Sifjaspell?

Ættartölur í Biblíunni er miklar langlokur en eitthvað er upphafið málum blandið. 

Samkvæmt Biblíunni skapaði Guð Adam í sinni mynd. Hann skapaði síðan Evu úr rifi Adams.

Þau áttu tvo syni Kain og Abel. Með hvaða konum áttu þeir svo börn? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég spurði votta Jehova þessarar spurningar þegar þeir þrengdu sér inn um dyrnar hjá mér, og veistu hvað þeir sögðu ? Nei þú getur aldrei getið upp á því.  Nei það voru nefnilega SKRÆLINGJAR einhversstaðar þarna nálægt. Og ég er ekki að ljúga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2008 kl. 23:59

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Í trú Gyðinga eru aðrir en Gyðingar óhreinar lægri mannverur, varla talið vert að ræða skrælingja né skrá.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 17.4.2008 kl. 09:35

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

svo satt Haukur.. biblían predikar sifjaspell og kathólska kirkjan fyrir westan stundar barnanauðganir...

Óskar Þorkelsson, 17.4.2008 kl. 10:00

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Haukur, þú hefur greinilega ekki lesið þetta. Kain drap Abel, flúði til landsins Nód (líklega í nágrenni Írans) og tók sér þar konu og eignaðist börn.

Sagan af Adam og Evu og sköpun þeirra er ljóð - þarf ekki að skoða vel til að sjá það. Í upphafi sköpunarsögunnar er líkt og maðurinn hafi verið skapaður á undan dýrunum, en á næstu síðu er talað um að maðurinn hafi komið til á eftir dýrunum. Ef grískan er skoðuð má sjá að fyrsti parturinn er ek. lofgjörðarljóð og mikið af restinni dæmisaga.

Ingvar Valgeirsson, 17.4.2008 kl. 16:33

5 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þú ert greinilega mun betur að þér í þessu verki en ég Ingvar. Ég vissi reyndar að Kain drap Abel (sem þá hefur væntanlega verið barnlaus).

Sköpunarsagan er því skv. þessu, eins og flest annað í Biblíunni, óljósar sögusagnir, skáldskapur og boðskapur sjálfskipaðra besservissera sem breytt hefur verið í heilagan sannleika. Guð og Jesús (hafi þeir verið til) komu eiginlega ekkert að gerð þessarar bókar sem kölluð er þá ranglega orð Guðs.

Haukur Nikulásson, 17.4.2008 kl. 16:54

6 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þar er ég reyndar síst sammála þér. Ekki það að ég nenni að fara út í einhverja gríðarlega umræðu um það hér, það myndi líklega ekki gera neinum gott.

Mig reyndar minnir að Adam og Eva hafi átt fleiri börn en þá ágætu bræður og talað sé um annað fók í sömu sveit, en dæmisagan segir sig sjálf ef hún er á annað borð lesin.

Sköðunarsagan er hinsvegar býsna merkileg á marga vegu. T.d. eru dýrin talin upp, ef ég man rétt, í sömu röð og Darwin segir tegundirnar hafa þróast. Restin af Gamla testamentinu er hinsvegar að mestu leiti fremur leiðinleg lesning, enda lögmálin löngu fallin úr gildi.

Ingvar Valgeirsson, 17.4.2008 kl. 23:36

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband