8.2.2009 | 19:41
Er geðrannsókn orðin tímabær?
Það er ekki eðlilegt að láta svona eins og Davíð Oddsson. Ég legg til að maðurinn fái tíma hjá geðlækni. Ég ætla mér ekki að tjá mig um líklegar niðurstöður en myndi byrja að leita eftir mikilmennskubjrálæði.
Það er með ólíkindum að ekkert skuli geta haft áhrif á dómgreind þessa manns á sjálfum sér. En það er nú samt líklegt að skýringa megi leita í þeim sem ennþá umgangast hann. Þeir eru þar vegna þess að Davíð losar sig alltaf við þá sem andmæla honum, ALLTAF!
Davíð segir ekki af sér | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:43 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Veit varla hvort geðlæknisfræðin nái utan um svona víðtæka steypu.
Með illu fer hann, ef ekki góðu.
hilmar jónsson, 8.2.2009 kl. 19:44
ég skil ekki hvað þú ert að andmæla honum Davíð, það er eins og hann hafi skrifað fyrir þig allt um niðurskurðin(höfundur). Ég hef alltaf talið mjög heimskulegt að ætla að kenna einum manni um kreppuna en það virðis vera tilhneying vinstimanna hér á fróni. Það er alveg sama hvað það er hvort sem það er veðrið, færðin eða efnahagsmálin að þá er það Dabba að kenna. Hvernig er með mennina sem stálu blessuðu peningunum ??
Baldur M Róbertsson (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 20:29
Mér finnst þessi ummæli þín afar ósmekkleg og lýsa höfundi þeirra meira en nokkuð annað.
Gisli Freyr Valdórsson (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 20:32
Gísli: Flestar færslur sem komið hafa frá þér, á þinni bloggsíðu hafa verið uppfullar af ósmekklegheitum.
En þú passar þig nú á að bjóða ekki upp á komment á síðunni þinni. Man reyndar eftir því þegar þú hættir að bjóða upp á komment, eftir að þú gekkst fram af fólki með fúlum fordómum, og fékkst síðuna þína fulla af mótmælum. Þú skalt sleppa því að kasta grjóti úr þínu glerhúsi.
hilmar jónsson, 8.2.2009 kl. 20:45
Hver er sök Davíðs?
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.2.2009 kl. 20:49
Hann Davíð er bankastjóri í Seðlabanka sem hefur tapað einhverjum hundruðum milljarða, öllu eigin fé sínu og meiru til. Þarf meira til að menn þurfi að axla ábyrgð Gunnar. Telurðu virkilega að það sé til eitthvað siðmenntað ríki þar sem annað eins mundi viðgangast????
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 8.2.2009 kl. 21:00
Gunnar: Sök Davíðs er.
A) Hann er gerspilltur stjórnmálamaður, úr gerspilltum flokki, báðir hafa verið allt of lengi við völd og eru orðnir veruleikafirrtir.
B) Hann er óhæfur sem Seðlabankastjóri, mikill meirihluti þjóðarinnar, og stór hluti sjálfstæðismanna vilja hæfan, óháðan seðlabankastjóra.
C) Hann hefur valdið þjóðinni óbætanlegan skaða með ummælum sínum um icesave reikningana og er ábyrgur fyrir að hafa framfylgt frjálshyggju-einkavinavæðingu stefnu sem hefur kafsiglt þjóðarskútunni.
Gunnar Th. Gunnarsson. Hættu að spyrja heimskulegra spurninga!
smg, 8.2.2009 kl. 21:03
Já og...
Davíð á Klepp?
Ekki spurning.
smg, 8.2.2009 kl. 21:04
1. Gunnar TH: Davíð brást eftirlitsskyldu sinni, auk þess hafði hann í frammi óábyrgrar og dómgreindarlausar yfirlýsingar í kjölfar bankahruns. Valdur að hryðjuverkalögum Breta gagnvart Íslendingum.
hilmar jónsson, 8.2.2009 kl. 21:10
Jóhanna segist vilja losna við Davíð til þess að skapa traust og trúverðugleika á Seðlabankanum. Skapa trúverugleika gagnvart hverjum? Samfylkingarfólki og v-grænum? Ekki virtist skorta á trúverugleikan gagnvart Seðlabankastjórninni þegar AGS lánaði okkur. Ekki heldur vilyrði ýmissa þjóða til hins sama. Gerðu þessir aðilar kröfu um að Davíð yrði vikið frá?
Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar munu liggja fyrir í nóvember. Ég get alveg beðið rólegur þangað til, en vinstrimenn vilja flýta aftökum áður en það verður of seint. Þeir óttast niðurstöður nefndarinnar.
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.2.2009 kl. 01:37
"Valdur að hryðjuverkalögum Breta gagnvart Íslendingum" segir Hilmar. Væntanlega er hann þá að tala um yfirlýsingar Davíðs í sjónvarpinu, hvar hann sagði að landsmenn ættu ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna. Margir kenndu þessum orðum Davíðs um þegar Bretar settu landið á lista við hlið Al-Quaida - þrátt fyrir að skömmu áður hefði Össur Skarphéðinsson, þá settur utanríkisráðherra, sagt nákvæmlega sama hlutinn. Svo sagði forsætisráðherra Breta að aðgerðirnar væru afleiðing símtals hans við Árna Mathiesen, símtals sem seinna var birt og sýndi og sannaði að hryðjuverkalögin eru vanhugsað spark út í loftið að hálfu Breta. Virtist til þess eins gert að leiða hugann frá þeirra eigin klúðri, sem er engu minna en hérlendis.
Nú segir forsetinn það sama og Davíð, skattborgarar Íslands eiga ekki að borga inneignir þýskra sparifjáreigenda hjá Kaupþingi. Pottar og pönnur fyrir utan Bessastaði? Eða er þetta kannski bara rétt, það sé ekki ástæða til þess að við borgum inneignir fólks, sem lagði fé sitt inn hjá banka sem það þekkti hvorki haus né sporð á í þeirri von að það fengi hærri vexti?
Ingvar Valgeirsson, 10.2.2009 kl. 11:08
Davíð olli falli Glitnis banka. Það olli falli hinna bankanna. Neyðarlögin okkar gangsettu hryðjuverkalög Breta. Er Davíð þá valdur að hryðjuverkalögnum? - Hann á óneitanlega aðgerðina sem setti ótímabært hrun í gang.
Atvikaröðin er löngu ljós í þessu Ingvar.Gjamm í fólki eftir að atburðarásin er orðin óhjákvæmileg skiptir litlu Ingvar. Forsetinn er ekki að hafa áhrif í þessu þó einhverjum finnist það vanhugsað eða ósmekklegt í stöðunni.
Minn ótti er sá að skuldir þjóðarinnar séu hátt í 10.000 milljarðar og séu þess vegna komnar langt yfir viðráðanleg mörk þó við hefðum á annan áratug til að borg. Ég spái því að það verði erfitt fyrir margt fólk að halda sönsum þegar sannleikurinn verður að fullu kominn fram. Því miður.
Enn er eftir að rannsaka hvað auðmennirnir gerðu af sér. Það er miklu lokaðra fyrir okkur heldur en gerðir stjórnmálamannana. Ég óttast líka að það muni koma talsverður skítur í ljós hjá mörgum þeirra. Eitthvað segir mér að það verði einna minnst hjá Jóni Ásgeiri, hann var meira í því að reka alvöru fyrirtæki heldur en flestir pappírspésarnir. Ég hef samt ekkert fyrir mér í því og tek þess vegna ekki að mér að gefa honum eitthvert heilbrigðisvottorð frekar en hinum.
Haukur Nikulásson, 10.2.2009 kl. 20:47