Hvar er myndin af sigurvegaranum?

Þessi frétt er að sjálfsögðu skilgetið afkvæmi ráðandi afla á Mogganum. Þeirra maður er á myndinni með fréttinni en ekki sigurvegari kosninganna.

Segið mér svo að þessi miðill sé óhlutdrægur og málefnalegur á ritstjórninni.


mbl.is Ragnheiður Elín sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Algjörlega hlutlaus miðill Moggi, hefði fyrrv. Kvíabryggjubóndinn endað í 3. sæti t.d. þá hefðu þeir samt birt mynd af honum en ekki sigurvegara prófkjörsins. Römm er sú taug stendur einhverstaðar, þrátt fyrir að hafa misnotað vinskap sinn við Mogga hér um árið við að reyna að klóra sig út úr glæpaveseninu.

Allir að gerast áskrifendur að Mogga í Eyjum í þakklætisskyni. Nú verða Eyjamenn að reyna með öllum ráðum að koma Árna á þing svo þeir sitji ekki uppi með hann út í Eyjum.

Ég fer að trúa þessarri kenningu um að Eyjamenn kjósi Árna bara til að losna við að hafa hann úti í Eyjum.

Sverrir Einarsson, 15.3.2009 kl. 09:05

2 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Spái miklum útstrikunum og miklu meiri en síðast. Léleg þáttaka í prófkjöri á suðurnesjum og gríðarlegur áhugi eyjamanna á að setja sitt fólk efst leiddi til þess að Árni er þarna. Gríðarlegur fjöldi kjósenda strikaði yfir hann síðast og ég það verður að teljast líklegt nú þegar mikilla breytinga er krafist að útstrikanir verði enn meiri núna. Tel hann lágmark falla um 2 sæti í kosningunum.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 15.3.2009 kl. 10:56

3 Smámynd: Sigurjón

Þetta er stórskrýtið...

Sigurjón, 16.3.2009 kl. 01:34

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ætli menn séu ekki bara að fagna því að Árni náði ekki 1. sætinu? Flugeðlum hefur verið skotið upp af minna tilefni.

Annars græða þeir lítið á að birta myndir af honum núna, prófkjörið er búið og því óþarfi að auglýsa hann mikið. Svo má benda á að stundum hefur komið mynd af Bush þegar fjallað var um Saddam Hussein og fleira í þeim dúr. Ekki missa sig í samsærisflokknum.

Ingvar Valgeirsson, 16.3.2009 kl. 08:47

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er nú bara Mogginn í hnotskurn að mínu mati.  Og ekki á þetta eftir að batna eftir inngrip L.Í.Ú.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2009 kl. 20:39

6 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Ekki kann ég neina skýringu á þessari einkennilegu myndbirtingu, en það er af og frá að Árni Johnsen sé í sérstöku uppáhaldi hjá Moggamönnum; haldið þið að Agnes Bragadóttir fengi að kalla manninn "stórslys" og hvaðeina ef hann væri í einhverjum metum þar á bæ? Öðru nær.

Eflaust á hann sína vini inni á milli meðal gamalgróinna samstarfsmanna forðum, en heilt yfir fer nú lítið fyrir aðdáuninni á téðum Árna. Ég veit það af því ég vann sjálfur um árabil hjá Árvakri.

En myndbirtingin sætir furðu, það get ég tekið undir.

Jón Agnar Ólason, 16.3.2009 kl. 21:23

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband