8.1.2007 | 13:44
Viljum við áfram sjálfstætt Ísland eða er okkur bara sama?
Mikið er rætt um að íslendingar eigi að taka upp Evru og líka að við eigum að ganga í Evrópusambandið. Ég vil hvorugt. Og ég vil helst geta lofað því næstu fjögur árin. Fólk verður að geta treyst því að landið afsali sér ekki sjálfstæði sínu á næstu 4 árum. Það tók margar aldir að fá sjálfstæði, viljum við henda því eftir rétt rúm 60 ár?
Öll umræðan um aðild að Evrópusambandinu er bara á efnahagslegum nótum. Allt snýst um peninga og betri kjör. Ég heyri nánast enga umræðu um aðra þætti. Af hverju eigum við sérstaklega að ganga í Evrópusambandið frekar en að vinna að bættum samskiptum við ALLAR þjóðir? Af hverju fæ ég á tilfinninguna að Evrópusambandið sé álíka söfnuður og eineltisklíka í barnaskóla? Við eigum bara að mynda bandalög á heimsvísu til að sýna fram á að við séum öll á sama hnettinum með svipuð markmið til betra lífs.
Í fyrsta skipti á minni rúmlega 50 ára ævi er íslenska krónan einhvers virði og þá fyrst vilja menn í alvöru leggja hana niður! Gjaldmiðillinn er lítill og margir telja það að hann eigi ekki tilverurétt vegna smæðar sinnar og vanmáttar. Með svipuðum rökum getum við hætt að vera íslendingar sökum fámennis og vanmáttar, viljum við það?
Stórveldi eins og Bandaríkin eru nú helsta ógnin við heimsfriðinn. Evrópa stefnir að því að verða annað stórveldi á borð við Bandaríkin og geta því hæglega fengið annan álíka forseta og George W. Bush þegar fram í sækir. Ósætti tveggja slíkra leiðtoga eykur hættu á raunverulegri heimsstyrjöld. Er þetta það sem við viljum taka þátt í að skapa?
Ef heimurinn er hins vegar settur saman úr minni stjórneiningum er þar af leiðandi minni hætta að vondir leiðtogar leiði heilu heimsálfurnar í stríð til ná fram markmiðum sínum.
Bush þurfti ekki innrás í Írak til að koma Saddam Hussein frá völdum. Ein vel stýrð byssukúla hefði nægt til að ná fram því markmiði. Markmiðið með innrásinni var raunverulega að ná völdum yfir olíuauðnum. Þetta ætti hverju barni að vera ljóst.
Ísland á að vera áfram sjálfstætt ríki og láta rödd sína heyrast á alþjóðavettvangi í anda friðar og bræðralags. Látum duga að vinna í gegnum sameinuðu þjóðirnar. Seljum ekki torfengið sjálfstæði okkar í vanhugsaðri auragræðgi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 265322
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Ísland á að vera sjálfstætt land með eigin gjaldmiðil.
Ekki er ég neinn hagfræðingur, en samt er ég svolítið stoltur af þeirri greiningu sem ég gerði á fjármalaástandinu fyrir um það bil 10 árum síðan. Hún var þessi:
Það er engin von til þess að nokkurt vit fáist í hagstjórnun þessa lands á meðan verðtrygging er við lýði. Leiðin til að ná tökum á háum vöxtum og verðbólgu hér á landi er þessi:
1. Afnema verðtryggingu.
2. Setja í starfsleyfi banka, að þeir verði að lána almenningi til húsnæðiskaupa á föstum óbreytanlegum vöxtum til 25 eða 40 ára. Annars fái þeir ekki að starfa.
Til hvers?
Svarið er einfalt: Á meðan verðbólguskot rýrir ekki tekjur bankanna gera þeir ekkert til að koma í veg fyrir það.
Bankar hafa aðeins eitt markmið: Að græða. Þar af leiðandi er þeim til góða að verðbólgan hoppi af stað. Það hefur sýnt sig undanfarið að bankarnir eru með methagnað, nú í verðbólguskotinu.
Fyrir nokkrum árum, skömmu áður en framkvæmdir við virkjun og álver fóru af stað, heyrði ég viðtal við einhvern greiningarsnilling sem lýsti því hvernig horfur væru á að verbólga og stýrivextir myndu þróast næstu árin, hvenær verðbólgan yrði mest, hve háir stýrivextir seðlabankans myndu verða og hvenær. Eins og mig rekur minni til, virðist mér þetta hafa staðist upp á punkt og prik. Þá vaknar þessi spurning:
Hefðu bankarnir hagað sér eins, ef þeir hefðu verið með stóran hluta sinna útlána á föstum vöxtum og án verðtryggingar?
Svari hver fyrir sig.
Hjörtur Árnason (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 20:51