Þess vegna eru íþróttir svona skemmtilegar

Það er ótrúlega stutt á milli þess að okkar íþróttafólk sé annað hvort safn af skúrkum eða hetjum.

Núna eru þetta bara hetjur. Landsliðið í Badminton orðin A-þjóð með glæsilegum sigri í B-keppninni. Til hamingju krakkar!

Fór í badminton sjálfur á meðan landsleikurinn við Frakka var og okkur þótti salurinn frekar þunnskipaður, enda margir að fylgjast með hreint ótrúlegum leik. Inn á badmintonvöllinn fengum við þessar æðislegu hálfleikstölur. Þér héldu svo haus í seinni hálfleik og við fáum að fylgjast með þeim í keppni þeirra bestu áfram. Glæsilegt!

Svona íþróttadagar í skammdeginu gera allt heiðbjart. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Fannar Kristjánsson

þetta kennir okkur líka eitt, þessi sigur... allt er hægt, ef metnaður og geta eru til staðar í það minnsta. Ég er til dæmis mikill bjartsýnismaður og stend í þeirri trú að einn maður geti gert kraftaverk, og finnst mér nú sagan hafa kennt okkur það að svo sé.

Halldór Fannar Kristjánsson, 23.1.2007 kl. 03:05

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 265495

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband