Hvaða þingmenn ætla að hafa vit á að forða sér frá ruslatunnu sögunnar?

Ég er hræddur um að sagan fari ekki mildum höndum um þá þingmenn sem eru að láta sér detta í hug að samþykkja ríkisábyrgð vegna innlána í einkabanka sem íslenska ríkið tók ekki.

Það verða nægiilega margir sagnfræðingar til að setja þá í ruslatunnu sögunnar sem nú þegar er byrjuð að kjamsa á Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni sem deildu út bönkum og rikisfyrirtækjum til einkavina sinna.

Hafið Davíð og Halldór sett hrunið í gang þá virðist meirihluti þingmanna ætla að blessa það til næstu áratuga með því að ábyrgjast vitleysuna fyrir hönd okkar allra.

Ég skora á þá að hugsa sjálfstætt í þessu máli áður en það verður of seint.


mbl.is Funda um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Guðmundur, við erum sum á þeirri skoðun að nú sé tíminn til að rjúfa þann vítahring sem lántökusukkið hefur verið. Nú á ennþá eina ferðina að leysa vandamálin okkar með mörgum nýjum risastórum lánum sem gerir ekkert annað en að fresta því óhjákvæmilega. Ómálga komandi kynslóðum þætti þetta djöfuls ósanngirni að erfa eftir okkur ómanneskjulega skuldahala.

Haukur Nikulásson, 24.8.2009 kl. 22:01

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mikið er ég orðin leið á þessu kjamsi hvað gerist ef við samþykkjum ekki.  Þetta er versti hræðsluáróður.  Sérstaklega í ljósi þess að það er að koma Æ betur í ljós að almenningur í bretlandi og hollandi er að vakna upp við vondan draum um hvað ríkisstjórnir landanna eru að gera.  Og finnst það ekki falleg saga.  Þessi fjandans minnimáttarkennd og undirgefni við útlönd, sem ég hreinlega þoli ekki.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.8.2009 kl. 22:06

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Við höfum ekkert að gera með 63 (mínus X marga) þingmenn sem ekki gæta hagsmuna kjósenda sinna. 

NEI við Icesave getur aldrei orðið verri kostur en JÁ við Icesave!

Kolbrún Hilmars, 24.8.2009 kl. 22:25

4 Smámynd: Haukur Nikulásson

Guðmundur, það átti að láta bankana fara heiðarlega á hausinn. Skiptastjóri hefði mátt halda rekstri áfram. Það þurfti ekki óheiðarleg neyðarlög til að láta ríkið stela bankakerfinu sem í þeirra umboði er að stela stórum hluta fasteigna af skuldurum sem urðu fyrir forsendubresti og svikum af hálfu þessara sömu banka. Ríkið gekk á undan með óheiðarlegum aðgerðum sem við eigum eftir að súpa seyðið af til margra ára.

Við eigum bara að lýsa yfir gjaldþroti og ef fiskur og kartöflur eru hlutskipti okkar næstu árin tel ég það betri kost en "björgunaraðgerðirnar" sem nú felast eingöngu í flótta, nýjum lánum og undirlægjuhætti þeirra sem vilja fullveldi okkar feigt með ESB aðild. Það eru pólitískir væsklar sem ráða förinni í íslensku samfélagi og það er dapurt að horfa upp á. Það er ekkert hugrekki í gangi. Við ætlum að velta þessu á komandi kynslóðir Guðmundur, og virðast ekki hafa nokkra einustu samvisku af því.

Við myndum fyrr ná okkur efnahagslega með því að viðurkenna núverandi stöðu og afsegja með öllu að borga fyrir innlán sem við berum enga ábyrgð á. Hvernig dettur þér í hug að við eigum að vera ábyrgð á því sem við áttum engan þátt í að taka sbr. Icesave? Rökvillurnar eru svo margar í því máli að maður kúgast af hugsunarleysinu sem í þessu felst.

Haukur Nikulásson, 24.8.2009 kl. 22:28

5 Smámynd: Benedikta E

Ég tek undir með ykkur sem segið - NEI - við Æsseif  - og vanhæfa ríkisstjórn burt - ríkisstjórn sem tekur leynt og ljóst stöðu gegn þjóðinni -  er stór-hættuleg landi og þjóð - Burt með hana !

Benedikta E, 24.8.2009 kl. 23:21

6 Smámynd: Einar Guðjónsson

Er sammála blogghöfundi.

Einar Guðjónsson, 25.8.2009 kl. 00:04

7 identicon

Sú rök að við verðum að samþykkja Icsave skuldbindingar til að fá erlend lán. ( til að svo bjarga bankakerfinu ) Eru einföldun.

Þeir hinu sömu gleyma nefnilega að nefna eitt mikilvægt atriði.

Nefnilega hvað skeður ef við tökum þetta á okkur ?

Hvað með áhættuna með að missa allt landið ? (sem mun ske á einn eða annann hátt ef við getum ekki borgað)

Hvenær ætla meðmælendur þess að samþykja ríkisskuld Icsave að opna augun og sjá að Bretar, Hollendingar og IMF HAFA MIKLU MEIRI HAGSMUNA AÐ GÆTA MEÐ ÞVÍ AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ VIÐ GETUM EKKI BORGAÐ !!!

ANSKOTANS HEIMSKA Í ÞESSU LANDI.

Már (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 00:59

8 Smámynd: Sigurjón

Guðmundur segir: ,,...við þurfum að hafa aðgang að erlendu lánsfé einfaldlega til að halda bönkunum gangandi."

NEI!  Þetta er einfaldlega rangt!

Við þurfum ekki að halda bönkunum gangandi með gervistofnfé.  Við þurfum að hugsa bankakerfið upp á nýtt, ólíkt því sem hefur verið gert hingað til.  Það er ástæða til að láta þá einfaldlega fara á hausinn og stofna nýja banka með alvöru bakhjarla, t.d. almenning í landinu.  Sparisjóðakerfið er ekki slæm hugmynd í því sambandi.

Sigurjón, 26.8.2009 kl. 09:20

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 264894

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband