Napóleon endurfæddur?

Ekki veit ég hvern Stefán Eiríksson er að reyna að sannfæra. Öll þjóðin sá í sjónvarpi hvað fór fram þarna við Rauðavatn og það var að lögreglan ætlaði sér að efna til óeirða. Þeir mættu með óeirðaátfittið en ekki vörubílstjórarnir. Ekki ætla ég að afsaka vitleysuna í bílstjórunum heldur, þeir höguðu sér eins og börn en það var lögreglan sem missti sig, svo einfalt var það.

Ég held að Stefán sé alveg að tapa sér með því að fara fram á árángurstengd laun. Ef svo væri ætti dómgreind og frammistaða yfirmanna lögreglunnar við Rauðavatn að gera þá launalausa þetta árið. GAS!-GAS!-GAS!


mbl.is Það sem gerðist var óumflýjanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stefán er gamall blaðamaður á Mogganum, sem og Björn Bjarna.  Eitthvað tengist ríkislögreglustjóri blaðinu ...  Í því ljósi ber að skoða umfjöllun Blaðsins 24 klukkutímar og leiðarans í Mbl. í dag.  Tengslin eru sterk inn á þessi blöð og gagnrýni þeirra á störf lögreglunnar í samræmi við það.

Gandálfur (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 09:02

2 identicon

En takið eftir að á mbl.is í gær var verið að tjá að það sé orðið svo mikið um árásir hér það sé verra en í nágrannalöndum okkar og þeir verði bara að fá stuðbyssur (TASER GUN) til að ráða við almúgann en svo kemur Tefán Eiríksson Lögreglustjóri í mbl í dag og segir á einum stað

"Við búum í gríðarlega góðu og öruggu samfélagi. Íslenska lögreglan vinnur að verkefnum með lögreglunni í Ósló. Þar glímir lögreglan við meiri vanda en er hér á landi. Ofbeldisbrot eru helmingi tíðari í Ósló en á Íslandi"

Ha ha ha maður grætur af hlátri því þessi yfirlýsing hans er þvert á það sem landsþingið var að krefjast og allt önnur hlið og saga af málum heldur en þeir sögðu þar gaman þegar að fólkið sem að maður vill treysta og fer með mikil völd er orðið tvísaga á einum og sama sólarhringnum eða innan 24 klst  maður spyr sig eru þeir upp á móti hvor oðrum þessir herrar eða vita þeir ekkert hvernig þeir eiga að koma sér úr aðstæðunum sem þeir sköpuðu nema með umræðu um vopn til að hræða okkur 

Guðmundur (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 09:16

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það er ekki rétt Einar. Lögreglan setti upp gular varnarlínur. Þeir fóru síðan ítrekað út fyrir þessar línur og sóttu að mótmælendum og það var aldrei vafi á að þeir fóru yfir strikið í bókstaflegum skilningi. Vel má vera að gasmaðurinn hafi hlýtt fyrirmælum, þau voru hins vegar röng og hann mátti jafnvel sjálfur vita það á staðnum að svo var þegar hann er kominn út fyrir varnarlínuna í algerlega óþarfa sókn að fólkinu.

Gasmaðurinn valdi þetta starf, hann valdi líka ð hlýða dómgreindarlausum yfirmönnum. Ef hann hefur við einhvern að sakast út af því að vera almennt atlægi fyrir vikið þá er það vinnuveitandi hans. 

Haukur Nikulásson, 3.5.2008 kl. 09:20

4 Smámynd: Haukur Nikulásson

Miðað við frammistöðu og dómgreind lögreglunnar undanfarið vil ég ekki bæta í vopnabúrið hjá þeim. Þeir hafa það sem þarf. Við lendum í sama vítahringnum og Bandaríkjamenn ef það gerist.

Haukur Nikulásson, 3.5.2008 kl. 09:31

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sammála þér Haukur, þessi lögregluaðgerð var fyrirfram ákveðin og þegar engin læti voru þá skóp lögreglan lætin sjálf með ógnandi framkomu og hreinum árásum á borgarana eins og þú lýsir sjálfur .þegar þeir rjúka hvað eftir annað yfir þá línu sem þeir þó settu sjálfir niður..

Ef miða á við ofbeldi hér og í Oslo þá er oslo lögreglan að fást við' skipulögð glæpagengi sem eru vopnuð til tannanna Samt er oslo lögreglan

Óvopnuð oftast nær þótt hún hafi aðgang að skotvopnum í bílunum og sérsveitin er snögg á staðinn um leið og einhverjir ógnandi tilburðir gerast. En aldrei er lögreglan í Oslo ógnandi gagnvart vegfarendum eða borgurum noregs.. Aldrei. Framkoma norskra lögreglumanna er til eftirbreytni fyrir lögregluna hér á landi, ákveðin, kurteis fram í fingurgóma, hrokalaus.. en ef í harðbakkan slær þá gefurur þig því þeir munu ná tökum á ástandinu án þess að hleypa öllu í bál og brand.. í noregi er lögreglan virt.. annað en hér á landi enda hefur íslenska lögreglan drullað upp á bak áratugum saman í samskiptum við hinn almenna borgara.

skrifað í word og skeitt inn í opera.. verður skrítinn textinn.. Skari

Óskar Þorkelsson, 3.5.2008 kl. 11:20

6 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta er allt í góðu lagi með textann þinn Óskar. Við erum meira sammála hér en um ESB

Haukur Nikulásson, 3.5.2008 kl. 11:45

7 identicon

Heyr, heyr Óskar.

alva (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 14:52

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 264821

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband