Fékk starfið og tapar því aftur af sömu ástæðum: Pólitík

Það hefur ekkert með það að gera hvort Tinna hafi gegnt þessu starfi vel eða illa. Hún fékk það vegna pólitískra tengsla og tapar því af nákvæmlega sömu ástæðum.

Ég skal fyrstur játa hissu mína ef þetta fer ekki svona.


mbl.is Tinna sækir um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er greinilegt að maskínan er komin í fullan gír. Það á að henda út úr Þjóðleikhúsinu atvinnumanneskju í greininni, fv. formanni félagsins og farsælum leikhússtjóra og troða þarna inn afdönkuðum pólitíkus sem varð það á að segja þá skoðun sína að Íslendingar ættu ekki að fara í olíuleit á Drekasvæðinu. Dúsu fyrir pólitíkusana, er þetta hið nýja Ísland?? Svei!

Fyrrverandi þingmann og ráðherra í þægilegt embætti og út hent manneskju sem aldrei hefur í pólitík komið.

Þetta myndi líta ansi illa út ef ekki væri gripið til einhverra ráða. Og hvað skal til ráða tekið? Jú, klína sem mestri drullu á núverandi leikhússtjóra og vona að eitthvað af því festist. Gefa í skyn að viðkomandi hljóti að hafa fengið embættið með ankannalegum hætti og því sé þessi sirkús nú réttlætanlegur.

Og af hvurju ættu þessar skítugu aðferðir ekki að virka til að koma flokkstruntunum að? Þetta hefur virkað hingað til.

Kolbeinn (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 08:56

2 identicon

Veistu hvað er best?

íslendingar eiga mann sem er sérmenntaður í rekstri leikhúsa. Vel menntaður maður sem væri hæfari en þessar tvær kellingar sér í lagi Kolbrún sem er ekki hæf til að vera setan á sætinu mínu :)

Nei, þetta mun fara þannig að ofurhræsnararnir í VG munu skella henni þangað og basta.

Eftir ár mun ég benda á þessi 51 % landsmanna og með tárin í augunum segja "i told you so".

Hallur (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 09:03

3 Smámynd: Sævar Einarsson

Það er alveg á hreinu og jafn öruggt og 2 + 2 séu 4 að Kolbrún Halldórsdóttir fær þetta djobb rétt á meðan hún er ekki á þingi, segi það og rita það.

Sævar Einarsson, 11.5.2009 kl. 09:08

4 Smámynd: corvus corax

Er ekki Kolbrún Halldórsdóttir menntuð í leikhúsfræðum, leikari, leikstjóri eða eitthvað svoleiðis?

corvus corax, 11.5.2009 kl. 10:20

5 Smámynd: corvus corax

Eftir á að hyggja ...ef þessi auglýsing eftir leikhússtjóra verður notuð til að bola Tinnu út er það ekkert nýtt. Björn spillingarkóngur Bjarnason notaði nákvæmlega þessa aðferð til að losa sig við Jóhann R. Benediktsson sýslumann á Keflavíkurflugvelli svo hann gæti spillingarskipað einhverja sjálfstæðisdruslu í starfið hans.

corvus corax, 11.5.2009 kl. 10:22

6 Smámynd: Sævar Einarsson

Tinna Gunnlaugsdóttir lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1978 svo hún er líka vel hæf, en vittu til, henni verður bolað í burtu af VG. Einnig var Tinna Gunnlaugsdóttir forseti Bandalags íslenskra listamanna um árabil áður en hún tók við starfi þjóðleikhússtjóra í jan 2005

Sævar Einarsson, 11.5.2009 kl. 10:27

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Mikið eru þetta dapurleg skrif, um stöðu eða starf Þjóðleikhússtjóra.  Það hefur nú þegar komið fram á  mbl.is að Tinna Þ. Gunnlaugsdóttir ætlar að sækja um áframhaldandi starf sem Þjóðleikhússtjóri.

    Auðvitað  mun Tinna verða ráðin áfram til starfsins, enda væri það út i hött á þessum verstu og erfiðustu  tímum Íslandssögunnar, að ætlast til,  að nýr Þjóðleikhússtjóri gæti sett sig inn í það starf sem þarf,  til að vinna á væntanlegu niðurskurðartímabili sem nú fer í hönd. - Tinna er undir það búin að,  aðlaga leikhússtarfið að þeim kröfum sem verða gerðar til leikhússins.

   Og þá er ég ekki að gera lítið úr væntanlegum umsækjendum um starf Þjóðleikhússtjóra.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.5.2009 kl. 18:50

8 Smámynd: Einar Guðjónsson

Mín kenning er sú að Jón Bjarnason verði Þjóðleikhússstjóri en ráðherradómur hans

rennur út  innan tveggja ára.Höfuðástæðan fyrir ráðherradómi hans var til að tryggja honum betri eftirlaun. Þegar hann hverfur úr ráðherrastóli þá gæti hann sinnt starfi Þjóðleikhússtjóra á fullum eftirlaunum sem ráðherra.Þetta hefði líka í för með sér sparnað á einum pósti.

Að ráða Jón yrði líka til vegsauka fyrir innlenda leikritun og þá myndum við líka sjá verk sem hafa ekki sést lengi: Gullna hliðið, Skugga Svein, Nýársnótt...

Einar Guðjónsson, 11.5.2009 kl. 23:55

9 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Einar og fl. hérna hættið að tala svona. Ég er svo gjörsamlega búin að fá nóg af allri pólitískri spillingu að mér er orðið flökurt á að lesa athugasemdirnar hérna.  Það á að ráða fólk í stöður eftir menntun og starfsferli þeirra og pólitíkin á ALLS EKKI að koma þar nálægt. Ef VG og Samfylking ætla að fara að haga sér eins og hinir flokkarnir eru búnir að gera undanfarin ár, þá geta þeir komið sér í burtu eins og skot. Ekki meiri spillingu hér á landi. TAKK ! 

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 12.5.2009 kl. 06:59

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband