Á að stinga dúsu upp í erlenda kröfuhafa?

Það er með ólíkindum hversu dómgreindarlaus þessi ríkisstjórn er í efnahagsmálum. Hvernig dettur henni í hug að bjóða erlendum kröfuhöfum "hlut" í nýju bönkunum?

Fyrst stela þeir eignum bankanna með fádæma óheiðarlegum og vitlausum neyðarlögum og svo á að "skila" einhverjum hluta af þýfinu til baka í þeirri hugsun að vinna sér eitthvert "traust" aftur og þá í þeim tilgangi að fá aftur lán. - Hverjum dettur í hug að erlendir bankar (nú "erlendir kröfuhafar") vilji lána aftur til þeirra sem stela?

Það er yfirleitt ekki til vinsælda fallið að vera stóryrtur en ég ætla að leyfa mér að spyrja: Hvaða helvítis fávita datt þessi vitleysa í hug?


mbl.is Bjarga á fyrirtækjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur nú farið hjótt um þetta sýnist mér. Og ástæða bak við það.

Hér er smám saman LANGUR ARMUR að teygja sig inn í landið OKKAR. Armur GRÆÐGINNAR. Armur VALDSINS. Og Geir og félagar beygja sig undir þetta.

Það var hér mynd af einhverjum frakkaklæddum blóðsugum um daginn frá erlendum bönkum til að hitta skilanefndirnar og sjálsagt fleiri.

Núna kemur skyndilega fram yfirlýsing frá Geir Hilmar um þetta - fóðrað inn - í  lista yfir björgunaraðgerðir.

Tæplega telst þetta ein af björgunaraðgerðunum og því er þetta ekki sanngjarnt að kynna þetta þarna. Hvers vegna - jú það er BÚIÐ að rúa almenning vegna þessa nú þegar og setja í klafa FÁTÆKTAR og það á að halda áfram.

Þetta einfaldlega sýnir það hve mikilvælgt það er að hér sé stokkað upp frá byrjun, nýr grunnur og nýjar starfsaðferðir.  

Ekki það að ég sé ósáttur við allt sem ÞAU hafa gert eða lagt til; það eru einfaldlega innan um gjörsamlega óásættanlegir gjörningar sem fylgja með - og það sér hver maður sem hefur einhverja siðgæðisvitund og sómatilfinningu.

KRAFAN er skýr -  nýr grunnur og nýjar starfsaðferðir.  

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 12:48

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Mér finnst þetta ekkert ósennilegt hjá þér Hákon. Geir og Solla hvorki viðurkenna staðreyndir né segja satt fyrr en þau eru algerlega tilneydd til þess.

Allt sem gert hefur verið frá því Davíð tók Glitni og beygði í ótímabært gjaldþrot hefur verið dómgreindarlaust rugl í fólki sem aldrei hefur þurft að vinna ærlegt handtak á meðan sukkað var bara endalaust í nýju lánsfé.

Haukur Nikulásson, 2.12.2008 kl. 12:57

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband