Siðlaus ákvörðun um leið og labbað er út úr ráðuneytinu

Ég tek afstöðu með því að við eigum að veiða hvali ef okkur sýnist svo.

Ég er hins vegar alveg á móti því að Einar K. Guðfinnsson taki svona stóra ákvörðun "í dyrinni". þetta er dæmigerð hagsmunagæsla fyrir Jón Loftsson, siðlaus síðustu forvöð að gera manninum pólitískan einkavinargreiða.

Næsti sjávarútvegsráðherra á ekki að fá svona teiknibólu í stólinn frá honum. 


mbl.is Það var ekki eftir neinu að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Jónsson

Haukur: er þessi gjörningur Einars ekki ólöglegur, hefur hann umboð til að taka svona ákvörðun, sem ráðherra í starfsstjórn?, ég held að þessi gjörningur standist ekki og sé í raun ólöglegur?. 

Magnús Jónsson, 27.1.2009 kl. 19:26

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Magnús, ég tel að hann hafi fulla heimild til allra ráðherraverka á meðan hann situr í embætti.

Sem sagt: löglegt en siðlaust, eins og Vilmundur heitinn Gylfason hafði sem frægt orðfæri.

Haukur Nikulásson, 27.1.2009 kl. 20:16

3 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Þetta er vinnan hans, líka þegar hann er í starfstjórn. Á hann bara að sitja með þumalinn í borunni og bíða...?

Ólafur Jóhannsson, 27.1.2009 kl. 20:17

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við tölum um að V.G. séu á móti öllu/Haukur þú ferð nú að slá þeim við/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 27.1.2009 kl. 21:48

5 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ólafur: Já og helst ekki taka hann út allan tímann meðan hann situr.

Halli: Ég er ekki á móti hvalveiðum langt í frá. Tel það okkar rétt ef við viljum. Ég er á móti ákvörðunum sem teknar eru á síðustu dögum í hagsmunaskyni fyrir einkavini. 

Haukur Nikulásson, 27.1.2009 kl. 22:49

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

siðlaust eins og flest það sem frá sjálfstektinni kemur...

Óskar Þorkelsson, 28.1.2009 kl. 12:22

7 identicon

Hvað gerði ekki Björgvin áður en hann hætti, rak hann ekki forstjóra FME. er það ekki stór ákvörðun í "dyrinni"

Eða er það kannski í lagi af því það var það sem allir vildu.

Nei kæri frændi það var nákvæmlega ekkert að þessum gjörningi, hann er búinn að vera í bígerð lengi eins og fyrri

ákvörðun um hvalveiðar sýna.

Hafðu það gott

Nonni frændi

Jón (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 16:53

8 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég hló allsvakalega þegar ég las þessa frétt. Svolítið meira þegar ég las kommentið frá Halla gamla.

En eins og Jón hér að ofan bendir á er þetta ekki svo ólíkt aðgerð Björgvins. Brosti yfir þeirri samlíkingu líka.

Sem er gott - ég er ekki viss um að það verði margar ástæður til að gleðjast á næstunni.

Ingvar Valgeirsson, 28.1.2009 kl. 17:07

9 Smámynd: Haukur Nikulásson

Á einhvern undarlegan hátt eru allir sem hér þrasa að hafa rétt fyrir sér í málinu. Eiginlega bara skemmtilegt og fyndið.

Ingvar má alveg vita að Nonni frændi er líka frændi sjávarútvegsráðherrans og sonur og bróðir duglegra sjómanna. Nonni frændi hefur líka gaman að því að pota skoðunum sínum í mig. Hann langar að verða nöldurbloggari eins og frændinn en þorir ekki af ótta við refsiaðgerðir, gerist hann of málglaður Hann getur nefnilega rifið kjaft á við hvern sem er!

Sömuleiðs frændi hafðu það gott! 

Haukur Nikulásson, 28.1.2009 kl. 18:36

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 264821

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband