Eru stórir hlutir endilega góðir hlutir?

Það virðist vera í mannlegu eðli að reyna að hafa nánast alla hluti eins stóra og mögulegt er. Metnaður mannsins til að bæta tilveruna með stækkun allra hluta virkar hins vegar oft þveröfugt við góðar fyrirætlanir.

Þegar hlutir verða stórir er nefnilega hættan á að skaðinn verði meiri bara vegna stærðarinnar. Í sinni einföldustu mynd er hlutur sem þú missir á tærnar skaðlegri eftir því sem hann er stærri og þyngri. Sama má segja um önnur fyrirbrigði.

Ef George W. Bush hefði verið áfram ríkisstjóri í sjálfstæðu ríki Texas er ótrúlegt að hann hefði lagt út í stríðið við Írak. Sem forseti bandaríkjanna gat hann hins vegar leitt bandalag rúmlega 50 smærri ríkja í stríð sem engum finnst lengur nokkurt vit í. Hörmungarnar af þessu stríði eru öllum ljósar.

Sömu hugmynd hef ég um væntanleg bandaríki Evrópu þ.e. Evrópusambandið. Dettur einhverjum í hug að ekki verði búið til toppembætti þar sem geti verið jafn valdamikið þegar fram í sækir. Það er stundum misskilið en völdum er ekki úthlutað sem auðmjúku fyrirbrigði. Völd eru oft tekin í meiri mæli en ætlast var til.

Ég óttast að ef Evrópussambandið nær því að verða sambandsríki að þá séum við bara að auka áhættuna af heimsstyrjöld ef ígildi tveggja "Bush"ara sætu við völd og þeir yrðu saupsáttir vegna t.d. tollamála. Það þarf stundum ekki meira til bullandi ósættis.

Mér finnast Evrópusinnar ekki líta á þessi rök. Eingöngu horft til einhverra peningalegra væntinga sem eru löngu brostnar. Íslendingar verða bara skattlagðir af Evrópusambandinu niður í lifistandard hinna fátækari Evrópuþjóða. Hér virðist vanta rökhugsun.

Mín skoðun er sú að íslendingar eigi að taka virkan þátt í störfum sameinuðu þjóðanna og láta ógert að styðja stækkun ríkjabandalaga nema á heimsvísu. Annað hefur alltaf tilburði til að bera með sér eineltisbrag sem er ógeðfelldur.

Hver er þín skoðun?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Fannar Kristjánsson

Vissulega er þetta rétt. Við vitum að "valdið er spillt", nema því sé dreift, en þarna er verið að gera þið andstæða. Annað dæmi um svona sambandsríki eru Sovjetríkin sálugu og ég tel að Sovjetríkin og Bandaríkin ættu að geta sagt okkur nóg til að skilja að þetta er ekki sniðugt. Við getum gert ýmsa sáttmála og bandalög um að nýta hluti saman, hafa tollverð á milli okkar lágt og ýmislegt svoleiðis til að styrkja góða evrópu, en ekki sameina hana í eitt heimsveldi, heimsveldi og sambandsríki í gegnum söguna kenna okkur það að þetta er ógeðslegt fyrirkomulag og skemmir mikið fyrir fólkinu. Þar fyrir utan myndast líka margir mismunandi minnihlutahópar sem ekki sitja við völd, og þeim verður  traðkað á, sjáið til dæmis bandaríkin í þeim efnum, þar sem margir minnihlutahóparnir eru meira að segja stærri en hinn "angklíski hvíti maður". Fólk eins og Colin Powell og Condoleeza Rice í s´æinar stöður munu engu breyta um það, heldur gera það ókleift að berjast meira, BNA veitir ekki af flokki fyrir minnihlutahópa í framboð hjá sér.

Halldór Fannar Kristjánsson, 24.1.2007 kl. 11:54

2 identicon

Það er ekki rétt hjá þér líttu á tölvufyrirtæki þau eru að búa til smærri tölvukubba og smærri mp3 spilara og allt í þessum dúr.  SÞ eru svo sem ekkert heilagri en aðrar stofnanir og ef eitthvað spiltari en flestar.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 05:27

Höfundur

Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson
Höfundur hefur starfað í tölvugeiranum mestan sinn feril, lengst af í eigin rekstri. Starfar nú sem ráðgjafi og kláraði nýlega frumkvöðlanám í háskólanum Keili.

Hann iðkar íþróttir, tónlist og stjórnmál af talsverðum móð.

Athugið: Ég hendi hiklaust út ómálefnalegum leiðindum og persónulegu skítkasti sem ekki á erindi í umræðuna... að mínu mati!

Pistlarnir hér eru hans eigin skoðanir.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband