Ómerkileg framkoma gestgjafa forseta Írans

Ég get nú ekki orða bundist yfir þessari frétt, ef hún er þá sönn svo ótrúlega sem hún hljómar.

Er rektor Columbia háskólans virkilega svo ómerkilegur að bjóða þjóðhöfðingja í heimsókn til að freista þess eins að niðurlægja hann á staðnum? Við myndum ekki þola að okkar þjóðhöfðingi yrði niðurlægður með þessum hætti í bandarískum háskóla vegna til dæmis hvalveiða íslendinga eða hvað? Þetta er einhver dónalegasta framkoma sem ég hef vitnað að þjóðhöfðingi hafi orðið fyrir síðan George Bush eldri ældi yfir forsætisráðherra Japans.

Ólíkt George W. Bush hefur Ahmadinejad forseti Írans ekki staðið að neinu stríði við nágranna sína og virðist ekki einu sinni á leiðinni í stríð. Íranir eiga heldur ekki kjarnorkuvopn eins og bandaríkjamenn. Miðað við þær hótanir og lygi sem bandaríkjamenn viðhafa er ekkert athugavert við það að íranir gelti á þá sem hóta þeim stríði. Hvað myndu íslendingar gera í þeirra sporum?

Bandaríkjamenn hafa einsett sér að ráðast inn í Íran með sömu margtuggðu, upplognu ástæðunum og þeir notuðu til að ráðast inn í Írak. Á meðan við íslendingar erum ekki sérstök fórnarlömb fádæma yfirgangs og afskiptasemi bandaríkjamanna látum við flest eins og allt sé bara í stakasta lagi. Við eigum að skammast okkar fyrir sinnuleysið í þessum málum. 

George Bush eldri GUBBAR yfir forsætisráðherra Japans


mbl.is Fjandsamlegar móttökur virtust slá Ahmadinejad út af laginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er svo sammála þér. 

Einar (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 22:21

2 identicon

Vá hvað ég gæti ekki verið meira sammála þér!

Bandaríkjamenn (ok óþarfi að alhæfa kannski..amk æðstu stjórnendur og mestu valdasjúklingarnir) eru bara sú týpa af fólki sem mér finnst hvað MEST óþolandi.

Fólk sem vælir sífellt yfir gjörðum annara og bendir á galla allra í kringum sig, en gleymir að líta í eigin barm. Hvað ef margir gallar fólksins í kringum það séu í raun upprunnir frá því sjálfu...

Guðný (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 22:25

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

100 % sammála!

Georg P Sveinbjörnsson, 24.9.2007 kl. 22:27

4 Smámynd: Atli Hermannsson.

 Kaninn reynir örugglega allt til að gera hann ótrúverðugan í augum almennings... þeir snúa vísast út úr öllu sem hann segir og ranntúlka sem mest þeir geta... það er það sem kaninn er hvað bestur í

Atli Hermannsson., 24.9.2007 kl. 22:36

5 identicon

Furðulegt að æsa sig vegna spurninga rektors Columbia háskóla til Ahmadinejads.  Að sjálfsögðu ber að láta Íransforseta vita að skoðanir hans og hugmyndir þyki ósæmilegar og stórhættulegar.  Chamberlain, þá forsætisráðherra Breta, reyndi á sínum tíma að friðmælast við Hitler.  Þau mistök má ekki endurtaka þegar vitfirringur á borð við Ahmadinejad kemur fram á sjónarsviðið.  Það verður að koma í veg fyrir að hann og það gengi ofsatrúarmanna sem ræður ríkjum í Íran komist yfir kjarnorkuvopn, það þarf jafnvel að ráðast inn í landið.

Jói (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 23:02

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hroki kanans á sér greinilega engin takmörk. Hvað svo sem segja má um forseta Írans, þá er þetta með öllu óásættanleg framkoma gagnvart þjóðhöfðingja.

Halldór Egill Guðnason, 24.9.2007 kl. 23:06

7 Smámynd: Haukur Nikulásson

Jói, vilt þú fara fremstur í flokki þeirra sem gerir innrásina í Íran?

Haukur Nikulásson, 24.9.2007 kl. 23:08

8 identicon

Honum var boðið til umræðu, ekki í teboð. Ahmadinejad vissi hverjir skilmálarnir voru þegar hann þáði boðið frá háskólanum, þ.e að hann fengi tækifæri til þess að koma sínu sjónarmiði á framfæri en að málflutningi hans yrði svarað. Þetta átti aldrei að verða einhverskonar kurteisleg seremónía.

Það er líka rétt að árétta að þetta fyrirlestrarboð var á vegum háskólans, ekki bandarískra stjórnvalda.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 23:14

9 Smámynd: Haukur Nikulásson

Hans, það má vera að menn séu ekki sammála Íransforseta, en það er óþarfi af gestgjafanum að vera svona dónalegur. Gestgjafi hagar sér ekki svona ruddalega.

Haukur Nikulásson, 24.9.2007 kl. 23:30

10 identicon

Hérna er maður sem opinberlega dregur í efa að helförin gegn gyðingum hafi átt sér stað, vill afmá Ísrael af landakortinu og fagnaði boði til að fá að upplýsa bandarískan almenning um sannleiksgildi skoðana sinna.  Hann mátti vita að honum yrði ekki vel tekið sérstaklega ekki í New York City.  Þið munið svo sjá kurteisi sem skal sýna forseta þjóðar þegar hann ávarðar SÞ.  Þarna var honum boðið sem stjórnmálamanni og einstakling, ekki sem fulltrúa írönsku þjóðarinnar.  Hvort sem fólki líkar vel eða ekki við Bandaríkjamenn eða stjórnvöld í því landi þá finnst mér furðulegt að nota það sem ástæðu til að pússa afturendann á Ahmadinejad sem er álíka asni og Bush og jafn óvinsæll í sínu heimalandi þar sem gert er stólpagrín að honum, mest yfir því að hann sé heimskur (svipar mjög til gagnrýni á Bush í sínu heimalandi).  Hvað varðar að kynda undir stríð og eymd þá mættuð þið spyrja Líbani hvað þeim finnst um vopnasendingar Írans til Hezbollah og hvernig löggilt stjórnvöld í því landi hafa verið sett til hliðar í stórum hluta landsins.  Sama gildir um Gazasvæðið og Hamas.  

Anton (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 23:36

11 Smámynd: Haukur Nikulásson

Anton, þetta hálfvitablaður í Ahmadinejad réttlætir ekki innrás bandaríkjamanna.

Heldur þú að bandaríkjamenn líti á það sem eitthvert markmið í sjálfu sér að þagga niður í einum hálfvita með fjölmennu og dýru herliði? Það þarf hins vegar herlið til að stela þjóðarauði Írans alveg eins og í Írak.

Hvenær ætla menn að fatta tilganginn með áróðri bandaríkjamanna?

Haukur Nikulásson, 25.9.2007 kl. 00:22

12 Smámynd: Haukur Viðar

Ég vona að hann gangi lengra í að reyna að núllstilla spennuna þarna á milli......líst ekkert á það ef USA ræðst inn í Íran. Það yrði ekkert spaug er ég hræddur um...

Haukur Viðar, 25.9.2007 kl. 01:20

13 identicon

Haukur

Þín ágiskun um hvað gerist með BNA og Íran er engu betri en mín.  Svo vill til að ég tel líkurnar á því að innrás verði í Íran mjög litlar.  Bandaríski herinn er með fullar hendur í Írak og spenntur fram yfir getu.  Kostnaðurinn við Íraksstríðið er gífurlegur og þrengingar í ríkisfjármálum þar vestra.  Það tæki allar olíutekjur Íraks í áratugi til að borga kostnaðinn við þetta stríð svo ekki sé talið um eymdina.  Engar líkur eru á að þingið samþykki stríð, það verður að gerast fyrst skv. bandarískum lögum.  Bush á bara ár eftir og áhrif hans stöðugt að minnka.  Mun hulið stríð milli Írans og BNA halda áfram?  Mjög líklega, líkt og síðustu 25 ár og þar eru báðir aðilar sekir.  Annars eru lönd sem hafa verið hertekin af Bandaríkjamönnum á síðustu 100 árum ekki beinlínis arðrænd.  Japan, Þýskaland, Ítalía, Suður Kórea, Víet Nam eru góð dæmi um það.  Mannlegur kostnaður í öllum þessum stríðum var hræðilegur en engum þjóðarauð stolið.

Anton (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 02:40

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 264894

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband