landsliðið allt of mörg undanfarin ár með allt of skaplausum árangri.
Ólafur ráðinn landsliðsþjálfari? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 265328
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Ég hef nú ákveðnar skoðanir á þessum málum. Guðjón Þórðarson var góður á þeim sem hann var við stjórn en síðan eru liðin mörg ár.
Ég hef ekki trú á því að töfralausn knattspyrnumála á Íslandi sé að reka þjálfarann, ég held að hún felist í því að hafa góða leiðtoga á öllum sviðum hjá KSÍ. Það er þar sem þessari endalausu vitleysu er stjórnað, ef illa gengur þá rekum við bara þjálfarann viðhorf. Við þurfum í fyrsta lagi að koma okkur niður á ákveðið plan og þessu plani þarf KSÍ að fylgja og jafnframt að styðja sinn þjálfara í starfi. Hann á ekki að þurfa að búa við þá endalausu hugsun að ef illa gengur verði hann rekinn úr starfi. Hann á að hafa næði til að byggja sitt lið upp og í þessu tilfelli getur það tekið nokkur ár. Ég hef ekki trú á að við þurfum einhvern þjálfara sem getur bara öskrað á strákana til afreka það er hræðslustarfsemi og á ekkert skilt við fótbolta. Við þurfum þjálfara sem hefur sýn og hann þarf að fá frið til þess bæði af KSÍ og íþróttafréttamönnum. En ég verð bara að óska nýjum þjálfara heilla í nýju starfi sem hann heldur vonandi í einhvern tíma áður en hann verður rekinn. Því það verður hann örugglega ef KSÍ fer ekki að taka til hjá sér.
Lifið heil.
Baldvin Baldvinsson (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 10:16
Takk fyrir innleggið Baldvin. Þú oftúlkar orð mín svolítið ef þú heldur að ég vilji hræða skítinn úr strákunum til afreka, það er nú ekki það sem ég á við. Ég á við að sálræni hvati þjálfarans sé metinn hærra en hefðbundin "þjálfun" þar sem við erum að velja úr hópi atvinnumanna sem okkar landsliðsþjálfari á ekki að þurfa að kenna sérstaklega fótbolta, heldur fyrst og fremst að sjá til þess að hugarfar þeirra í leikjum og leikskipulag sé í lagi.
Ég er ekki sammála þér um að það þurfi "nokkur ár" til að "byggja upp" landslið í fótbolta. Liðið er til og það meira segja mjög vel mannað á köflum. Það þarf mann sem kann að vinna úr efninu og skilur eðli verkefnisins. Við hljótum að vera sammála því að það er verulegur munur á að stjórna félagsliði og landsliði. Af þessum sökum myndi ég vilja Ólaf sem þjálfara í félagsliði og á sama tíma tel ég hinn umdeilda Guðjón Þórðarson geta hentað sem "stjóra" landsliðsins. Mér finnst landsliðs"þjálfari" vera rangnefni á þessu starfi.
Haukur Nikulásson, 29.10.2007 kl. 10:25