Út með Alfreð - Inn með Ingu Jónu, sérfræðing í byggingu hátæknisjúkrahúsa!

Ég held að ég þurfi ekki að tjá mig mikið um þetta.

Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona forsætisráðherrans á að sjá um úthlutun fjár og verkefna á stærsta  og einu flóknasta byggingarverkefni í sögu borgarinnar. Hún er örugglega sérfræðingur í byggingu og skipulagi hátæknisjúkrahúsa...??

Allt kemur þetta til af því að Davíð varð lasinn. Hefði Davíð skyndilega orðið gamalmenni hefði þetta orðið hátæknielliheimili.

Orðið "spilling" er of smávaxið. Það þarf orðið að finna eitthvað sem er stórfenglegra. 


mbl.is Nýjar nefndir fjalla um málefni heilbrigðisstofnana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ekki ólíklegt hjá þér Bjarni. Samt fannst manni að miðað við aðstæður Davíðs á þessum tíma að ráðstöfun fjárins væri herfilega sjálfmiðuð. Eiginlega jafn sjálfmiðuð og það að láta setja hornsteina ráðhúss Reykjavíkur og Perlunnar á fæðingardögum foreldra sinna.

Haukur Nikulásson, 26.10.2007 kl. 22:36

2 identicon

Er þá öll Haarde fjölskyldan komin í embætti? Hefði ekki verið nær að fá fagmann til að stýra þessari nefnd. Þetta er ótrúlega smekklaust svo maður kveði nú ekki fastara að orði.

Hólmdís Hjartardóttir (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 22:41

3 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Er þetta ekki bara dæmigert fyrir pólitíkina,það er ekki spurt um hæfnisskírteini bara flokksskírteini,ég stundum velt því fyrir mér hvort maður verði hæfur í hvaða starf sem er ef maður er með flokkskírteini uppá vasan.ER nokkur ástæða  að leggja á sig langskólanám þegar skírteinið blífur?

Ari Guðmar Hallgrímsson, 26.10.2007 kl. 23:00

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ekki hefi maður orðið hökufeitur af þessi flokksskirteini/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 26.10.2007 kl. 23:30

5 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ari, ef þú ert í langskólanámi skaltu halda því áfram. Ekki missa trúna á því.

Haukur Nikulásson, 27.10.2007 kl. 00:36

6 identicon

Það er búið að klúðra nóg í heilbrigðiskerfinu. Ekki batnar það við afskipti Péturs Blöndal. Bendi á góða grein í Fréttablaðinu í dag eftir Þóru Andrésdóttur,er henni algerlega sammála. Hvaða hlutverki haldið þið að tengdadóttir Haarde hjónanna hafi í borgarmálunum? En hjónin hafa fengið blessun páfa. Ég held að IJ. sé yfirforsætisráðherra. Það er ólykt af þessu .

Hólmdís Hjartardóttir (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 00:55

7 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Guðlaugur Þór gerir bara það sem honum er sagt, annars hefði hann ekki náð svona langt!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 27.10.2007 kl. 08:16

8 Smámynd: Óskar Þorkelsson

spillingarflokkurinn er réttnefni fyrir sjálfstæðisflokkinn !

Óskar Þorkelsson, 27.10.2007 kl. 15:33

9 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Gæti einhver bent mér á stjórnmálaflokk sem ekki hefur ástundað spillingu?

Ingvar Valgeirsson, 27.10.2007 kl. 21:17

10 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Flokkur Mannins..  Ertu með þessu að segja Ingvar að af því að allir hafa jkomið nálægt spillingarmálum að við eigum bara að láta það ganga yfir okkur ?  Á eftir Framsókn þá eru sjallarnir spilltastir allra.

Óskar Þorkelsson, 28.10.2007 kl. 00:38

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 264825

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband