25.8.2008 | 18:23
Tregða við að útrýma kjarnorkuvopnum verður mannkyninu dýrkeypt
Við sjáum af öllum viðbrögðum þjóðarleiðtoga að þeir eru yfirleitt með stuttan spotta. Marga þeirra beinlínis langar í átök til að viðra hertól og tæki. Þeir sem hafa völd hafa líka þá sérstöku og skiljanlegu náttúru að vilja sýna vald sitt.
Stórveldi eru sérstakt vandamál. Þrjú ríki geta í dag komið af stað heimsstyrjöld. Evrópusambandið gerir allt sem það getur til að verða fjórða aflið í heiminum.
Þrátt fyrir að margir trúi á mátt og megin stórra stjórneininga er gallinn sá að þeim er oft stjórnað af gölluðum toppum sbr. George W. Bush.
Þessi galli er einmitt sýnilegur í þeirri staðreynd að allt of mörg ríki eiga allt of mikið af kjarnavopnum og hefur mistekist að eyða þeim þrátt fyrir þá augljósu staðreynd að enginn geti hagnast af notkun þeirra. Heimurinn á heimtingu að samfélagið, sem aldrei hefur verið upplýstara, losi sig við þessa ógn.
Kjarnavopnum verður bara beitt í fullkomnu dómgreindarleysi og hvers vegna er þá verið að viðhalda þeim?
Samband við Rússa endurskoðað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Þau koma í veg fyrir að leiðtogar heimsins sjái sér hag í því að starta nýrri heimsstyrjöld.
Héðinn Björnsson, 25.8.2008 kl. 19:33
Tek undir með Héðni, það hefði amk ein stórstyrjöld verið háð (Stalín hefði sett það af stað 1949 - 1951), ef ekki hefði verið fyrir kjarnavopn. Guði sé lof.
Júlíus Sigurþórsson, 25.8.2008 kl. 20:15
Héðinn og Júlíus, þið megið að sjálfsögðu halda þessu fram. Í þessu máli verður ekkert sannað eða afsannað.
Þið trúið því bara að þetta haldi friðinn á meðan ég trúi því að þau verði notuð fyrir vitleysissakir fyrr en síðar eingöngu vegna þess að þau eru til. Styrjaldirnar verða háðar með hverjum þeim vopnum sem bjóðast þegar menn taka ófriðarköstin sín og skiptir þá engu hvort bomburnar eru stórar eða smáar. Ef ætlunin er að drepa er gripið til þeirra verkfæra sem til eru, svo einfalt tel ég það vera.
Haukur Nikulásson, 25.8.2008 kl. 21:58
... og Júlíus: Auðvitað þökkum við Guði fyrir kjarnavopnin!
Haukur Nikulásson, 25.8.2008 kl. 22:04
Ég held að árásirnar á Japani ´45 hafi haft gríðarlegan fælingarmátt. Einhvernvegin held ég að styrjaldir hefðu verið stærri og mannfall meira á seinni hluta síðustu aldar ef kjarnavopn hefðu ekki verið til beggja megin járntjaldsins. En eins og þú segir, það verður ekkert sannað eða afsannað - þó hafa einhverjir gamlir rússneskir generálar haldið þessu fram. Mögulega var það þó kryddað verulega eða sett fram í ölæði, hver veit. Þeir sögðu reyndar líka einhverjir austantjalds að nokkrum sinnum hefði átt að ráðast á Ísland og hertaka - hver veit?
Ingvar Valgeirsson, 25.8.2008 kl. 22:10
Ég er nokkuð (mjög) viss um að kjarnavopn hafi verið geymd á Keflavíkurflugvelli þegar ég starfaði þar 1976-1982. Ég var reyndar bara skrifstofumaður þar og gegndi þar starfi millistjórnanda í almennu bókhaldi sjóhersins. Mér fannst athyglisvert að sjá fært í bókhaldið kaup á spjöldum sem báru áletrunina: Warning - Nuclear Reactor. Til hvers að útvega svona spjöld ef engir kjarnaklúfar væru á staðnum?
Mér finnst þess vegna jafn líklegt að bandaríkjastjórn hafi logið að islenskum stjórnvöldum þegar því var lofað að kjarnavopn yrðu ekki geymd á vellinum. Það er því heldur ekki ósennilegt að rússar hafi vitað þetta líka. Hjá þeim var það örugglega sjálfgefið að telja að allar herstöðvar bandaríkjamanna hefðu kjarnavopn á staðnum.
Á þessum tíma var tortryggni og viðbúnaður kalda stríðsins í hámarki. Á þessum tíma var óttinn líka mjög raunverulegur.Haukur Nikulásson, 25.8.2008 kl. 22:37
Ég þarf varla að taka fram að ég tel að Ísland hafi verið raunverulegt skotmark rússa, eins og Ingvar reyndar gefur í skyn með annars konar sögusögnum af misdrukknum rauðahersgenerálum.
Haukur Nikulásson, 25.8.2008 kl. 22:52
Hjá þeim var það örugglega sjálfgefið að telja að allar herstöðvar bandaríkjamanna hefðu kjarnavopn á staðnum.
Það var líka stefna Bandaríkjamanna að gefa ekki upp hvaða herstöðvar hefðu kjarnavopn.. þetta var gert í þeim tilgangi að hafa skotmörkin svo mörg að þeir mundu sleppa með eina og eina herstöð... fat chance..
en já það er pottþétt að KEF hafði kjarnavopn, og þá sérstaklega kjarnavopn sem ætluð voru til að granda kafbátum.
Óskar Þorkelsson, 25.8.2008 kl. 22:58
Við getum þakkað fyrir kjarnavopnin á meðan þau eru ekki notuð. En heldur þú ekki að Sovétríkin og NATO hefðu ekki farið í stríð ef engin hefðu verið kjarnavopnin? Ég er nokkuð viss um að þau héldu aftur að mönnum á þeim árum. Þeir vissu nefnilega að ef þeir tækjust á og hallaði á annan hvorn, þá myndi viðkomandi beita kjarnavopnum.
Hvað varðar kjarnavopn á Kefl. og á Íslandi, þá er ég viss um að einhvertímann hafa slík vopn verið hér. Millilent í flutningi til Bretlands, en amk um borð í kafbátum sem skriðu meðfram ströndinni beggja vegna landsins. En hávaði frá brimi hjálpar kafbátum við að laumast framhjá hlustunarkerfum.
En Sovétmenn voru mjög tortryggnir gagnvart Bandaríkjamönnum. Og það er öruggt það sem Óskar sagði um skoðanir þeirra.
Gott dæmi er 1972, þegar bann við notkun sýkla- og eiturefnavopna tók gildi. Þá var meiningin að taka þau úr vopnabúri Bandaríkjamanna. Enda eru þetta ódýrustu vopnin m.v. skaðsemi og því auðvelt að valda miklu tjóni fyrir lítinn pening með þeim. En Sovétmenn voru sannfærðir um að þetta væri blekking hjá Kananum og því settur þeir rosa kraft í framleiðslu á efnavopnum, auk þess sem þeir smíðuðu risa verksmiður til að framleiða sýklavopn. Og gerðu allskonar tilraunir með sýkla til að gera þá hættulegri. Og þeir eru enn þann dag í dag að vandræðast með að eyða þessu öllu. Mörg hundruð þúsund tonn af taugagasi og fleiri óþverra sem þeir eru að eyða.
Júlíus Sigurþórsson, 26.8.2008 kl. 00:02