13.6.2007 | 14:28
Liberty of the seas er stærsta skemmtiferðaskipið - Queen Elizabeth II er miðlungs dallur!
Blaðamenn Mbl mega kynna sér hlutina betur. Það eru nefnilega ótrúlega margir sem trúa því að Mogginn segi satt.
Staðreyndin er sú að QEII er ekki einu sinni meðal stærstu skipa. Þykir bara miðlungi stórt með sín 70.000 brúttótonn. Queen Mary II frá sama skipafélagi er t.a.m. 151.000 brúttótonn og það stærsta sem ég finn er Liberty of the seas hjá Royal Caribbean sem er um 160.000 brúttótonn.
Stærsta skip heims er olíuskipið Knock Nevis sem er hefur tómaþyngdina 565.000 brúttotónn, fulllestað er það 825.000 brúttótonn og gæti þar með þyngdarinnar vegna tekið bæði Queen Mary II og Queen Elizabeth II sem farm!
Þó að það sé gúrka núna er óþarfi að kasta til höndum í blaðamennskunni!
Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims í Reykjavíkurhöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:55 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Royal Caribbean á reyndar og rekur systurskip, Freedom Of The Seas og Liberty Of The Seas, sem eru 160 þúsund brúttótonn. Þriðja fleytan af sömu gerð, Independence Of The Seas, bætist í hópinn snemma á næsta ári. Þessi skip þykja setja ný viðmið í þjónustu og gæðum og skarta m.a. klifurvegg og skautasvelli!
Royal Caribbean rekur 21 skemmtiferðaskip og á einu þeirra, Brilliance Of The Seas sem telur rúmlega 90 þúsund brúttótonn, er íslenskur fyrsti stýrimaður, Þórður Þórsson. Þessi staða, fyrsti stýrimaður, ku vera trappa á leiðinni upp í skipstjórnarstöðuna. Gaman að því.
Snorri Sturluson, 13.6.2007 kl. 15:10
Takk fyrir innleggið Snorri. Mér finnast skemmtiferðaskip einstaklega spennandi fyrirbrigði og er stundum að skoða heimasíður þessara fyrirtækja. Mörg þessara skipa eru sannarlega glæsileg og gaman væri að hafa efni á því að fara í ferð með einu slíku. Kemur þótt síðar verði!
Haukur Nikulásson, 13.6.2007 kl. 15:40
Eftir því sem ég best veit eru QE2 og QM2 í sérflokki, þessi skip hafa miklu sterkari og veigameir skrokka og meira vélarafl en ný og í mörgu tilfellum stærri skemmtiferðaskip, enda "drottningarnar" byggðar til þess að kljást við vetrarstorma á norður Atlantshafi (og halda áætlun) læt til gamans getið að QE 2 getur náð allt að 20 hnúta hraða afturábak!!!!. Þannig að þær teljast ekki dallar þvert á móti.
Jóhann Hafsteinsson (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 16:10
Nú er Mogginn búinn að breyta fréttinni bæði skrifað og talaða textanum úr "Stærsta..." í "Eitt stærsta...". Vefurinn gefur möguleika á að lagfæra og það hefur bæði kosti og galla. Gallinn fyrir okkur sem gerum athugasemdirnar er að við erum gerð ómerk með þessu ef lesendur og hlustendur hafa ekki heyrt fyrstu útgáfu "fréttarinnar".
Haukur Nikulásson, 13.6.2007 kl. 16:10
Já, var svo ekki Titanic rétt um 46.000 brúttótonn? Það væri gaman að sjá samanburðarmynd af þessum risum í dag við hlið not-so-Titanic. Eins og ég er sammála að það sé gaman að svona risaskipum hversskonar, þá finnst mér samt vanta uppá elegansinn á þessum nýjustu og stærstu.. QEII hefur þó fegurð sem minnir á fyrri tíma skip Cunard, þ.m.t. Titanic.
Hip 2b^2, 13.6.2007 kl. 16:40
Þessi frétt á mbl.is er reyndar hátíð miðað við vitleysuna hjá ruv.is. Annars er dálítið fyndið að rifja upp að einu sinni þótti Maxim Gorkiy alveg hrikalega stórt skip, sem þó er "aðeins" 24.220 brúttótonn.
TJ (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 20:30
Jú, útvarpið talaði um að eitt stærsta skemmtiferðaskip heims væri hérlendis og hefur Mogginn, það annars ágæta blað, étið það upp eftir þeim. Ættu að vita betur en að hirða eitthvað upp eftir Rúv. Annars hljómar fyrirsögnin "um það bil miðlungsstórt skemmtferðaskip í Reykjavíkurhöfn" ekki vel.
Hvað um það, ég einhvernvegin skil ekki tilganginn með skemmtiferðaskipum. Sigla um saltan sæ með fullt af ókunnu fólki og komast ekki burt - þá er nú skárra að fara bara til útlanda með fluvvél og bóka sig á hótel, þá kemst maður allavega allra sinna ferða og iklu minni hætta á að maður sökkvi.
Ingvar Valgeirsson, 13.6.2007 kl. 21:54