7.3.2007 | 10:58
Óþolandi yfirlæti Ingva Hrafns Jónssonar á útvarpi Sögu
Ingvi Hrafn Jónsson fór mikinn á útvarpi Sögu. Kallar Ómar Ragnarsson "vin sinn" en segir hann samt í "sorglegri" stöðu og vera í kjánaskap með væntanlegu framboði sínu. Margrét Sverrisdóttir er "frekjudós" sem hafi ekkert fylgi. Jakob Frímann vilji enginn í pólitík og hann eigi bara að vera "Stuðmaður".
Ingvi Hrafn hélt áfram og úthúðaði Arndísi Björnsdóttur, Arnþóri Helgasyni og fleirum, sem hafa hug á framboði aldraðra. Kallaði hann allt þetta lið "lúsera" og óánægjulið sem fengju mjög takmarkað fylgi.
Allir nema Sjálfstæðismenn eru óalandi og óferjandi og Geir Haarde afgreiðir sín mál af "tærri snilld".
Ingvi Hrafn er ómerkileg manngerð, snobbhænsni og hrokagikkur sem sér heiminn bara í svart-hvítu. Það virðist mikið vanta upp á manngæsku þessa orðháks. Hún nær bara til hans nánustu og Sjálfstæðisflokksins. Yfirlætistónninn í honum er í meira lagi ógeðfelldur og hann er umtalsillur með afbrigðum. Myndi hann þora að tala svona beint framan í fólkið sem ég taldi hér að ofan?
Með kjafthætti sínum veitir hann mönnum eins og mér þann rétt að hafa óritskoðaða skoðun á honum og persónu hans. Hann á meira inni en þetta!
Hann líklega einn öfgafyllsti hægri maður sem fundist hefur á Íslandi og er þá miklu til jafnað með menn eins og Hannes Hólmstein Gissurarson ennþá á landinu.
Betra væri að hann skírði einkafjölmiðilinn sinn nafni sem hæfði betur: "Mykjudreifarinn" í stað ÍNN sem enginn veit hvað er. Sem betur fer verður þessi fjölmiðill hans hulinn flestum.
Því meira og betur sem Ingvi Hrafn úthúðar nýjum framboðum, þeim mun meira fylgi munu þau fá. Það tekur enginn lengur mark á bullinu í honum. Almættið hjálpi íhaldinu, að hafa svona talsmann!Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.3.2007 kl. 08:13 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt
- Vefsíða Reykjavíkurframboðsins X-E Kjóstu eigin hagsmuni... ekki fjórflokksins
- Hljómsveitin HÆTTIR Bandið okkar Gunna Antons
- Breytum kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum
- Sparnaðar- og umbótatillögur fyrir Ísland Sparnaðartillögur fyrir íslenska þjóð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Benedikt Halldórsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Nanna Guðrún Marinósdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Eurovision
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Hin fréttastofan
- Púkinn
- Samtök Fullveldissinna
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Gunnar Pálsson
- halkatla
- Halldór Fannar Kristjánsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Himmalingur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jón Agnar Ólason
- Jens Guð
- Jóhannes Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Brjánsson
- Kári Harðarson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kristján Hreinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- kreppukallinn
- Karl Tómasson
- Lára Stefánsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Haraldur Hansson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Ólafur Als
- Gísli Tryggvason
- Jón Árni Sveinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Róbert Björnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sandra Dögg
- Ingi Geir Hreinsson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Heiða B. Heiðars
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Kristján Logason
- Styrmir Hafliðason
- Svartinaggur
- Sverrir Einarsson
- Sveinn Arnarsson
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Tómas Þóroddsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hrafn Jökulsson
- Geiri glaði
- Valgeir Ómar Jónsson
- Vefritid
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Árnason
- sto
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Björn H. Björnsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Já Haukur þarna er eg sko á sama máli/maðurin fer offari og það er engum til framdáttar/Halli Gamli P/S hvernig nær maður þessari stöð hans!!!!
Haraldur Haraldsson, 7.3.2007 kl. 11:23
Ef ég á að segja eins og er, þá finnst mér Ingvi Hrafn varla þess virði að um hann sé rætt.
Jóhannes Ragnarsson, 7.3.2007 kl. 11:35
Halli, mér skilst að þú þurfir að vera inn á breiðvarpi Símans eða Digital Ísland eða eitthvað þess háttar sem ég er ekki lengur með.
Haukur Nikulásson, 7.3.2007 kl. 12:10
Sleggjudómar Yngva Hrafns eru honum sjaldnast til sóma og óþarfi að taka þátt í slíkum slag. Hér á þessu bloggi hafa verið sett fram sjónarmið sem kalla á hófsemi og skal tekið undir slík orð. Pillan gagnvart Hannesi sýnir e.t.v. að ekki er fullur skilningur á ýmsu sem sá maður hefur viðrað en flest hefur það verið án öfga. Hins vegar hefur hann kynnt nýstárleg sjónarmið eða nálganir, sérstaklega á árum áður, sem óþarfi er að draga í dilk með öfgafullri hægristefnu. Á árum áður lögðu vinstri menn Hannes í einelti vegna þess að þeim gekk oft illa í rökræðu við hann og réðust m.a. að persónu hans og báru út óhróður um hann. Uppnefningar voru m.a. þeirra yndi. Vonandi ert þú ekki kominn í þennan hóp Haukur.
Ólafur Als, 7.3.2007 kl. 13:38
Hannes Hólmsteinn á rétt á sínum skoðunum. Við þurfum ekki endilega að vera sammála um leiðirnar að betra lífi. Hannes hefur bara aðrar skoðanir og mér finnast margar hverjar ekki hófsamar og finnst þær þess vegna öfgasinnaðar, miðað við mínar.
Yngvi Hrafn, er vegna skorts á almennri háttvísi, á öðru plani en nánast allir aðrir. Ég mun ekki agnúast frekar út í hann en orðið er. Ég er að átta mig á því að rétt sé að hlýta ráðleggingum Jóhannesarw hér í Aths. 2.
Haukur Nikulásson, 7.3.2007 kl. 14:35