Fjárhagslegt öryggi okkar í voða með endalausri hernaðarhyggju

Ég ætla að lýsa því hreint út að ég dauðsé eftir atkvæði mínu á Samfylkinguna í vor.

Ég hef alltaf talið að mér bæri að nota atkvæði mitt eftir bestu skynsemi og vitund og tók því ákvörðun miðað við málflutning frambjóðenda fyrir kosningarnar.

Samfylkinguna kaus ég mest vegna álits míns á Ágústi Ólafi, Katrínu Júlíusdóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur sem ég taldi vonarpeninga Samfylkingarinnar. Mér til mikillar gremju urðu þau Ágúst Ólafur og Katrín áhrifslaus eftir kosningarnar. Jóhanna hefur sem betur fer komist í þolanlegan gang.

Solla er dottinn á höfuðið í eitthvert ótrúlegasta varnar-, hernaðar- og utanríkismálabrölt síðari tíma og virðist hafa einsett sér að friðaþægja allt mögulegt ofsóknaræði þeirra sem verst eru haldnir hjá íhaldinu, sem ennþá sjá kaldastríðsógn og rússakomma í hverju horni sem raunverulega ógn við þetta land. Solla hefur því miður nægilega mikil áhrif og völd til að ég óttist raunverulega að hún eigi eftir að kosta okkur íslendinga of marga milljarða í þessum kjánalega útgjaldalið.

Frammistaða ráðherra á borð við Össur og Björgvin er því miður falleinkun, Þórunn hefur ekkert gert og Kristján Möller er bara búinn að gera þá einu bommertu að skella Grímseyjarferjuklúðrinu í heilu lagi á skipaverkfræðinginn að vandlega óathuguðu máli. Hann hefur ekkert dregið til baka og gerir sjálfan sig með því dómgreindarlausan, lítinn og ómerkilegan í upphafi síns ferils.

Ef þetta væri þriggja mánaða reynslutími í starfi fengi ekkert af þessu fólki fastráðningu hjá mér nema Jóhanna.


mbl.is Unnið að gerð ógnarmats fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Jóhanna skipaði í jafnréttisnefnd með 4 konum og tveimur körlum...



Falleinkunn líka !

Óskar Þorkelsson, 29.8.2007 kl. 19:43

2 identicon

Fjórum konum og tveimur körlum?  Nei: sex konum og þremur körlum.

Gunnar Geirsson (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 21:46

3 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Sammála, reka þau öll. Maður veit þó hvar maður hefur íhaldið og býst ekki við neinu af þeim, en þessi valda vonbrigðum.

Ingi Geir Hreinsson, 30.8.2007 kl. 08:29

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég sé ekki hvað Jóhanna hefur gert sem gerir hana eitthvað skárri en hin. Samfó-fólkið hefur að mínu viti svolítið gert í brók. Ég sjálfur var og er svolítið hrifinn af Katrínu og Ágústi og held og vona að þau komi til með að gera eitthvað af viti í framtíðinni. Solla er farin að sýna merki paranoju og Möllerinn drullaði svo upp á bak að hann er kominn með klepramöllett.

Svo er aftur spurningin um hvort þetta væri nokkuð skárra ef hinir vitleysingarnir væru við stjórn - VG með hátekjuskatta og almennar skattahækkanir og aðra vinstrivitleysu, Frjálslyndir með... ja, ég veit svosem ekki hvað, því stefna flokksins fer eftir hvaða flokksmann þú spyrð, Íslandshreyfingin með ofvirkan alhyglissjúkling í broddi fylkingar og svo Framsókn...

Ingvar Valgeirsson, 30.8.2007 kl. 10:10

5 identicon

Sæll Haukur, ég hafði ekki ímyndað mér þig sem samfylkingarmann. Ég hef þó ekki misst trúna á stjórnarliðinu eftir þrjá mánuði, það verður á næsta þingi sem við sjáum hvort það ráðherra efni samfylkingarinar hafi verið vinna vinnuna sína í sumar. Sumartíminn er einfaldlega ekki marktækur fyrir að draga dóma því það hefur ekki reynt neitt á fólkið. Fyrir Össur og Björgvin að byrja á því að segja eitthvað án þess að það sé velíhugað, gæti kostað þá orðsporið í því hákarla umhverfi sem þeir starfa í.

Það er vitað að þegar við höfum ekki kanan í verktöku við varnarmál lengur, þá þurfum við að sinna þessu máli sjálf og setja peninga í þetta sjálf. Fyrir mitt leiti þá treysti ég ISG aðeins betur fyrir þessum málum heldur en t.d. BB. Ég held að hún sé ekki líklega að láta erlenda tinddáta hræða sig. Því miður þá þurfum við svona ógnarmati eða réttara sagt áhættumat, það fylgir því að þurfa að hugsa um tryggingar og öryggi þegar það er ekki gert fyrir okkur. En það er satt hjá þér að þetta verður svívirðilega dýrt og mun eflaust kosta einhverja styrkina sína (lesist bændur). 

Þar sem Grímseyjarmálið er svoma tæknilegt smá mál sem undirmönnum er treyst fyrir, redda eini ferju fyrir smá eyju. Engin hefur áhuga á þessu máli, þangað til að reikningarnir fara að koma og í ljós kemur að röng ákvörðum hefur verið tekin. Hver sem hefur unnið við innkaup, veit hvað svona mál eru varhugaverð og hvað kostnaður er fljóttur að rjúka upp. En það er satt að Kristján hefur ekki sýnt klóka ráðherrahæfileika í þessu máli, það er eins og hann hafi ekki verið tilbúin fyrir pressuna og koksað og síðan byrjað að hugsa upphátt. Hann hefði betur leitað ráða hjá Jóhönnu félaga sinns, eins grunar mig að róðurinn hjá Þórunnu Sveinbjarnar verði þungur, því hún virðist ekki hafa neina diplómatíu í sér, því ef hún segir mönnum að fara til norður og niður, þá hlakkar mönnum ekki til fararinnar. Þannig að mig grunar að hennar ráðherra dagar gætu orðið stuttir, hún er einfaldlega of þvergirðingsleg.

Ég tel hvorki Ágúst né Katrínu tilbúin undirráðherra starfið, reyndar að þeim væri gerður bjarnargreiði með því. Því þau eru best fallin að vera andlit flokksins á þingi og veikja fylgi Vinstri Grænna meðal ungs fólk, það er ekki gert í ráðuneyti.

Þannig að ekki fá eftisjá alveg strax, það er öðruvísi fyrir flokk að vera í stjórn en stjórnarandstöðu. Það er alveg 100% að menn mistíga sig fyrstu mánuðina, en ef menn hafa ekki sínt neitt fyrir jól, þá má fara íhuga brottrekstur.

mbk

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 14:51

6 Smámynd: Sigurjón

Þið talið um brottrekstur eins og að þið getið eitthvað rekið þetta lið úr stólunum sínum!  Hvernig datt ykkur í hug að kjósa fyrst ekkert er nógu gott til að vera á þingi?  Farið bara sjálfir og bjóðið ykkur fram!

Sigurjón, 30.8.2007 kl. 23:08

7 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það kemur að því Sigurjón, tæplega 4 ár þangað til!

Haukur Nikulásson, 1.9.2007 kl. 00:11

8 Smámynd: Sigurjón

Það er nú ekki líklegt að Imba fari af þingi eftir 4 ár.  Sleppið því bara að kjósa.  Það er hvort eð er sama hvað kosið er; þetta er allt lið sem vill bara skara eld að sinni köku.

Sigurjón, 2.9.2007 kl. 20:06

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 264821

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband