Steingrímur ótrúverðugur og fullur þversagna

Ég er að hlusta á Steingrím J. í kastljósi og hann er hreint að gera mann æfann.

Honum er fyrirmunað að skilja að þjóðin vill ekki greiða lán sem hún tók ekki heldur fjármálasóðar bankanna og lætur eins og að vitleysa spilltrar ríkisstjórnar og ónýtra eftirlitsaðila vegna reksturs einkabanka eigi að vera á ríkisábyrgð okkar hinna.

Það kom berlega fram í Kastjósviðtalinu að hann hefur ekki hirt almennilega um það að láta breta og hollendinga höfða mál á hendur okkur skv. íslenskum dómstólum. Sú einskæra ræfilshugsun ræður hjá honum að þeir hafi hafnað því! (SO WHAT? SUE ME!)

Við læknum ekki lánafíkn með nýjum lánum. Einhvers staðar verðum við að hætta þessar lánaneyslu og alveg eins gott að hætta því skyndilega og ná þjóðinni saman í tímabundnar aðhaldsaðgerðir og nýtt lífsmat. Það er engin framtíð fólgin í því að ætla að skulda allt Icesave dæmið næstu 7 árin auk þess að skulda AGS, norðurlöndunum, færeyingum, rússum og pólverjum stórar fjárhæðir. Það er engin þjóðarframleiðsla hér í sjónmáli til að standa undir áframhaldandi lántökum.

Eins mikið og Steingrími lá að kenna öðrum um hefur hann sjálfur algerlega heykst á því að beita áhrifum sínum til að koma efnahagsglæpamönnum undir lás og slá og sýna með því að hann sé eitthvað annað og meira en kengbeygður þreyttur áskrifandi að vænum launum sem þingmaður og ráðherra.


mbl.is Svigrúm til að setja skilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"kengbeygður þreyttur áskrifandi að vænum launum"

Góður Haukur!

Er þetta ekki bara Steingrímur í hnotskurn eins og þú lýsir honum þarna.
Fyrir mér er hann mesti froðusnakkurinn á alþinig.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 20:21

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Við erum að verða ótrúlega sammála

Jón Aðalsteinn Jónsson, 6.8.2009 kl. 20:23

3 identicon

Það var aumt að sjá Steingrím fjármálaráðherra í kastljósinu áðan þar sem
fram kom hjá honum að hann er tilbúinn að bakka með allar skoðanir einungis
til að halda ráðherrastólnum og varna því að sjálfstæðisflokkurinn komist
til valda aftur. Það er hörmung að hafa svona einstaklinga til að stjórna
landinu og ef einhver gæti komið með lausn á því hvernig hægt er að víkja
svona fólki úr sæti væri það vel þegið frá minni hálfu. Hann er til í að
semja um allt bara ef hann getur haldið áfram að sitja í ráðherrastól
jafnvel þótt það kosti landsmenn alla skuldagíslingu mörg ár fram í tímann.
Hryllingur!

Edda (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 20:30

4 Smámynd: Jón Sveinsson

Sæll Haukur Steingrímur er bara svo ástfanginn af henni Jóhönnu sinni að landslýðurinn er ekkert annað en skiptiminnt handa breskum og hollenskum yfirvöldum,

Jón Sveinsson, 6.8.2009 kl. 20:56

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Edda setur hér fingur á púlsinn.  Það er nefnilega nákvæmlega þetta sem ég upplifi.  Allt er betra en fyrri ríkisstjórn, jafnvel þó hún sé alveg jafn slæm.  Bara ef sjallarnir komast ekki að aftur.  Mig langar svo sannarlega ekki að fá spillingarliðið í Sjálfstæðisflokknum og Framsókn í ríkisstjórn aftur.  En það þýðir ekki að bara til að það gerist ekki vilji ég réttlæta allt sem nýja stjórnin gerir, eða það sem hún nákvæmlega gerir ekki neitt.  Þau segjast vinna dag og nótt.  Væri ekki nær að ráða fleira fólk í vinnu, nóg er af að  taka og það margir sérfræðingar reiknmeistarar og allskonar fræðingar, sem geta örugglega kynnt sér málin af meiri skynsemi en nú er gert.  Nei það er eitt eða annað.  Stundum held ég að það vanti alveg skrúfu í okkar þjóðarsál.  Hugsunin er oft svo takmörkuð að maður gæti hreinlega grátið.  og þess vegna er allt eins og það er.  Vandinn er ekki ríkisstjórnirnar útrásarvíkingarnir eða bretar og hollendingar, vandamálið erum við sjálf.  Sem látum allt yfir okkur ganga, nöldrum í eldhúskróknum, en látum síðan gjörsamlega vaða yfir okkur.  Og ef einhverjir reyna að leiða okkur út úr þessu, til dæmis með búsáhöldum eða með nýjum framboðum, er strax hraunað yfir allt slíkt.  Gamla tuggan skal tugginn hvernig sem allt veltur.  Ójá. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.8.2009 kl. 21:19

6 Smámynd: Sigurjón

Leit ég standa lotinn mann,
leysa band af tösku.
Þar að vanda hafði hann,
hálfa landaflösku.

Sigurjón, 7.8.2009 kl. 18:34

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband