24.8.2007 | 12:14
Veiðiheimildirnar voru vanhugsuð fljótræðisgreiðasemi við einkavinina!
Það var flestum ljóst áður en Einar Guðfinnsson veitti Kristjáni Loftssyni heimild til hvalveiða að það væri glapræði á alla lund. Veiðiheimildin var í upphafi með óeðlilegt fyrirgreiðsluyfirbragð.
Íslendingar voru yfirleitt hættir að vilja borða þennan mat. Hvalkjöt var hvort eð er alltaf metið neðst af kjötmetinu hér áður fyrr. Kjötið þurfti forverkun til að losna við þráabragð sem skein síðan samt alltaf í gegnum alla matseld.
Það sem hins vegar styggir okkur íslendinga er að við þolum alls ekki að láta segja okkur fyrir verkum um það hvernig við förum með náttúruauðlindir okkar. Það er óskoraður réttur að veiða hvali ef okkur sýnist svo um það geri ég ekki ágreining og einnig er orðið nokkuð ljóst að hvalir eru langt í frá í nokkurri útrýmingarhættu. Þó að við hættum hvalveiðum þýðir ekki að við séum að beygja okkur fyrir rugluðum náttúruverndarsinnum.
Nú virðist næstum öllum ljóst að þessu er sjálfhætt af því að við bara étum þetta ekki lengur og fáum heldur ekki aðra til að gera það. Til hvers þá að veiða hval?Ekki gefin út ný hvalveiðileyfi vegna markaðsaðstæðna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 265321
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Þú hefðir átt að smakka hrefnu grillkjötið sem selt var í tilbúnum pakkningum vel kryddað og gott. Tilbúið beint á grillið. Kjötið hreinlega bráðnaði í munni. Ég vil stórhveli á diskinn minn.
Fannar frá Rifi, 24.8.2007 kl. 12:46
Mín vegna má alveg veiða eina hrefnu handa þér Fannar, ég sé ekki neina ástæðu til að neita þér um uppáhaldsmatinn þinn!
Haukur Nikulásson, 24.8.2007 kl. 13:07
Skrýtið. Ég vissi ekki betur en að hrefnan hafi selst upp, a.m.k. í flestum búðum...
Sigurjón, 24.8.2007 kl. 13:50
Set svar mitt hér inn líka en hafði svarað joninc áðan um sama efni.
Hvalkjötsát landsmanna er stórlega ofmetið.. það veit ég eftir að hafa reynt á það sjálfur sem kjötstjóri í einni af betri kjötverslunum landsins.. 30 kg á mánuði kannski á meðan lærisneiðar fóru í 300 kg, kótilettur í 200 kg súpukjöt í 400 kg.. og þá er allt hitt eftir.. meira að segja folaldakjöt seldist miklu meira en hvalurinn. Oftast nær þurfti maður að henda því sem fram var borðið.. svo 30 kg sala á móti 10 kg rýrnun.. segir sig sjálft að þetta borgar sig ekki.
Óráðs-sía sjávarútvegsráðherra og greiðasemi sem hefur skaðað ímynd landsins
Óskar Þorkelsson, 24.8.2007 kl. 13:54
Þarna erum við ekki sammála Haukur við eigum að veiða Hvalin og læra aftur að borðan/þetta er besti matur/við gætum lika fætt hin sveltandi heim með þessu eru það ekki lika aðstoð við fátækan heim er það ekki betra en stirkja striðið i Irak/og viðar /Kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 24.8.2007 kl. 14:17
Ég er ekki viss um það Halli að náttúruverndarsinnar yrðu ánægðir með þá þróunaraðstoð sem fælist í ókeypis hvalkjöti. Þó það sé bara vegna þess hversu framandi matur þetta er fyrir aðra en rúmlega miðaldra íslendinga.
Mér datt í hug að ef íslendingar þyrftu fæði útlendis frá sökum hungursneyðar að maurastappa að hætti frumbyggja á Amazon svæðinu myndi ekki fara ofan í okkur þótt svangir værum. Þar er maurastappa með því betra sem sumir þeirra fá og er víða hátíðarmatur (heimild: Fljótin falla í austur).
Haukur Nikulásson, 24.8.2007 kl. 14:55
"Þó það sé bara vegna þess hversu framandi matur þetta er fyrir aðra en rúmlega miðaldra íslendinga." þannig að það væri betra að gefa sveltandi fólki ekkert dýra prótein bara vegna fordóma vegna þess af hvaða skeppnu kjötið kemur???? nei er það nú full langt gengið. hvalir eru spendýr hafsins. bæði rándýr og grasbýtar. etum við ekki kinda og kúakjöt??? að vilja ekki borða kjöt af hvölum en borða af öðrum dýrum er hræsni.
Fannar frá Rifi, 24.8.2007 kl. 23:39
Fannar, ég hef sjálfur enga fordóma, ég er bara að ætla útlendingum það að vera svolítið sérvitrum í matarvali eins og okkur.
Þú mátt heldur ekki gleyma því að almennt séð eru orðinn 20-30 ár síðan hvalkjöt var almennt í boði hér á landi. Finnst þér í alvöru skrýtið að fólk hiki við að borða svona kjöt?
Sjálfur er ég 52 ára (á þessu ári) og var alinn á hvalkjöti í foreldrahúsum en keypti aldrei sjálfur eftir að ég fór að búa upp úr 1975, hafði enga löngun til þess. Ég sé ekki ástæðu til að finnast neitt athugavert við það að þú viljir fá að borða hvalkjöt en það er fullangt gengið hjá þér að kalla það hræsni að vilja ekki hvalkjöt. Hjá mér er það smekksatriði og hefur ekkert með dýrategundina að gera. Ég get, trúlega líkt og þú, lagt þessi dýr að jöfnu. Kjötið af þeim bragðast bara ekki eins.
Haukur Nikulásson, 25.8.2007 kl. 00:05
einu sinni var fæðuskortur í póllandi eftir fall kommunismans, austurblokkin hafði sett einhverskonar boykott á pólland og vesturveldin versla bara við þá sem eiga peninga.. þá kom litla íslan viljugt til hjálpar og sló sér á brjóst til riddara í skínandi herklæðum frelsarans.. við ætluðum ða losa sambandið við rollufjall eitt mikið sem stóð einhverstaðar inni á fjölmörgum frystum norðan heiða.. KEA tók að sér vinnsluna og allir voru ánægðir. Íslendingar afar stoltir af framtakinu og voru miklar hetjur í eigin augum og sendu einhver 2-300 tonn af gömlu íslensku ærkjöti skekklega niðursoðnu og eflaust verið vel merkt íslandi og rauða krossinum.. en gallinn á gjöf Njarðar var sá að pólverjar éta ekki ærkjöt, gamlar rollur og gáfu pólverjar þessa gjöf í skiptum fyrir svínakjöt frá Bulgaríu eða Rúmeníu.. sem segir okkur nákvæmlega hvað mundi gerast ef íslendingar tækju upp á þeim fjanda að gefa hvalkjöt í hjálparstarfsemi af góðseminni einni saman. Sennilega heimskulegasta hugmynd sem komið hefur fram lengi.
tek það fram að ég ét hvalkjöt. Ég ætlast bara ekki til að allir geri það og reynsla mín segir mér einnig að afar fáair íslendingar éta þetta kjöt nema að þeir séu boðnir til veislu af einhverjum sérvitringum eins og mér sem enn éta þennan fjanda ;)
Óskar Þorkelsson, 26.8.2007 kl. 11:30
Við þurfum ekkert að ræða það að hvalveiðar Íslendingar núna voru bara til þess að Kristján Loftsson styrktaraðili Sjálfstæðismanna fengi einhvern part peninga sinna til baka. En þegar hvalspik kostar 2000 kr. hér þá er maður ekki til í að sprikla með. +Eg styð hvalveiðar ef þær eru arðvænar en að kaupa hvalspik fyir 2000 kr. kg er kjánalegt. Seljum frekar náttúrulausum evrópubúum óveidda hvali.
Ævar Rafn Kjartansson, 27.8.2007 kl. 03:40
Þrátt fyrir þetta allt eru nokkur ár síðan við hófum veiðar í hval. Fyrst í vísindaskyni og svo í fyrra í atvinnuskyni.
Háværar og pirrandi raddir voru allan tímann uppi um að þetta myndi skaða ferðaþjónustuna og bla bla bla...
Í dag er staðan sú að fjöldi ferðamanna er orðinn vandræðalega mikill hér og ekkert nema bjartsýni ríkir í atvinnulífinu. Ég bíð enn eftir þessum skaða sem hvalveiðarnar áttu að valda.
Sigurjón, 27.8.2007 kl. 21:13
,,...veiðar á hval" átti þetta að vera.
Sigurjón, 27.8.2007 kl. 21:15