Er Solla að fatta þetta fyrst núna?

Ég er einn þeirra sem þoli ekki núverandi tolla- og vörugjaldakerfi ríkisins. Þetta svo mikil tímaskekkja að það er óþolandi að það skuli ekki vera virk andstaða gegn þessu rugli í þinginu.

Ingibjörg Sólrún virðist skv. þessari frétt að fatta þessa dæmalausu vitleysu fyrst núna.

Það má spyrja sig þeirrar alvarlegu spurningar til hverra verka þessi kona var eiginlega kosin á þing? - Hverju hefur hún áorkað sem fer í sögubækurnar? - Komið á friði í miðausturlöndum með ferð sinni þangað? - Fjölgað í íslenska leynihernum og útrýmt Talibönum í Afganistan og friðað það ólánsland? - Var hún kosin til að fjölga starfsmönnum í utanríkisþjónustu? - Stækka sendiráðin? - Auka notkun ráðherra og fyrirfólks á einkaþotum til að komast á ónauðsynlega fundi sem leysa mætti með nútíma fjarfundabúnaði? - Kom hún í veg fyrir, eða gagnrýndi, hina stórkostlegu "afsláttarsölu" á eignunum á varnarsvæðinu?

Var hún orðin leið á því að gagnrýna vitleysuna í pólitíkinni og er núna bara sátt við að taka þátt í öllu bruðlinu og prjálinu eftir að hún komst að?

Getur einhver upplýst mig um einhver "afrek" hennar eftir að hún varð ráðherra? - Er hún yfirleitt launa sinna (og drjúgra dagpeninga) verð?

Svo allrar sanngirni sé gætt tel ég stóran hluta þessara spurninga megi alveg rata til Geirs Haarde í von um svör. Hann er yfir allt slíkt hafinn og verður bara réttlátlega reiður þegar hann er gagnrýndur og krafinn svara.


mbl.is Tollfríðindi skili sér í vasa almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Afnám allra tolla og vörugjalda t.d. á matvælum hefur í mörg ár verið eitt af helstu stefnumálum samfylkingarinnar.

Það er gaman að þú sért fyrst núna að komast að því.

Kveðjur :)

Þórir Hrafn Gunnarsson, 7.4.2008 kl. 23:36

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það má vel vera Þórir, svona rétt fyrir kosningar. En það er ekkert gagn í stefnu sem ekki er hrint í framkvæmd vegna undirlægjuháttar við íhaldið og bændastéttina.

Haukur Nikulásson, 7.4.2008 kl. 23:44

3 identicon

Alveg ótrúlegt hvað fröken ballstelpu er illa við íslenska bændur og landbúnað yfir höfuð.
Vill fólk í alvöru talað sjá íslenskan landbúnað líða fyrir lok og deyja út.
Það sem mér finnst enn sorglegra er að sjálfstæðismenn virðast ætla að fara að taka þátt í þessu, s.br. nýtt frumvarp herra Einars landbúnaðarráðherra.

Mér finnst með ólíkindum að um þriðjungur þjóðarinnar vilji í alvöru talað sjá  bændur vors lands fara á hausinn.
Það veit enginn hvað hann hefur átt fyrr en hann hefur misst það, hættið að bjóða hættunni heim, hættið að kjósa samfylkinguna!

Einar Freyr (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 23:48

4 identicon

Kosningastefna er ekki stefna.

Hún er blekking, sem allir láta blekkjast af, fjórða hvert ár. Bæði fyrir sveitastjórnar og Alþingiskosningar.

Sennilega vegna þess að ekki er nokkur von lengur að einhver sé í raun og veru heiðarlegur eða nógu fylginn sér, til að hrinda góðum áformum í framkvæmd. 

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 00:17

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband