Þið hljótið að vera að grínast?

Það er ekki heil brú í því sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerir. Núna er hún að skipa barnungan skrifstofumann með lögfræðingsmenntun í starf sem er næst því að vera yfirhershöfðingi yfir íslenska hernum.

Ég hef löngum rætt með hvaða hætti utanríkis-, varnar- og NATOmálum er stjórnað af Sollu og marg lagt til að allri þessari vitleysu verði hætt og þar með sparaðir milljarðar í einhverjum tilgangslausasta málaflokki í sögu þessarar þjóðar.

Hvað á nýi yfirhershöfðinginn okkar að ræða við erlenda kollega sína sem allir eru borðalagðir og stjörnum skreyttir niður á fingurgóma? Förðun eða hárlitun? Skartgripi?

Hvaða menntun eða reynslu af hernaði og varnarmálum hefur konan sem skipuð var? Ég efast reyndar ekkert um að hún hafi ekki félagsskírteini í Samfylkingunni og sé af réttu kyni.


mbl.is Skipuð forstjóri Varnarmálastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég get fullvissað þig um að Ellisif Tinna er engin skrifstofukona, heldur mikilvirk og vandvirkur embættismaður, sem hefur áralanga reynslu af samskiptum við "borðalagða" hermenn Varnarliðsins og NATO.

Ég þekki Tinnu í 10 ár og hef unnið með henni og það er mikið í hana spunnið. Ég leyfi mér að efast um að þú vitir hvar hana er að finna í flokki, en það veit ég. En kona er hún og það er ekkert til að skammast sín fyrir, nema síður sé!

Kveðja, Guðbjörn Guðbjörnsson

Guðbjörn Guðbjörnsson, 19.5.2008 kl. 22:12

2 Smámynd: Daði Þorkelsson

Þú hefðir nú betur lesið alla fréttina áður en þú tjáðir þig svona það kemur fram að meðal annars

"Hún var breytingarstjórnandi hjá Ratsjárstofnun um ríflega tveggja mánaða skeið sl. haust og hefur auk þess mikla reynslu af samskiptum við samstarfslönd innan NATO."

Daði Þorkelsson, 19.5.2008 kl. 22:15

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

flott kona :)

Óskar Þorkelsson, 19.5.2008 kl. 22:16

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ætli hún hafi ekki eins mikla reynslu og hægt er að öðlast hérlendis - sé ekkert athugavert við ráðninguna svo sem. Eins og mér finnst gaman að setja út á Samfylkinguna...

:)

Ingvar Valgeirsson, 19.5.2008 kl. 22:19

5 Smámynd: Gunnarinn

Sem aðstoðarlögreglustjóri á Suðurnesjum og stutt starfsreynsla sem breytingarstjórnandi hjá Ratsjárstofnun (sem þessi NATO reynsla ætti víst að vera fengin) þá myndi ég telja hana frekar litla. Ísland er með sendinefnd við NATO þar sem ég tel líklegra að fólk öðlist meiri reynslu en hún hefur. Svo varðandi það að hafa verið breytingarstjórnandi hjá Ratsjárstofnun þá myndi ég telja að það sé lítið tengt varnarmálum, meira hópefli og starfsmannasamtöl.

Gunnarinn, 19.5.2008 kl. 22:35

6 identicon

Næst munu koma umslög til ungmenna til að fylla þetta ímyndaða herlið sem verður hægt að nota á minkinn og smala kindum ,, kannski týna rusl meðfram þjóðvegi 1 Hvernig verða búningar þeirra ? kannski eitthvað tengt me me me me Annars er þetta bara 1 Heimatilbúin vinna svipad og þetta can't find the server at www.varnamalastofnun.is.

Wire (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 22:53

7 identicon

Það virðist vera að ISG ráði bara alls ekki karlmenn í góðar og háar stöður.  Þar að auki þurfa þessar konur sem hún ræður að vera í Samfylkingunni.  Það virðist vera stefna hennar að allir karlmenn eigi að vera í lágt settum stöðum og helst þeim allra leiðinlegustu.  Þetta mun vera sú arfleið sem ISG mun skilja eftir sig. 

Ég neyðist víst til að skipta um kyn og ganga í Samfylkinguna ef ég á að eiga einhverja von um að komast til metorða. 

Pondus, brátt fyrrverandi karlmaður (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 23:01

8 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég hef ekkert við konuna að athuga sem slíka. Eflaust prýðis- og myndarmanneskja, en það eru bara óvart líka flestir íslendinga sem ekkert vit hafa á hermálabrölti. "Aðstoðarlögreglustjóri og breytingastjórnandi (var hún ekki bara ráðin til að reka liðið þar?) á Ratsjárstofnun" give us a break!

Þetta dæmi er allt tómur barnaskapur frá upphafi til enda og endurspeglar draumsýn Sollu um að verða eitthvað sem hún getur bara látið sig dreyma um.

Haukur Nikulásson, 19.5.2008 kl. 23:16

9 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

´

Haukur Nikulásson.  Vissir þú að forseti Íslands, forsætisráðherrann og biskupinn yfir Íslandi vinna allir á skrifstofum?

Tilvitnun frá Hauki:  "Hvað á nýi yfirhershöfðinginn okkar að ræða við erlenda kollega sína sem allir eru borðalagðir og stjörnum skreyttir niður á fingurgóma?"  Tillaga frá Birni bónda: "Ellisif Tinna getur áreiðanlega fegið lánaðan klæðnað frá Þjóðleikhúsinu eða Leikfélagi Reykjavíkur, með borðaleggingum og stjörnum, skreyttann niður á fingurgóma."

Vissir þú Haukur, að þeir yfirhershöfðingjar sem ráðlögðu innrásirnar í Afganistan og Írak voru borðalagðir og stjörnum skreyttir niður á fingurgóma.  Vissir þú að ítölsku yfirhershöfðingjarnir sem fyrirskipuðu flótta herja sinna í fyrri og seinni heimstyrjöldunum, þar sem hermennirnir afklæddust skófatnaði sínum til að geta hlaupið hraðar á flóttanum, voru borðalagðir og stjörnum skreyttir niður á fingurgóma, og þar að auki voru þeir ítölsku með svartlitaðar páfuglsfjaðrir í barðastóru höttunum sínuim (það voru hærra settir yfir-yfirhershöfðingjar). 

Hvað koma borðaleggingar og stjörnuprýði við í umræðum um varnir Íslands?  Já - alveg rétt.  Ég held að hún sé af réttu kyni.  Ég var að kíkja hjá mér núna rétt áðan og ég er líka af réttu kyni - og mitt er með typpi líka! 

Vel á minnst Haukur.  Var Margaret Thatcher borðalögð og stjörnum prýdd með páfuglsfjöður í hattinum þegar hú fyrirskipaði innrásina í Falklandseyjar til að hrekja Argentínumenn burt?  NEEEI - nú man ég.  Hún var aldrei með hatt! og heldur ekki borðalögð né stjörnum prýdd!  Hvernig ábyrgðarleysi hefur þetta verið hjá Breska heimsveldinu að vera í svoleiðis klæðnaði?

Forseti Bandaríkjanna hverju sinni er æðsti yfirmaður Bandaríkjahers. 

Ég myndi trúa því á aumingja G.W.Bush að vera borðalagður,en ég held að hann verði bara meðkábojhattinn sinn og í reiðstígvélunum að tala við  yfirhershöfðingana sína. 

Hillary Clinton, ef hún nær kjöri verður bara í dressinu sínu - er það ekki Hakur?

Kær kveðja,

Björn bóndi.

´ 

Sigurbjörn Friðriksson, 19.5.2008 kl. 23:21

10 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég gleymdi að geta þess að mér finnst fátt um fína drætti í upptalningum um kosti nýja forstjórans þegar þess er sérstaklega getið að hún hafi verið "breytingastjórnandi hjá Ratstjárstofnun um tveggja mánaða skeið".

Björn, ég er skrifstofumaður líka, ekki hermálasérfræðingur það er punkturinn sem ég er að reyna að koma að. Ég veit það bara eitt að hún veit ekki hætis hót meira um varnir og varnarmál á þessari stundu heldur en ég, annar skrifstofumaður, sem vann á vellinum um sjö ára skeið þegar kalda stríðið var hæpað upp í tóma dellu. Á þeim tíma trúði ég þessu bulli eins og vel flestir íslendingar en sé núna hversu ruglað þetta var allt saman og kom okkur ekkert við.

Það að setja upp málamyndavarnir gegn innrás myndi bara gera okkur málin erfiðari ef svo ólíklega vildi til. Ef til innrásar kæmi myndum við bara haga okkur eins og Svíarnir gerðu gagnvart þjóðverjum í seinni heimstyrjöldinni: Bíða þangað til þeir verða leiðir og fara!

Þau mál sem Solla stjórnar sem utanríkisráðherra einkennast af ótrúlegri blöndu af þokukenndri draumsýn, wanna-be statesman órum, milljarðasóun á fjármunum skattborgara og tilgangslausri innspýtingu á ótta og ofsóknaræði í þjóðarsál íslendinga.

Ég fullyrði að enginn íslendingur myndi kaupa sér sérstaka innrásartryggingu þó hún væri í boði hjá tryggingarfélögum. Áhrifagirni íslendinga gagnvart erlendum ríkjum er barnaleg og hjákátleg og löngu tímabært að breyta um takt í þessum málaflokki.

Haukur Nikulásson, 19.5.2008 kl. 23:38

11 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Alsstaðar spyr ég og fæ engin svör

Hvar er þessi óvinur sem við þurfum að verjast

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 20.5.2008 kl. 07:56

12 Smámynd: Haukur Nikulásson

Vegna góðmennsku minnar færð þú loksins svar Þorsteinn: Hvergi!

Haukur Nikulásson, 20.5.2008 kl. 08:06

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 264894

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband