Hún er ágæt... í mynd!

Sarah Palin er myndarleg og hugguleg. Þar með virðast kostir hennar upptaldir. Ég furða mig sífellt meira á vali hennar sem varaforsetaefni. Ég fæ beinlínis hroll við tilhugsunina um það hvernig það liti út ef miðaldra hæfilega sköllóttur karlmaður léti út úr sér delluna sem hún býr til.

Staðan er nú þannig að best er fyrir framboð McCains að hún haldi sér alveg saman. Og þeir virðast reyna það að bestu getu.

Gallinn er bara sá að McCain verður að tala fyrir þau bæði, og því meira sem hann gerir það opinberar hann tækifærismennsku sína og hæfileikaleysi. Nú síðast er hann að hugleysast út úr væntanlegum kappræðum við Obama með þeim rökum að hann þurfi (hann er óbreyttur öldungadeildarþingmaður eins og Obama) að leysa efnahagsmálin (hóst!). Eitthvað er karlinn kominn fram úr sér þarna.


mbl.is Palin minnt á fund með Ólafi Ragnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hef ekki mikið fylgst með kosningabaráttunni, en mér nægir að konan er bókstarfstrúarmanneskja, er ekki komið nóg af slíkum sem ráðamönnum ?  Þeir eru hættulegir, því slíkt fólk hefur enga sjálfstæða skoðun. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.9.2008 kl. 10:56

2 identicon

Þetta er Palin. " Guð skóp heimin á 6 dögum og tók pásu á þeim sjötta,allir eiga rétt til að eiga og ganga með vopn,stríð er nokkuð sem við eigum ekki að hika við, og hef konum þar með talið litlum stelpum er nauðgað og verða óléttar þá eiga þær að eiga barnið. ENGVAR fóstureiðingar! Og ekki má gleyma því að kynfræðslu á ekki að vera með í skólum"

óli (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 12:03

3 Smámynd: Sverrir Einarsson

Hún var ekki valin með hæfileikana að leiðarljósi heldur til að höfða til ákveðinna hópa innan kjósenda í usa sem gera meira með lúkkið en hæfileikana og svo til að "höfða til kvenna" þ.e.a.s. að hún var valin vegna kynsins.

Svo hefur hitt allt komið í ljós eftir að kastljós fjölmiðla fór að beinast að henni, þetta ofstæki hér og þar og bókstafstrúar bull hennar held ég að hafi komið þeim gamla á óvart og þeim sem völdu hana (gott á þá).

En hvað er ólíkt með kúk og skít spyr ég?

Obama skiftir um "opinbera" skoðun (ekki sannfæringu) eftir því hvernig vindar blása þó það sé af hinu góða að fólk geti skift um skoðun en þá þarf það líka að skifta um sannfæringu í leiðinni, allt annað er eins og ameríkaninn kallar CRAP

Eigðu svo góðar stundir (það ættla ég að gera)

Sverrir Einarsson, 26.9.2008 kl. 12:06

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þetta virðast allt vera tækifærissinnar, svo, eins og sag ter hér að ofan - hver er munurinn á kúk og skít?

Ingvar Valgeirsson, 26.9.2008 kl. 18:13

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

"Mey skalað að morgni lofa "segir máltækið/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 28.9.2008 kl. 10:17

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband